Heima og erlendis - 01.04.1950, Page 2

Heima og erlendis - 01.04.1950, Page 2
einhver dönsku gestanna höföu gleymt henni eða mist hana á gólíið og á ég sök á því, að hún kom í öðru blaði en ætlað var. A eftir Sveini Björnssyni talaði C. Th. Zahle, fór mjög hlýjum orðum um Island og ))ýÖingu samhandslaganna fyrir andlega og fjárhagslega þróun íslenzku þjóðarinnar. Meðal þeirra er skemmtu þetta kvöld voru Haraldur Sigurðsson, pianist og kona hans Dóra Sigurðsson. þá minnir mig líka að Benedikt Elfar hafi verið á skemmtiskránni. þegar lokið var skemmtiskránni, að öðru en dansi, var gestum félagsins hoöiö að borða, og munu þá veislu hafa setið 20—30 manns. Hér voru haldnar ræður, fyrstur lagði á vaðið 0. Kragh, talaði hann fyrir minni lslands og gerði það vel. Ræðu hans svaraöi Sigurður Eggerts, með ræðu fyrir minni Danmerkur. það fóru sögur af Sig- urði meðal landa hér, um mælsku hans og á hann að hafa verið snillingur í því, aó flytja góðar skálaræður. það er þá líka um þessa ræðu hans það segja, að hún var með afbrigðum góð og mælska hans leyndi sér ekki, enda var honum óspart klappað lof í lófa. „Hann kom, sá og sigraði!“ Fundurinn sendi konungi árnaðarskeyti í tilefni fimm ára sjálfstæðisafmæli íslenzku þjóðarinnar, og konungur sendi þakkarskey ti þegar um kvöldið. þessi fundur er hér aö framan nefndur með þeim meiri meðal landa hér. þar er átt viö það, að ekkert var sparað til þess, að gera þennan fimm ára afmælisfagnað sjálf- stæðis Islands sem veglegastan með góðum gestum, mönnnm, sem allir höfðu lagt hönd á það verk, sem nú var verið að minnast. ísléndingafélagið hefir ávalt taliö það skyldu sína, at vera útvöróur Islands hér í landi, þá er einhvers sérstaks var að minn- ast, þólt efni félagsins hafi oft verið minni en æskilegt hefði verið. Og ])essi fundur var einn af þeim, sem minntu Dani um nauðsyn framkvæmda þess máls, er veriö var að minnast, og þakklætis íslendinga viö þá þjóð, er svo drengilega hafði aö lokum oröið við sjálfstæðiskröfum íslenzku þjóðarinnar. þorf. Kr. SIGFÚS BLÖNDAL dr phil DANARMINNING Með honum er í vallinn fallinn sá seinasti þeirra íslenzkra menntamanna, er hér bjuggu og störfuðu frá því um seinasta tug síðustu aldar og fram yfir 1930. Hann var yngstur þeirra, kom hingað haustiö 1892 og var liér, að heita má, síðan. það liggur utan við minn verkahring, að skrifa um rithöfundinn og hókavörðinn Sig'- fús Blöndal, ætla mér að minnast hans sem mannsins, sem reinir aö greiða götu landa síns, er sækir ráð til hans, og mannsins, er ávalt er reiöuhúinn til þess, aö leggja félags- skap landa sinna lið, þurfi þess við. Mér er það ekki kunnugt, að Sigfús Blön- dal hafi verið i stjórn Islendingafélagsins, en hitt veit ég, að væri Jeitaö til hans í þágu þess, átti hann mjög annríkt, ef neitaði hann að veröa við hón þess. Félag íslenzkra stú- denta mun hafa veriö lionum hugleikiö, enda var hann meðstofnandi þess og félagi þar síð- an, og kjörinn heiðursfélagi þess. Meðan Bókmenntafélagið starfaði hér, átti hann uin langt skeið sæti í stjórn þess, og þegar deild þess íluttist til Islands 1911 og Bogi Melsteð stofnaði Fræðafélagið 1912, gerðist Sigfús Blöndal félagi þess. Eftir aö Finnur Jóns- son féll frá, tók Sigfús Blöndal sæti í stjórn 10

x

Heima og erlendis

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima og erlendis
https://timarit.is/publication/1100

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.