Víkurfréttir - 02.07.2009, Blaðsíða 1
Betri innlánsvextir
- kynntu þér málið á spkef.is
www.heklakef.is
Sölu- og þjónustuumboð
í Reykjanesbæ
K.Steinarsson
NÆSTUM
NÝIR
BÍLAR
27. tölublað • 30. árgangur • Fimmtudagurinn 2. júlí 2009
Víkurfréttir ehf.
Grundarvegur 23 - 260 Reykjanesbæ
Sími 421 0000 - Póstur: vf@vf.is
Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09-17
Auglýsingadeild 421 0001
Fréttadeild 421 0002
Aðrar deildir 421 0000
Frábært framtak fyrir Frank
- sjá svipmyndir frá styrktarhátíð í opnu
Vel á annað þúsund manns sóttu árlega Sólseturshátíð í Garðinum um liðna helgi. Veðrið lék við
hátíðargesti en sól, hiti og loftslag sem þekkist frekar á meginlandi Evrópu einkenndi helgina.
Meðfylgjandi mynd var tekin í fjörunni á Garðskaga á laugardagskvöldinu en þá hafði fólk komið sér
fyrir í fjörunni með sólstóla og drykki og fylgdist með sólinni setjast við jökulinn. - Nánar á vf.is
Festa lánar
Reykjaneshöfn
250 milljónir
Lífeyrissjóðurinn Festa hefur samþykkt að
veita Reykjaneshöfn 250
mkr. lán til 25 ára með
6,7% vöxtum. Þetta var
ákveðið á stjórnarfundi
fyrir skemmstu. Lánið
verður með veði í lóðum
í Helguvík, samkvæmt
því sem fram kemur í
fundargerð Atvinnu- og
hafnarráðs Reykjanes-
bæjar. Framkvæmdastjóra
ráðsins hefur verið falið
að undirrita lánasamn-
inginn.
Reykjaneshöfn stendur
í umtalsverðum fram-
kvæmdum í Helguvíkur-
höfn vegna álversfram-
kvæmda. Erfitt hefur
reynst að fá lánsfé til fram-
kvæmdanna í því efna-
hags-ástandi sem nú ríkir.
Færri umferðar-
lagabrot í maí
Umferðarlagabrotum fækkaði í maí á milli
ára í umdæmi lögregl-
unnar á Suðurnesjum.
Það kemur á óvart því
lengi vel hafa tölur sýnt
fjölgun brota. Alls komu
341 umferðarlagabrot
inn á borð lögreglunnar í
maí síðastliðnum saman-
borðið við 398 mál fyrir
ári.
Hegningarlagabrotum
fjölgaði hins vegar úr 75 í
82. Fíkniefnabrotum fækk-
aði hins vegar úr 16 í 6.
Víkurfréttamynd: Hilmar Bragi Bárðarson
Sólsetur í Garði