Fagnaðarboði - 01.03.1949, Page 4

Fagnaðarboði - 01.03.1949, Page 4
4 FAGNAÐARBOÐI Sæll eða ekki sæll Sæll er sá, er afbrotin eru fyrirgefin, synd lians hulin. Sálm. 32, 1. Eg hefi í síðasta blaði reynt í sem fæstum orð- um að gera grein fyrir hversu Drottinn hefir ver- ið mér óverðugri náðugur. Hann bjó mér frelsi á meðan ég var enn ó- myndað efni, leitaði að mér og laðaði mig til sín, um leið og ég gat farið að greina gott frá illu, til þess að ég mætti njóta frelsisfagnaðar Hans barna. Hvernig Hann svo var mér umburðar- lyndur, þá ég ekki náði í trú og auðsveipni að höndla þann sigur yfir syndinni, sem Hann hafði áunnið mér, með pínu sinni og dauða. Þá er Hann hafði látið mig finna sig og kallað mig til þjónustu, en ég ekki skilið hvað til friðar heyrði og því tapað aftur þeim blessaða frið, sem mér hafði hlotnast og lent í myrkri örvænt- ingar og vonleysis. Hversu Drottinn þá gaf mér á ný að gleðjast í Honum, fyrir boðun Orðsins hjá Hjálpræðishernum. Eg var þar um nokkurt skeið og minnist margra blessunarríkra stunda frá samfélaginu um Orð Drottins. Einnig er ég var úti á meðal ókunnugra í því skyni að bera Drottni vitni. Eg varð mjög alvarlega sjúk og lá rúmföst um langan tíma. Eg hafði þá ekki þekkingu á öðru en að leita manna hjálpar. — Mér var ekki orðið ljóst að samkvæmt Guðs Orði er manna hjálp fánýt. Það var talið algjörlega vonlaust að ég fengi heilsu, en ég vonaði þrátt fyrir það á náð Drott- ins mér til handa. Lofað veri Drottins Nafn. Sú von lét sér ekki til skammar verða. Það var einmitt um þetta leyti, sem Drottinn fór að bera sjálfum sér vitni með því að lækna sjúka fyrir bæn og handayfirlagningu iærisveins síns, Sigurðar Sigvaldasonar. Mér var sagt frá því og ég bað hann að bera mig fram í bæn til Drottins. Drottinn heyrði bænina og læknaði mig. Lofað veri Hans blessaða Nafn. Þeim sem náin kynni höfðu af sjúkleika mín- um var ljóst að lækning mín var kraftaverk, sem þeir og játuðu. Nú þegar ég á svo undursamlegan hátt var orðin heilbrigð, þráði ég að taka virkan þátt í þjónustu Drottins og gjörði það eftir því sem ég hafði aðstöðu til, en saknaði þess að eiga ekki ákveðið andlegt samfélag. Sigurður Sigvaldason hafði komið nokkrum sinnum heim til okkar og á fleiri heimili, sem ég umgekkst, til að bjóða okkur til samkomu þar sem hann vildi flytja okkur opinberun Drottins Jesú Krists í Heilögum Anda. Þrátt fyrir að ég hafði hlotið lækningu frá dauða meini fyrir bæn hans, var ég samt treg til að taka upp krossinn. Þá er hann fór að hafa samkomur að stað- aldri á Austurgötu 6 varð ég sannfærð um að það var aðeins um tvent að velja fyrir mig. Annað- hvort að sinna þeim og hafa möguleika til að þjóna Drottni eða sinna þeim ekki og þar með sleppa allri þjónustu við Drottinn. Eg vil lofa Drottinn fyrir, að Hann veitti mér náð, til að þiggja Hans val, mér til handa, og hlýða á þann sem Hann sendi. Því Jesús sagði: Sannlega, sannlega segi ég yöur: hver sem veitir viötöku þeim, er ég sendi, sá veitir mér viðtöku, en sá sem veitir mér viötöku, veitir Honum viðtöku sem sendi mig. Jóh. 13, 20. Mannleg orð verða of fátæk til að lýsa þeirri auðlegð blessunar, friðar og gleði, sem opinber- un Ritninganna hefir í för með sér, þegar Heilagi Andinn opnar dýrð kærleikans. Eg fann brátt að þetta var Guðs gjöf til mín og mátti því enga samkomu missa, því sann- arlega er það kærleikurinn að Drottinn með Orði sínu og Anda brýtur niður allt sem ekki stenzt, til þess að uppbyggja það sem stenzt, og ég mátti játa með Davíð, þrátt fyrir að ég vildi vera Drottins, þá hefðu margvíslegar yfirsjónir orðið mér yfirsterkari. En lofaður veri Drottinn sem ekki hafði af- höggvið mig, en fyrirgefið mér afbrot mín, og gefið mér sæti við sitt nægtaborð náðarinnar. Síðan hefir Drottinn sannnað sig meir og meir til mín í andlegri blessun og líkamlegri lækningu. Sæll er sá sem syndirnar eru fyrirgefnar, en enn þá er meira að hljóta.

x

Fagnaðarboði

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fagnaðarboði
https://timarit.is/publication/1103

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.