Víkurfréttir


Víkurfréttir - 08.01.2009, Blaðsíða 6

Víkurfréttir - 08.01.2009, Blaðsíða 6
6 AUGLÝSINGASÍMINN ER 421 0000VÍKURFRÉTTIR I 2. TÖLUBLAÐ I 30. ÁRGANGUR ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, sonur, tengdasonur og bróðir Birkir Árnason lyfjafræðingur Kaplaskjólsvegi 85 Reykjavík áður til heimilis að Smáratúni 9 Keflavík varð bráðkvaddur á heimili sínu, föstudaginn 2.janúar. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju, föstudaginn 9.janúar kl:14:00 Halldóra Ásgeirsdóttir Ásgeir Birkisson, Sigrún Bjarnadóttir María Björk Birkisdóttir Árni Guðgeirsson, Olga Guðmundsdóttir Ingibjörg Johannesen Erna Árnadóttir, Þorsteinn Geirharðsson Guðgeir Smári Árnason, Rebekka Jóna Ragnarsdóttir Þröstur Árnason, Victoría Solodovnychenko Ættfræði og bókaspjall á bókasafninu Félagar af Suðurnesjum í Ættfræðifélaginu ætla að hittast á bóka- safninu þriðjudaginn 13. janúar 2009 kl. 20 og spjalla saman um ættfræði. Allir áhugasamir eru velkomnir. Nánari upplýsingar veitir Einar Ingimundarson í síma 421 1407. Einnig ætla bókmenntaunnendur að hittast á sama tíma og spjalla saman um áhugaverðar bækur. Dagný og Pétur eiga nýársbarnið á Suður- nesjum Fyrsta barn ársins á Suður- nesjum er stúlka sem fæddist á fæðingardeild Heilbrigðisstofn- unar Suðurnesja föstudaginn 2. janúar kl. 12:04. Foreldrar hennar eru Dagný Helga Eckard og Pétur Rúnar Sigurðsson. Á síðasta ári voru 251 fæðing á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og var árið ánægjulegt á deild- inni, að því er fram kemur á vef HSS. Jólabarn fæðingardeildarinnar HSS 2008 er stúlka sem fæddist á jóladag. Foreldrar: Guðrún M. Jónsdóttir og Snorri Gíslason.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.