Víkurfréttir - 02.07.2009, Side 14
14 AUGLÝSINGASÍMINN ER 421 0000VÍKURFRÉTTIR I 27. TÖLUBLAÐ I 30. ÁRGANGUR
Guðbrandur Einarsson, bæjarfulltrúi í Reykjanesbæ skrifar:
Skemmdarverk
Auðlindir í okkar eigu?
Reykjanesbær ætlar að kaupa
landið sem hefur að geyma
þær auðlindir sem Hitaveitan
hefur verið að nýta og hefur
verið í hennar eigu. Fyrir það
ætlar Reykjanesbær að borga
tólfhundruð milljónir króna.
Til þess að þetta nái fram að
ganga ætla þessir snillingar
sem þessu stjórna að gefa út
skuldabréf til 10 ára með 5%
vöxtum. Greiðslur af slíku
skulda bréfi myndu, í 5%
verðbólgu, verða frá 150 millj-
ónum upp í 230 milljónir á
ári.
Mikil ánægja virð ist ríkja
meðal sjálfstæðismanna með
að við skulum geta haft 50
milljónir upp í þetta með leigu-
tekjum af auðlindunum, en
hvar ætla sjálfstæðismenn að
taka mismuninn svo að hægt
verði að standa í skilum? Ætla
þeir kannski að hækka leik-
skólagjöld?
Kaup á landi er feluleikur
Að minni hyggju er sala á
þesu landi til Reykjanesbæjar
ekkert nema feluleikur. Það
stendur til að gera samning
við GGE um að þeir hafi nýt-
ingarréttinn á auðlindunum
í 65 ár og því til viðbótar
hafa þeir (eða þeir sem eiga
allt dótið á þeim tíma) rétt til
þess að framlengja í 65 ár í
viðbót. Við Suðurnesjamenn
ætlum því að afsala okkur nýt-
ingarrétti á auðlindum okkar
til einkaaðila í a.m.k 130 ár.
Var það nokkuð til umræðu á
þeim íbúafundum sem bæjar-
stjóri stóð fyrir nýverið?
Hvernig á svo að borga
fyrir herlegheitin?
Skv. framkomnum upplýs-
ingum er meiningin að borga
fyrir allt þetta með eftirfar-
andi hætti. Þrír milljarðar eiga
að koma í peningum. Skv. upp-
lýsingum sem ég hef undir
höndum, er gert ráð fyrir að
sú greiðsla geti verið að berast
fram á næsta ár. Svo ætlum
við Reyknesingar að kaupa
meira í HS veitum fyrir u.þ.b.
4 milljarða af GGE.
En ég verð að spyrja að því
hvers vegna í ósköpunum
ættum við að greiða 4 millj-
arða til þess að eignast meira
í HS veitum sem er fyrirtæki
sem sér um dreifingu á orku
og vatni til margra byggðar-
laga. Nægir ekki að eiga þriðj-
ung í því fyrirtæki eins og við
eigum nú? Eða er að koma
í ljós það sem ég hef áður
sagt að verið sé að koma því
þannig fyrir að við munum að
endingu eiga bara rörin?
Skuldabréf fyrir restinni
Meiningin er síðan að gefa
út skuldabréf fyrir restinni.
Það skuldabréf á samt ekki að
vera á sömu vöxtum og við
verðum að greiða vegna landa-
kaupanna heldur mun GGE
njóta betri kjara í viðskiptum
sínum við okkur heldur en
RNB við þá. Það má síðan
spyrja að því hverjum Reykja-
nesbær ætlar að lána 6 millj-
arða til 7 ára.
Er um stöndugt fyrirtæki að
ræða sem líklegt er að muni
vaxa og dafna í framtíðinni?
Eft ir því sem ég best veit
stendur GGE á brauðfótunum
einum. Þeir aðilar sem stóðu
að fyr ir tækinu eru annað
hvort orðnir gjaldþrota eða
komir í greiðslustöðvun. Eru
einhverjar líkur á því að staðið
verði við þessar skuldbind-
ingar nema því aðeins að er-
lendir aðilar eignist GGE að
stórum hluta eða öllu leyti og
þá um leið nýtingarréttinn til
orkuöflunar á Suðurnesjum
til næstu 130 ára. Ég vissi ekki
betur en að þeir Geysismenn
hefðu viljað eignast lítinn hlut
í Hitaveitunni svona til þess að
geta sýnt hana í útrásinni sem
þeir ætluðu sér að leggjast í.
En nú virðist ekkert annað
eftir hjá þeim en að að leggja
undir sig orkuhluta Hitaveitu
Suðurnesja með dyggri aðstoð
Árna Sigfússonar bæjarstjóra í
Reykjanesbæ.
Eignir Reykjanesbæjar
að klárast
Það eru margir til að spyrja
hvort ekki sé réttlætanlegt að
selja við þessar aðstæður sem
nú eru í efnahagslífi þjóðar-
innar. Það er auðvitað gild
spurning, en ég vil leyfa mér
að spyrja á móti hvort það
sé ásættanlegt að núverandi
meirihluti sem ráðið hefur
ríkjum í Reykjanesbæ frá ár-
inu 2003, skuli leyfa sér að
ganga svona á eigur bæjarins.
Þess er skammt að bíða að
eigið fé sveitarfélagsins, sem
orðið hefur til með sparnaði
undangengna áratugi verði
uppurið, vegna algjörs getu-
leysis þessara aðila til þess
að hafa heimil á útgjaldafýsn
sinni.
Hvaða leyfi hafa þeir gagnvart
komandi kynslóðum til þess
að setja sveitarfélagið í þessa
stöðu?
Nýtt REI mál í uppsiglingu
Þessir aðilar sem nú höndla
með eignir Reykjanesbæjar
höfðu aðkomu að REI málinu
svokallaða á sínum tíma. Bæði
bæjarstjórinn í Reykjanesbæ
og for stjóri GGE sátu við
hringborðið og véluðu um að
Hitaveita Suðurnesja færi inn
í REI. Sem betur fer stöðvuðu
Reykvíkingar það.
Nú er hins vegar annað REI
mál í uppsiglingu komið af
stað með hluta leikenda úr því
leikriti. Verður þetta keyrt í
gegn án þess að íbúar hafi eitt-
hvað um þetta að segja?
Var það þetta sem sjálfstæð-
ismenn í Reykjanesbæ buðu
uppá í síðustu kosningum?
Guðbrandur Einarsson
oddviti A-listans
í Reykjanesbæ
-fyrir hverja vinna sjálfstæðismenn í Reykjanebæ?
Í fréttatilkynningu sem komin er fram segir að Reykjanesbær og Geysir Green
Energy eigi nú í viðræðum um kaup bæjarins á landareignum og auðlindum
HS Orku til að tryggja að auðlindin verði í opinberri eigu eins og segir í svo
fallegum orðum í þessari fréttatilkynningu. Ef að þetta væri nú eini tilgangur
viðræðnanna milli þessara aðila væri manni rótt, en á bak við þennan fagur-
gala á að ráðast í milljarða viðskipti með eignarhluti sem munu hafa afdrifa-
ríkar afleiðingar marga áratugi fram í tímann eða á maður kannski að segja
um aldir.
Svæðisfélag Vinstri grænna í Grindavík var stofnað
formlega á dögunum. Meðal
gesta á stofnfundi sem hald-
inn var í Saltfisketri Íslands
voru Agnar Sigurbjörnsson,
formaður VG á Suðurnesjum,
Guðrún Á. Guðmundsdóttir,
bæjarfulltrúi í Hafnarfirði,
Steingrímur J. Sigfússon,
formaður VG og fjármála-
ráðherra, Atli Gíslason þing-
maður o.fl.
Í frétt á heimasíðu Grindavík-
urbæjar segir að ræðumenn
hafi talið að stofnun félagsins
með tveimur bæjarfulltrúum,
þeim Garðari Páli Vignissyni
og Birni Haraldssyni, gæti
orðið mikil lyftistöng fyrir
starf VG á Suðurnesjum.
Helstu áherslur bæjarfulltrúa
VG í Grindavík næstu miss-
erin eru: „stofnun Mennta-
skólans í Grindavík, möstrin á
varnarsvæðinu í burtu, kaup á
landi í eigu ríkisins, þ.e. Húsa-
tóftalandið og landið á Stað.“
Eins og flest ir vita hef ur
nokkur órói einkennt bæjar-
stjórnarmál í Grindavík, en
nú hafa fulltrúar Samfylkingar
og Framsóknarflokks myndað
minnihlutastjórn sem full-
trúar VG verja, en Garðar var
kosinn af lista Samfylkingar á
sínum tíma og Björn af lista
Frjálslynda flokksins.
Fimmtu dag inn 4. júní fór fram tóbakskönnun
á vegum SamSuð (Samtaka
félagsmiðstöðva á Suður-
nesjum) í öllum sveitarfélög-
unum á Suðurnesjum. Á að-
eins 6 af þeim 28 sölustöðum
sem voru kannaðir var tóbak
selt of ungum unglingum.
Það þýðir að um 79% sölu-
staða á Suðurnesjum seldu
ekki tó bak til ung menna
undir 18 ára aldri.
Könnunin fór þannig fram að
15 til 16 ára ungmenni fóru á
sölustaði og freistuðu þess að
fá keypt tóbak. Ef starfsmaður
seldi tóbak fór starfsmaður á
vegum SamSuð í verslunina
og fékk tóbakið endurgreitt.
Könnunin var gerð með leyfi
forráðamanna þeirra sölustaða
sem farið var á.
Í samskiptum forráðamanna
SamSuð við rekstraraðila sölu-
staða kom fram að nokkuð er
um að ungt fólk sem er neitað
um afgreiðslu tóbaks vegna
aldurs standi fyrir utan versl-
anir og freisti þess að fá eldra
fólk til að kaupa tóbak fyrir
sig. Í framkvæmd könnunar-
innar sáust merki þessa. 15
ára stúlka sem tók þátt í fram-
kvæmd hennar var neitað um
að kaupa tóbak á einum sölu-
staðnum og buðust þá eldri
drengir til að kaupa fyrir hana
sem hún vitaskuld þáði ekki.
Forráðamenn SamSuð eru
ánægðir með tóbakskönnun-
ina. Framkvæmdin gekk vel
í góðu samstarfi söluaðila og
það er ánægjuefni hversu stór
hluti sölustaða seldi ekki tó-
bak til of ungra einstaklinga.
Líklegt verður að teljast að
framhald verði á tóbakskönn-
unum á vegum SamSuð.
Vinstri grænir stofna
félag í Grindavík
VERSLUNARFÓLK Á SUÐUR-
NESJUM ER AÐ STANDA SIG
✝
Hjalti Heimir Pétursson
Hringbraut 136b
Keflavík
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, sunnudaginn 28. júní.
Jarðarförin fer fram frá Ytri-Njarðvíkurkirkju, miðvikudaginn
8. júlí kl. 13:00
Guðný Adolfsdóttir,
Hulda Klara R. Hjaltadóttir, Jóhann Helgi Eiðsson,
Þóra Kristín Hjaltadóttir, Davíð Fannar Bergþórsson,
Ásthildur Margrét Hjaltadóttir, Carmen Lena Ribas,
Ómar Þröstur Hjaltason, Katrín Arndís Magneudóttir,
Pétur Friðrik Hjaltason, Kristín Gunnlaugsdóttir,
Gunnlaugur Þór Hauksson, Ólavía Lúðvíksdóttir,
og barnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, sonur, bróðir, mágur og afi,