Víkurfréttir - 11.06.2009, Page 9
VÍKURFRÉTTIR I FIMMTUDAGURINN 11. JÚNÍ 2009 9STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM
TAX FREE
!
TAX FREE!
Aðeins föstudag
til sunnud
ags
Afnemum
virðisaukaskatt
af allri útimálningu
og viðarvörn
Mest selda
pallaolía
á Íslandi
Hafnargötu 57 - Reykjanesbæ - Sími: 421 5222
á veitingastaðnum
Við tökum borðapantanir í móttöku
- Nýr sumarmatseðill
- Nýir helgarréttir á tilboði á matseðli
- Opið alla daga og öll kvöld
Bæj ar full trú arn ir Björn
Haraldsson og Garðar Páll
Vignisson úr Grindavík eru
gengnir til liðs við Vinstri-
hreyfinguna - grænt fram-
boð (VG). Þar með verður
umtalsverð breyting í póli-
tíkinni innan bæjarstjórnar
Grindavíkur. Garðar Páll
var áður annar bæjarfulltrúi
Samfylkingarinnar og Björn
var í röðum Frjálslyndra.
Við það að Garðar yfirgefur
Samfylkinguna mætti segja
að meirihlutinn í Grindavík
sé fallinn. Nýir bæjarfull-
trúar VG ætla hins vegar að
styðja sitjandi meirihluta
og því stendur meirihlutinn
traustari fótum í dag þar sem
fjölgar í meirihlutanum um
einn bæjarfulltrúa.
Í tilkynningu frá þeim Birni
og Garðari Páli segir: „Það er
okkar trú að framtíð ýmissa
aðkallandi verkefna séu best
tryggð með aðkomu VG. Hér
er meðal annars verið að vísa
til atvinnuuppbyggingar og
að möstrin í nágrenni bæjar-
ins fari burt en þau eru leifar
frá veru hersins á Ís landi.
Menntaskólinn í Grindavík
verði að veruleika og lönd í
eigu ríkisins í lögsögu Grinda-
víkur verði í eigu Grindavík-
urbæjar“.
Nágrannar kríuvarpsins í
Garðinum hvetja til þess
að fólk láti af því þetta árið
að ræna kríuvarpið. Varpið
brást í fyrrasumar vegna
þess að fæðu fyrir ungana
vantaði. Nú virðist fæðan
vera í lagi en þá er farið að
bera á því að ekið sé á stórum
jeppum upp um heiðina
ofan við byggðina í Garði
til að ræna kríuna. Fólk er
varla svo aðframkomið af
hungri að það geti ekki látið kríuvarpið vera, því ef varpið
verður eyðilagt, þá endar það með því að krían fer annað.
Nýir bæjarfulltrúar VG í
Grindavík styðja meirihlutann
Krían fái frið í varplandinu