Fagnaðarboði - 01.03.1949, Qupperneq 5
FAGNAÐARBOÐI
5
Kristur
Faðir, ég vil, að það sem þú gafst
mér, — að einnig þeir séu hjá mér
þar sem ég er, til þess að þeir sjái
dýrð mína, sem þú hefir gefið mér;
því að þú hefir elskað mig áður en
heimurinn var grundvallaður.
Jóh. 17, 2Jj.
I fylling tímans samkvæmt fyrirheitum Guðs
kom Jesús Kristur frá fílabeinshöll Himnaríkis,
þar sem Hann frá eilífð naut fullkominnar al-
sælu, hjá sínum himneska Föður, sem eitt með
Guði, niður til vor kærleikslausra, saurugra
syndara, sem ekki þekktum vort ætterni né upp-
runa, til að frelsa oss frá því að deyja í syndum
vorum og rísa upp til eilífrar andstyggðar.
Hann kom til að leiða oss frelsaða fyrir sinn
kraft, inn til hinnar unaðslegu ávaxta vegsemd-
ar.
I stað þeirrar gleði er Hann átti kost á, valdi
Hann þjáningarnar, kom og gjörðist mönnum lík-
ur. Tók á sig vora auðvirðilegu eymdarmynd og
gjörðist maður. Fæddur undir lögmáli, til að
Eins eruð þér nú hryggir í lund, en
ég mun sjá yður aftur, og hjarta yðar
mun fagna, og enginn mun talca fögn-
uð yðar frá yður. Og á þeim degi mun-
uð þér ekki spyrja mig neins. Sann-
lega, sannlega segi ég yður: Hvað sem
þér biðjið Föðurinn um, það mun
Hann veita yður í mínu Nafni. Hingað
til hafið þér einskis beðið i mínu
Nafni; biðjið, og þér munuð öðlast, til
þess að fögnuður yðar verði fullkom-
inn. Jóh. 16, 22—2Jj.
Ætti ég óverðug að hljóta samkvæmt mínum
ófullkomleika, þá hlyti ég ekki neitt af þeim
gæðum, sem Drottinn hefir búið mér, en nú má
ég hljóta og njóta samkvæmt Hans fullkomnaða
verki.
Það gefur huggun og örugga von.
Salbjörg Eyjólfsdóttir
fullnægja öllu Guðs réttlæti, sem mönnunum
reyndist ómögulegt að uppfylla.
Þannig kom Kristur frá allri vegsemd Himna-
ríkis og gekk hér um holdi klæddur, án þess þó
að hafa nokkurs staðar höfði sínu að að halla og
auðsýndi oss sekum mönnum, hinn undraverða
kærleika.
Hann átti þó aðeins afturkvæmt til sinnar
fyrri vegsemdar, að Hann holdi klæddur, full-
komnaði það verk, sem Faðirinn fékk Honum
að leysa af hendi. Að frelsa synduga menn undan
Satans valdi. Að sigra hann í réttlátum dómi og
að engu gjöra hans ógnarveldi.
Því ekki gat Kristur snúið aftur til dýrðar
sinnar, án þess að hafa sigrað, þá hefði Guðs-
ríki ekki opinberast.
En eftir að Kristur reis upp í holdi, var Hann
sigurvegarinn yfir öllum völdum og tignum þessa
heims og annars.
Upprisusigur Krists, leiddi í ljós, að Satan var
að fullu sigraður, en að Kristi heyrði til allt
vald á himni og jörðu.