Víkurfréttir - 11.06.2009, Blaðsíða 18
18 AUGLÝSINGASÍMINN ER 421 0000VÍKURFRÉTTIR I 24. TÖLUBLAÐ I 30. ÁRGANGUR
Menntamálaráðherra Katrín
Jakobsdóttir afhenti Foreldra-
verðlaun Heimilis og skóla
- landssamtaka foreldra í síð-
ustu viku. Nokkur verkefni á
Suðurnesjum voru tilnefnd en
verðlaunaverkefnið 2009 er
Tökum saman höndum sem
er samstarfsverkefni Fræðslu-
skrifstofu A-Húnavatnssýslu
og Grunnskólans á Blönduósi.
Markmið verkefnisins er að
bæta líðan og námsárangur
nem enda í ung linga deild
grunnskólans á Blönduósi.
Auk Foreldraverðlaunanna
sjálfra voru veitt hvatningar-
verðlaun og dugnaðarforka-
verðlaun.
Samstarfsverkefni Kópavogs-
skóla og Gjábakka sem ætlað
er að brúa bilið á milli kynslóða
fékk hvatningarverðlaun og
Björg Þorvaldsdóttir deildar-
stjóri sérkennslu við Nesskóla
fékk verðlaun sem dugnaðar-
forkur. 38 tilnefningar bárust
til verðlaunanna að þessu sinni
og voru 34 verkefni tilnefnd.
Tvær Suðurnesjakonur áttu
sæti í dómnefndinni þær Sigur-
veig Sæmundsdóttir skólastjóri
í Flataskóla og Guðbjörg Jóns-
dóttir frá Menntasviði Reykja-
víkurborgar.
Af Suðurnesjaverkefnum til-
nefndi FFGÍR verkefni Gylfa
Jóns Gylfasonar sálfræðings á
fræðsluskrifstofunni „Uppeldi
til árangurs“ sem er ætlað að
draga úr þunglyndi, kvíða og
hegðunarerfiðleikum barna og
unglinga, þörf fyrir stofnana-
vistun og lyfjanotkun. Mark-
miðið með verkefninu er að
auka hamingju borgaranna.
Kristján A. Jónsson tilnefndi
Myllubakkaskóla fyrir verkefnið
„Jólakort til aldraðra“. Jólakort
eru hönn uð af nem end um
skólans og samkeppni er um
myndir í jólakortin. Teikningar
eru unnar í myndmenntatímum
fyrir jólin.
Starfsfólk leikskólans, Tjarn-
arsels verðlaunahafar Foreldra-
verðlaunanna frá síðasta ári,
tilnefndi „Listasafn Reykjanes-
bæjar“, Valgerði Guðmunds-
dóttur og Guðlaugu Lewis, fyrir
að setja upp listssýningu barna í
Duushúsum í samvinnu við leik-
skóla bæjarins.
Foreldrafélag leikskólans Gimli
tilnefndi tvö verkefni sem eru
á Gimli. Annað er „Fjölskyldu-
framlag“ en markmiðið með
verkefninu er að efla samstarf
fjölskyldna nemendanna og leik-
skólans og auka skilning á milli
heimila og skólans. Nemendum
finnst sjálfsagt að foreldrar
mæti í leikskólann á öllum
tímum og taki þátt í starfsem-
inni. Foreldrar og börn þeirra
fá tækifæri til að deila vitneskju
og lagni fjölskyldu sinnar með
öðrum á leikskólanum, hvort
sem það er starfsfólkið eða aðrir
nemendur skólans.
Hitt verkefnið „Gaman saman“
sem er samstarfsverkefni leik-
skólans Gimli (Karenar Valdi-
marsdóttur) og Nesvalla (Ingu
Lóu Guðmundsdóttur). Mark-
miðið með verkefninu er að
brúa bilið milli kynslóða, að
börnin læri af eldri borgurum
og njóti samvista við þá. Einnig
að eldri borgarar kynnist heimi
barnanna í nútímasamfélagi.
Verkefnið felur í sér tengingu
í grenndarsamfélaginu og eflir
félagsgerð þess.
Verkefni á vegum ÓB-ráðgjafar
sem eru á vegum Ólafs Grétars
Gunnarssonar fengu 6 tilnefn-
ingar fyrir verkefni á leik-,
grunn- og framhaldsskólastigi.
Verkefnið „Hugsað um barn“
sem er í mörgum grunnskólum
víða um land fékk 4 tilnefningar
m.a. frá Njarðvíkurskóla. Annað
verkefni „Aðlögun að foreldra-
hlutverkinu“ sem er á fram-
haldsskólastigi og nemendur
fá einingar fyrir var tilnefnt af
Menntaskólanum í Kópavogi
og í þriðja lagi verkefnið „Sam-
starf foreldra og leikskóla“ var
tilnefnt af Þórunni Írisi Þóris-
dóttur.
Hægt er að nálgast allar upplýs-
ingar um Foreldraverðlaunin á
www.heimiliogskoli.is
Heimili og skóli veitir verkefnum á Suður-
nesjum viðurkenningu Foreldraverðlauna
Auglýsingasíminn er 421 0000
- hver sér um markaðsmálin
í þínu fyrirtæki?