Víkurfréttir


Víkurfréttir - 12.01.2012, Blaðsíða 1

Víkurfréttir - 12.01.2012, Blaðsíða 1
vf.is Metan er innlendur og umhverfisvænn orkugjafi sem er helmingi ódýrari en bensín. Nýttu þér kosti metans með Volkswagen. K. Steinarsson – Njarðarbraut 13 420 5000 - heklakef@heklakef.is Das Auto. TM Opið allan sólarhringinn Fitjum NÝTT Morgunverðar-matseðill Aðeins í boði áSubway Fitjum 14. tölublað • 32. árgangur • Fimmtudagurinn 7. apríl 2011 Mjódd - Salavegur - Hverafold - Akureyri - Höfn - Grindavík - Reykjanesbær Skráðu þig á póstlistann á www.netto.is 989kr/stk. Tilboðsverð! 339kr/stk. Tilboðsverð! Easy ÞvoTTaEfni aloE vEra 2.7 kg Easy MýkingarEfni 2 l | www.flytjandi.is | sími 525 7700 | VIÐ ERUM DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ VÖRUR UM ALLT LAND Víkurfréttir ehf. Grundarvegur 23 - 260 Reykjanesbær Sími 421 0000 - Póstur: vf@vf.is Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09-17 Það er háspenna í körfuboltanum í Reykjanesbæ þessa dagana. Keflavík og KR eigast við í undan- úrslitum Iceland Express-deildar karla í körfuknattleik og staðan í viðureign liðanna er 2:2. Oddaleikur verður í viðureign liðanna í KR-heimilinu í Reykjavík í kvöld. Spennan er ekki minni í úrslitaviðureign Keflavíkur og Njarðvíkur í kvennaboltanum. Þar er staðan reyndar orðin 2:0 fyrir Keflavík eftir tvo æsispennandi háspennuleiki. Keflavíkurstúlkur geta orðið Íslandsmeistarar kvenna með sigri á Njarðvíkurstúlkum í Keflavík annað kvöld, föstudagskvöld. VF-mynd: HBB Æsispennandi körfuknattleikir - sjá nánar á bls. 23 Víkurfréttir Grundarvegur 23, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09-17 Auglýsingasíminn er 421 0001 F i m m t u d A G u R i n n 1 2 . J A n Ú A R 2 0 1 2 • 2 . t ö l u b l A ð • 3 3 . á R G A n G u R Holtsgötu 52 - 260 Reykjanesbæ s. 420 5000 - Fax: 421 5946 Þrettándagleði í Reykjanesbæ Jólin voru kvödd í Reykjanesbæ sl. föstudagskvöld með þrettándafagnaði. Þar voru álfar, púkar og tröll í bland við bæjarbúa á öllum aldri. Söngur, gleði og brenna voru á dagskránni sem lauk svo með flottri flugeldasýningu Björgunarsveitarinnar Suðurnes. Ljósmyndari Víkurfrétta var á staðnum með myndavélina og tók meðfylgjandi mynd en fleiri myndir má sjá á vf.is. Mikið a gera í ófærð og óve ri Mikið hefur að gera hjá björgunarsveitum okkar Suðurnesjamanna síðustu daga og vikur í verkefnum vegna veðurs og ófærðar. Fjölmörg útköll hafa borist vegna aðstoðar við fólk sem var fast í ófærð bæði innanbæjar og á þjóðvegum Suðurnesja. Þá tók þakjárn að fjúka í óveðri á þriðjudaginn en þá var meðfylgjandi mynd tekin í Garðinum af Ægismönnum. „Það hafa aldrei verið jafn margar heimsóknir hingað og nú í desember,“ sagði Hallbjörn Sæmundsson, eigandi jólahúss barnanna við Túngötu 14 í Keflavík en hann notaði síðustu helgi til að taka niður jólaskreytingar á húsi sínu. Túngata 14 hefur undanfarin ár fengið þessa útnefningu hjá Jólanefnd Reykjanesbæjar. Hallbjörn segist hafa afar gaman af þessu en hús hans stendur svo sannarlega undir nafni í jólamánuðinum. Hallbjörn segist vera mun lengur að setja skrautið allt upp en að taka það niður. Hann segir að það hafi verið stöðug traffík og mikið af börnum hafi komið og kíkt á jólahúsið. „Það má segja að þetta sé hálfgert áhugamál hjá manni en þetta er þó í fyrsta skipti sem ég bætti ekki neinu við frá árinu á undan. Ég er ekki viss um að ég komi meiru fyrir,“ sagði jólakallinn við Túngötuna. Vilja fjölga sjómönnum í Grindavík Grindavík er sem kunnugt er ein stærsta verstöð landsins, en bærinn er þriðja af lahæsta höfn landsins. Þaðan gera út fjölmargir bátar og sjómenn eru vel á þriðja hundrað talsins. Á nýju ári hafa bæjarstjóri og upplýsinga- og þróunarfulltrúi heimsótt frystitogara og línubáta í grindvíska flotanum til þess að kynna sjómönnum kosti þess að búa í Grindavík og freista þess að fjölga sjómönnum í bænum. Um þriðjungur skipverja á grindvískum bátum eru búsettir í Grindavík og því er eftir miklu að slægjast. Að sögn Róberts Ragnarssonar bæjarstjóra hafa þeir fengið mjög góðar móttökur um borð í skipunum og sjómennirnir verið áhugasamir og spurt um ýmislegt, m.a. um ýmsa þjónustu í bænum, atvinnumöguleika fyrir maka, fasteignaverð, lóðaverð og ýmislegt fleira. Orkustofnun rannsakar heitt og kalt vatn á Keilisnesi Orkustofnun hefur lagt fram bréf í bæjarráði Sveitarfélagsins Voga þar sem óskað er umsagnar vegna rannsóknarleyfis á Keilisnesi. Bæjarráð gerir ekki athuga- semdir fyrir sitt leyti við veitingu rannsóknarleyfis á heitu og köldu vatni á Keilisnesi. Hörður Harðarson gerir við það athugasemd að í umsókninni er vitnað í samning mil l i Sveitarfélagsins Voga og ríkisins sem ekki er til. ›› Vogar: ›› Grindavík: Fr umraun hljómsveitarinnar Of Monsters And Men, My Head is an Animal, er meðal þeirra 10 íslensku platna sem hlustendur og starfsmenn Rásar 2 völdu þær bestu á árinu. Platan hafnaði í 5. sæti en sú plata sem hlustendur töldu bestu íslensku plötu ársins var plata Mugison, Haglél. Söngkona sveitarinnar, Nanna Bryndís kemur úr Garðinum eins og flestir vita og ljóst að Garðbúar eru að gera það gott um þessar mundir, með heimamenn í fjármálaráðuneytinu og í vinsælustu hljómsveit landsins. My Head is an Animal ein af plötum ársins Helgarvinna að taka niður jólahús barnanna

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.