Fagnaðarboði - 01.03.1949, Qupperneq 8

Fagnaðarboði - 01.03.1949, Qupperneq 8
FAGNAÐARBOÐI Leitið Drottins í bæn En svo bar við, er Hann var á stað nokkrum að biðjast fyrir, að einn af lœrisveinum Hans sagði við Hann, þá er Hann var hættur: Herra, kenn þú oss að biðja, eins og Jóhannes kenndi lærisveinum sínum. En Hann sagði við þá: Er þér biðjist fyrir þá segið: Faðir, helgist Nafn þitt, komi ríki þitt, gef oss dag hvern vort daglegt brauð; og fyrirgef oss syndir vorar. Lúk. 11, l-J^. Jesús Kristur kenndi lærisveinum sínum að biðja Guð. Jesús var sjálfur iðulega á bæn, til síns himneska Föðurs og lagði ríkt á við læri- sveina sína að þeir skildu biðja og vera stöðugir í bæninni til Drottins. Og ég segi yður: Biðjið, og yður mun gefast; leitið og þér mUnuð finna; kný- ið á, og fyrir yður mun upplokið verða Lúk. 11, 9. Orð Drottins kennir oss að biðja og ef við viljum vera eftirbreytendur Jesús Krists, þá skulum við biðja til Drottins stöðuglega í Nafni Frelsara vors Jesú Krists, sem allt vill veita þeim, sem biðja Hann og þrá samfélagið við Hann. Það er svo gott að eiga Jesús að vin, sem alltaf er fús að veita sínum lærisveinum, það sem þeir biðja um í Hans Nafni. bæn síns útvalda þjóns. Eg var með bólgu í brjósti, sem ágjörðist mjög. Eg hafði þrautir í því, sem lögðu út í handlegginn. Þetta virtist vera mjög alvarlegt. Þá fór ég og bað um fyrir- bæn. Lofaður sé Drottinn Jesús. Hann heyrði og bænheyrði og læknaði mig. Bólgan og þrautirnar véku fyrir mætti benja Hans. Fyrir Hans benjar urðum vér heilbrigðir. Jes. 53, 5. Þessari náð fæ ég að þreifa á í hvert sinn er eitthvað verður að mér. Eg vil lofa Drottins Heilaga Nafn, sem öllum nöfnum er æðra og öllum ber sáluhólpnum fyrir að verða og þakka náð Hans mér auðsýnda, svo óverðug sem ég er. Hans er mátturinn og dýrðin. Guðný Jónsdóttir. Svo er það verk hvers og eins að varðveita og vitna um hvað hann hefir höndlað með bæn til hins eilífa Drottins og Frelsara vors Jesú Krists, sem gefur fullvissuna um bænheyrslu Guðs, ef beðið er í trú, af einlægu hjarta, um náð Hans og miskunn. Hann segir: En hver faðir yðar á meðal mun gefa syni sínum stein, er hann bæði um brauð? Lúk. 11,11. Vissulega gefur Jesús góðar gjafir þeim, sem biðja og eru fúsir að taka upp krossinn og fylgja Honum eftir og þiggja Hans heilaga Blóð, sem rann út á krossinum til að hreinsa af allri synd. Fyrir náð, var bænin það sigurafl, sem opn- aði hjarta mitt, svo Jesú gæti gengið þar inn og gjört sín kærleiksverk, sem sælt er að þiggja og njóta, í stöðugu samfélagi við Frelsara sinn og Drottinn. Hvernig fæ ég lofað og vegsamað minn Guð fyrir Hans náð og miskunn mér til handa, nema að biðja og biðja meira, því ómælt vill Hann gefa. Drottinn gefi öllum, sem Orð Hans heyra náð til að krjúpa við fætur Jesú og biðja að Hans Blóð megi hreinsa þá af allri synd. Þú munt vissu- lega komast að því, að þú ert að gjöra rétt í að leita Drottins og þiggja Hans góðu gjafir, sem veita þér frelsi og eilíft líf. Bæn af iðrandi hjarta hýr, hún er fyrir Guði metin dýr; Herrann Jesú á hverri tið henni gaf jafnan andsvör blíð. H. P. Frímann Ingvarsson. Almennar samkomur boSun Fagnaðarerindisins Austurgötu 6 — Hafnarfirði. Sunnudaga kl. 2 og 8 e. h. — Þriðjudaga kl. 8 e. h, Fimmtudag kl. 8 e. h. — Laugardaga kl. 8 e. h. Fagnaðarboði kemur út þrisvar á ári 8 bls. Verði 1 kr. blaðið. Þeir, sem óska eítir að fá blaðið sent, sendi afgreiðslunni nöfn sín og heimilsfang. Gjalddagi blaðsins er fyrir áramót. 2. árg. 3. tbl. 1949. Gefið út af Sjálfseignarstofnuninni Austurgötu 6, Hafnarfirði, sími 9075. Afgreiðsla á sama stað. Ritnefnd: Einar Einarsson, Frímann Ingvarsson, ögmundur Jónsson.

x

Fagnaðarboði

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fagnaðarboði
https://timarit.is/publication/1103

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.