Fagnaðarboði - 01.03.1949, Blaðsíða 6

Fagnaðarboði - 01.03.1949, Blaðsíða 6
6 FAGNAÐARBOÐI O Ottist Guð Óttist Guð og gefið Honum dýrð, því að komin er stund dóms Hans, og til- biðjið þann, sem gjört hefir himininn og jörðina og hafið og uppsprettur vatnanna. Op. lý, 7. Ótti Drottins er lífslind. Orðsk. lý. 27. Sá, sem óttast Drottinn, ber ávöxt Honum til dýrðar, með því hann varðveitir Hans Orð, en að því vaxtrar takmarki hafa allir hinir heilögu verið að keppa eftir, að gefa Guði dýrðina með öllu lífi og limum, svo að þeir mátu allt sem sorp hjá því að útbreiða dýrð Guðs. Hinn eilífi Fagnaðarboðskapur er unaðslegur hjörtum þeirra, því þeir þekkja náð Guðs í Jesúm Kristi er leysti þá frá stund dóms Hans. og leiddi þá inn í eilíft frelsi Guðs barna, og bjó þeim sæti sér við hægri hlið, þerrar öll tár þeirra, og veitir þeim eilífa hvíld frá erfiði þeirra, því verk þeirra fylgja þeim, þau voru í Guði gjörð. Þeir eru vott- ar Fagnaðarerindisins allt til enda veraldarinn- ar, öllum sem á það hlýða. Einnig til þessarar kynslóðar er boðskapurinn . þessi. Óttist Guð. Það ætti að vekja ótta hjá öllum er heyra þegar Guðs Orðið boðar dóminn yfir verkum mannanna, hugsunum þeirra og orð- um, því ekki getur neitt dulist fyrir augliti Hans er allt hefir skapað og gjört, þess vegna tilheyrir Honum öll þjónustan og tilbeiðslan, því frá Hon- um eru allar nægtir náðarinnar útgengnar. Hann hefir opnað uppsprettu kærleikans í fyrirgefandi náð Drottins Jesú Krists, er Hann gekk undir allan dóm þjóða, tungna og kynkvísla og sætti þær við Föðurinn með Blóði sínu, út- heltu á krossinum, svo að allir þeir, sem á Hann trúa geti sameiginlega glaðst og tilbeðið frammi fyrir Almáttugum Guði í lofgjörð og þakkar- gjörð því þeir eiga frið við Guð fyrir Jesúm Krist. En allir þeir sem ekki trúa ónýta ráð Guðs sér til handa, en þrátt fyrir það leitar náðar Orðið að þeim allt til síðustu stundar ef mögu- legt væri að hinn eilifi Fagnaðarboðskapur fengi rúm í hjörtum þeirra og þeir snúi sér og lifi. Mikill er Guð í miskunn og náð, til mannanna rennur Hans konungleg dáð, Hann talar og líknar og leysir öll bönd. Hann leiðir oss örugt á friðarins strönd. Hálldóra S. Einarsdóttir. Og Jesús kom til þeirra, tálaði við þá og sagði: Allt váld er mér gefið á himni og jörðu. Farið því og kristn- ið állar þjóðir, skírið þá til Nafns Föðurins og Sonarins og hins Heil- aga Anda, og kennið þeim að hálda allt það, sem ég hefi boðið yður. Og sjá, ég er með yður alla daga állt til enda veraldarinnar. Matt. 28.18-20. Fyrir það að Kristur sigraði holdi klæddur, undirorpinn freistingum þess, yfir allar tignir og völd, ávann Hann öllu holdi eilíft líf, og aðgang að hinum eilífu Föðurhúsum kærleikans. Þar sem Kristur er sigurvegarinn og hefir allt valdið og boðorð Hans er að kristna, allar þjóðir með því að skíra þær í Nafni Heilagrar Þrenn- ingar og kenna þeim að gjöra Guðs vilja, þá er það fagnaðarefni að fá tækifæri til að íhuga kenningar Hans. Eitt af því sem kristninni fylgir frá upphafi er skírnin. Sjálfur Guð bauð Jóhannesi fyrir- rennara Fagnaðarerindisins, að skíra. Hann hélt sig þar sem vatn var mikið, svo að hann gæti framkvæmt skírnina eftir Guðs vilja. Jesús Kristur, sem alls staðar er hin full- komna fyrirmynd, gengur sjálfur á undan, til að fullnægja öllu réttlæti út í Jórdan, til að láta skírast af Jóhannesi og sýnir með því, að þannig ber oss einnig að sinna skírninni. Enda bauð Hann lærisveinum sínum að skíra þá sem við trúnni tóku. Vér erum því greftraðir með Honum fyrir skírnina til dauðans, til þess að eins og Kristur var uppvakinn frá dauðum fyrir dýrð Föðurins, svo skxdum vér og gaxiga í exidurnýung lífsins. Róm. 6, ý. Upp frá því þarf hinn endurfæddi maður ekki framar að rekja ætt sína til hinnar föllnu sköp- unar, heldur eins og við teljum ártalið frá Kristi mættum einnig telja ætt vora og uppruna frá því við gengum Honum á hönd og létum frelsast. Einar Einarsson

x

Fagnaðarboði

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fagnaðarboði
https://timarit.is/publication/1103

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.