Heima og erlendis - 01.08.1946, Qupperneq 1
1. árg1.
2. tbl.
Heima og erlendis
Um Island og Islendinga erlendis
Ágúst
ÁRNA-SAFNIÐ
í KAUPMANNAHÖFN
Á horninu við Fiolstræde og Frue Plads
liggur Háskólabókasafnið, er geymir hand-
ritasafn Árna Magnússonar, prófessors.
J>egar komið er inn í andyrið er gengið
til hægri, kemur maður þá á langan gang,
en eftir honum endilöngum eru horð og
eru þau hlaðin ýmsum hókum, tímaritum og
blöðum sem prentsmiöjur eða útgefendur á
Islandi hafa nýlega sent Háskólabókasafn-
inu og vaknar hjá mér löngun til þess að
staldra við og blaða í þessu, en verð að láta
það fara, er nú i norð-vestur enda hússins
og hér í gailherbergi þess er Árna-safnið;
herbergið er húshreiddin á lengd en ekki
breiðara en sem svarar glugganum. Hér situr
Jón prófessor Helgason og fer hér á eftir
árangur erindis míns.
— Hver eru tildrög Árna-safnsins og hve-
nær er það sett á stofnl
— Safniö er sett á stofn af Árna Magnús-
syni á tímabilinu frá því um 1685 til 1730.
Safnandinn ánafnaði það á banasænginni
háskólanum í Kaupmannahöfn.
— Hvað fínnast mörg bindi handrita og
hóka í safninu og hvaö er merkasta hand-
ritið og hver merkust hókannal
— Safnið á um 2850 bindi handrita sem
vonandi fínnast öll ef leitað er. Mikill meiri
hluti þeirra er íslenzkur. Enn fremur eru í
safninu nokkurar þúsundir skjala og skjala-
uppskrifta, íslenzkra, danskra og norskra.
Prentaðar bækur eru ekki í safninu aðrar
en liandbækur. Spurningunni, hvert handrit
sé merkast, munu menn svara á mismunandi
liátt eítir áhugamálum og þjóðerni. Af ís-
lenzkum handritum mætti t. d. tilnefna
Möðruvallabók (liún er aðalhandrit margra
lslendingasagna), af norskum Konungs skugg-
sjá, af dönskum rúnahandritið að Skáneyjar-
lögum.
— Hefír nokkuð af þessu verið prentað
og hver hefir gefið út það, sem prentað hefír
verið J
— Menn liafa verið að prenta úr Árna-
safni í hátt á aðra öld, svo aö eitthvað hlýtur
þó að vera af. þeir sem að þessu hafa unnið
eru i fyrsta lagi flestallir þeir lslendingar á
þessu tímabili sem fengizt hafa við fræði-
störf, og í öðru lagi ýmsir menn af öörum
þjóðum, norskir, danskir, sænskir, þýzkir,
hollenzkir og enn víðar að.
— Hverjir kaupa nú það, sem gefið hefir
Mynd bessi er af' suð-vestur euda Háskólalíókasafnsins;
innan bessa glugga á 1. liæð er Arna-safnið geymt
9