Víkurfréttir - 08.01.2009, Blaðsíða 2
2 AUGLÝSINGASÍMINN ER 421 0000VÍKURFRÉTTIR I 2. TÖLUBLAÐ I 30. ÁRGANGUR
Keflavíkurflugvöllur ohf. tók
við rekstri Keflavíkurflug-
vallar og Flugstöðvar Leifs
Eiríkssonar um áramótin
en félagið var stofnað með
lagaheimild 26. júní sl. til að
annast rekstur, viðhald og
uppbyggingu flugvallarins
og flugstöðvarinnar. Félagið
annast einnig flugleiðsögu-
þjónustu og þjónustu við
flugrekendur, rekstur versl-
ana með tollfrjálsar vörur og
aðra starfsemi auk þess að
sjá um hagnýtingu flugvallar-
Jón Gunnarsson stjórnarformaður KEF, Kristján Möller sam-
gönguráðherra og Björn Óli Hauksson forstjóri KEF.
KEF TEKIÐ
TIL STARFA
ins í þágu öryggis- og varn-
armála.
forstjóri er Björn Óli Hauks-
son rekstrarverkfræðingur.
Öryggisverðir sem annast
vopnaleit og öryggisgæslu
í flugstöðinni munu heyra
undir hið nýja félag. Réttindi
og skyldur starfsmanna flytj-
ast í samræmi við lög um aðila-
skipti. Fríhöfnin ehf. er dóttur-
félag Keflavíkurflugvallar ohf.
og sér um rekstur fríhafnar-
verslana í flugstöðinni. Starfs-
menn félaganna eru 400 og
áætluð velta á þessu ári er ríf-
lega tíu milljarðar króna.
Stjórn Keflavíkurflugvallar
ohf. skipa Jón Gunnarsson,
Rannveig Guðmundsdóttir,
Sigrún Jónsdóttir, Ellert Eiríks-
son og Pétur J. Eiríksson.
Sigríður Björk
tekin við sem lög-
reglustjóri
Sigríður Björk Guðjóns-
dóttir, aðstoðarríkis-
lögreglustjóri, tók við
embætti lögreglustjóra á
Suðurnesjum um áramót.
Sigríður hefur starfað hjá
embætti ríkislögreglustjóra
í um tvö og hálft ár og var
hún skipuð aðstoðarrík-
islögreglustjóri þann 1.
janúar 2007 og staðgengill
ríkislögreglustjóra. Sig-
ríður Björk var sýslumaður
Ísfirðinga frá 2002 til 2006.
Sigríður Björk vann að
endurskipulagningu
embættis ríkislögreglu-
stjóra og annaðist daglega
stjórn löggæslu- og örygg-
issviðs. Undir sviðið heyrir
sérsveit, greiningardeild,
almannavarnir, fjarskipta-
miðstöð og alþjóðadeild.
Kristínar Haraldsdóttur,
Ásgarði 8,
Reykjanesbæ.
Sérsakar þakkir færum við starfsfólki á krabbameins-
deild Landspítalans við Hringbraut og Heilbrigðisstofnun
Suðurnesja fyrir umhyggju og hlýlegt viðmót.
Guðmundur Ómar Sighvatsson,
Haraldur Freyr Guðmundsson, Freyja Sigurðardóttir,
Bryndís Guðmundsdóttir, Aron Ómarsson,
Íris Guðmundsdóttir
og barnabörn.
Innilegar þakkir færum við öllum
þeim sem sýndu samúð, hlýhug og
vináttu við andlát og útför elskulegrar
eiginkonu minnar, móður okkar, teng-
damóður og ömmu,
Lesendur athugið!
Vegna gengisþróunar hefur kostnaður við aðföng til
prentunar blaðsins aukist mjög mikið á síðustu vikum.
Þetta þýðir að fækka hefur þurft síðum blaðsins til að
halda niðri kostnaði. Vegna þessa er aukin áhersla lögð á
daglegan fréttaflutning á vef Víkurfrétta, vf.is. Þar eru einnig
ítarlegri útgáfur af mörgun fréttum sem birtar eru hér í
blaðinu. Við bendum því lesendum á vf.is fyrir fleiri fréttir.
SamkaupÚrval í Njarðvík
verður breytt í NETTÓ. Þetta
staðfestir Sturla Gunnar Eð-
varðsson forstjóri Samkaupa
í samtali við Víkurfréttir.
Hann segir undirbúnings-
vinnu vegna breytinganna
vera komna á fullt og vonir
standi til að breytingin hafi
gengið í gegn fyrir páska.
Sturla segir breytinguna vera
svar fyr ir tækis ins við því
ástandi sem nú ríki. NETTÓ
sé verslun sem bjóði lægra
vöruverð. Farið verður í um-
fangsmiklar breytingar á versl-
unarhúsnæðinu og innréttuð
verður glæsilegasta verslun á
Suðurnesjum að sögn Sturlu.
Aðspurður um kjötborðið í
SamkaupÚrval í Njarðvík,
segir Sturla að það verði ekki í
sömu mynd. Hins vegar verði
kappkostað að hafa mikið og
gott úrval í ferskvöru. Verslun-
inni verður lokað í einhvern
tíma á meðan breytingar verða
gerðar innandyra. Sturla von-
aðist þó til að það verði ekki
margir dagar.
Óhjákvæmilega þarf að segja
upp starfsfólki vegna þessara
breyt inga. Sagði Sturla að
starfsmönnum í helgarvinnu
og hlutastörfum hafi verið sagt
upp störfum en um er að ræða
um 8 störf.
Samkaup í Njarðvík verður NETTÓ