Víkurfréttir


Víkurfréttir - 28.05.2009, Qupperneq 6

Víkurfréttir - 28.05.2009, Qupperneq 6
6 AUGLÝSINGASÍMINN ER 421 0000VÍKURFRÉTTIR I 22. TÖLUBLAÐ I 30. ÁRGANGUR ����������� ���������������������������������������� ���������������������������� �������������� ������������������������������������� ��������� ������������������������� ��������������������������������������������� ��� ������������ Vel varðveitt, blá glerperla, hnífsblað, nagli og steinn með gati, sem líklega hefur verið notaður sem dyralóð, hafa fundist við fornleifa- rannsókn á landsnámsskála í Höfnum. Uppgröfturinn hófst í síðustu viku og hefur gengið vel. Búið er að greina tvennar dyr að skálanum. Mikill happafengur Rúst ir land náms skál ans fundust árið 2002 fyrir aftan Kirkjuvogskirkju. Með sýnum teknum úr eldstæði í gólfi skál- ans var staðfest að hann væri ekki yngri en frá árinu 900. Þannig er hann með elstu stað- festu mannvistarleifum sem fundist hafa á Íslandi. Eftir að farið var yfir svæðið með jarð- sjártæki og það kortlagt sáust fyrir utan skálann fleiri rústir sem talið er að séu útihús og skemmur. Forn leifa rann sókn in er á vegum Byggðasafns Reykja- nesbæjar sem fékk styrk til hennar frá Menningarráði Suð- urnesja. „Ljóst er að íbúarnir hafa yf- irgefið bústaðinn tiltölulega snemma í byggðasögunni. Eftir það hefur aldrei verið búið eða byggt á þessu svæði. Þetta er því mik ill happa- fengur fyr ir okkur öll, að finna ómengað býli frá fyrstu tíð, inni í þorp inu miðju þannig að allir geta notið þess að skoða þessar rústir. En það háir einmitt mörgum svona rann sókn um að fjar lægja þarf yngri minjar sem liggja ofan á þeim elstu með tilheyr- andi kostnaði, auk þess sem yngri byggingarframkvæmdir hafa skaðað elstu minjarnar, oftast eru því svona gamlar óhreyfðar minjar fjarri alfara- leið,“ segir Sigrún Ásta Jóns- Landnámsskáli grafinn upp í Höfnum: Með elstu staðfestu mann- vistarleifum á Íslandi Veggir skálans hafa smám saman verið að koma í ljós. Í baksýn er Kirkjuvogskirkja. Nemendur úr Myllubakkaskóla voru í skoðunarferð á svæðinu á þriðjudaginn og voru krakkarnir mjög áhugasamir. VFmyndir/elg. Þrátt fyrir ódrepandi áhuga gaf Björgvin Gunnarsson sér tíma til að líta í linsuna. Samstarfskona hans var hins vegar meira niðursokkin í verkið í bókstaflegri merkingu. dóttir, forstöðumaður Byggða- safnins. Bústaður Herjólfs? Möguleiki er að hér sé kominn bústaður Herjólfs Bárðarsonar, sem var langafi Bjarna Herjólfs- sonar sá sem fyrstur (ásamt áhöfn sinni) Evrópumanna leit meginland Ameríku augum. Í Landnámu segir að Herjólfur Bárðarson hafi fengið land frá fóstbróður sínum Ingólfi Arn- arssyni milli Vágs og Reykja- ness, sem venjulega er túlkað sem landið sem Hafnahreppur náði yfir. Það er Fornleifafræðistofan undir stjórn dr. Bjarna F. Ein- arssonar, fornleifafræðings, sem stjórnar rannsókninni, en með þeim verða nemar í forn- leifafræði við Háskóla Íslands sem eru í verklegu námi. Sam- starf hefur náðst um þetta verk- efni við Keili og gista nemend- urnir í húsnæði Keilis á meðan á rannsókninni stendur.

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.