Víkurfréttir - 12.01.2012, Page 1
vf.is
Metan er innlendur
og umhverfisvænn
orkugjafi sem er
helmingi ódýrari
en bensín.
Nýttu þér kosti
metans með
Volkswagen.
K. Steinarsson – Njarðarbraut 13
420 5000 - heklakef@heklakef.is
Das Auto. TM
Opið allan
sólarhringinn
Fitjum
NÝTT
Morgunverðar-matseðill
Aðeins í boði áSubway Fitjum
14. tölublað • 32. árgangur • Fimmtudagurinn 7. apríl 2011
Mjódd - Salavegur - Hverafold - Akureyri - Höfn - Grindavík - Reykjanesbær Skráðu þig á póstlistann á www.netto.is
989kr/stk.
Tilboðsverð!
339kr/stk.
Tilboðsverð!
Easy
ÞvoTTaEfni
aloE vEra
2.7 kg
Easy
MýkingarEfni
2 l
| www.flytjandi.is | sími 525 7700 |
VIÐ ERUM DAGLEGA Á FERÐINNI
MEÐ VÖRUR UM ALLT LAND
Víkurfréttir ehf.
Grundarvegur 23 - 260 Reykjanesbær
Sími 421 0000 - Póstur: vf@vf.is
Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09-17
Það er háspenna í körfuboltanum í Reykjanesbæ þessa dagana. Keflavík og KR eigast við í undan-
úrslitum Iceland Express-deildar karla í körfuknattleik og staðan í viðureign liðanna er 2:2.
Oddaleikur verður í viðureign liðanna í KR-heimilinu í Reykjavík í kvöld. Spennan er ekki minni
í úrslitaviðureign Keflavíkur og Njarðvíkur í kvennaboltanum. Þar er staðan reyndar orðin 2:0
fyrir Keflavík eftir tvo æsispennandi háspennuleiki. Keflavíkurstúlkur geta orðið Íslandsmeistarar
kvenna með sigri á Njarðvíkurstúlkum í Keflavík annað kvöld, föstudagskvöld. VF-mynd: HBB
Æsispennandi
körfuknattleikir
- sjá nánar á bls. 23
Víkurfréttir
Grundarvegur 23,
260 Reykjanesbær
Sími: 421 0000
Póstur: vf@vf.is
Afgreiðslan er opin
virka daga kl. 09-17
Auglýsingasíminn
er 421 0001
F i m m t u d A G u R i n n 1 2 . J A n Ú A R 2 0 1 2 • 2 . t ö l u b l A ð • 3 3 . á R G A n G u R
Holtsgötu 52 - 260 Reykjanesbæ
s. 420 5000 - Fax: 421 5946
Þrettándagleði í Reykjanesbæ
Jólin voru kvödd í Reykjanesbæ sl. föstudagskvöld með þrettándafagnaði. Þar voru álfar, púkar og tröll í bland við bæjarbúa á öllum aldri. Söngur, gleði og brenna voru á dagskránni sem lauk
svo með flottri flugeldasýningu Björgunarsveitarinnar Suðurnes. Ljósmyndari Víkurfrétta var á
staðnum með myndavélina og tók meðfylgjandi mynd en fleiri myndir má sjá á vf.is.
Mikið a gera í ófærð og óve ri
Mikið hefur að gera hjá björgunarsveitum okkar Suðurnesjamanna síðustu daga og vikur í verkefnum vegna veðurs og ófærðar. Fjölmörg útköll hafa borist vegna aðstoðar við fólk sem
var fast í ófærð bæði innanbæjar og á þjóðvegum Suðurnesja. Þá tók þakjárn að fjúka í óveðri á
þriðjudaginn en þá var meðfylgjandi mynd tekin í Garðinum af Ægismönnum.
„Það hafa aldrei verið jafn margar
heimsóknir hingað og nú í desember,“
sagði Hallbjörn Sæmundsson, eigandi
jólahúss barnanna við Túngötu 14 í
Keflavík en hann notaði síðustu helgi
til að taka niður jólaskreytingar á húsi
sínu. Túngata 14 hefur undanfarin ár
fengið þessa útnefningu hjá Jólanefnd
Reykjanesbæjar.
Hallbjörn segist hafa afar gaman af þessu
en hús hans stendur svo sannarlega undir
nafni í jólamánuðinum. Hallbjörn segist
vera mun lengur að setja skrautið allt
upp en að taka það niður. Hann segir að
það hafi verið stöðug traffík og mikið af
börnum hafi komið og kíkt á jólahúsið.
„Það má segja að þetta sé hálfgert áhugamál
hjá manni en þetta er þó í fyrsta skipti sem
ég bætti ekki neinu við frá árinu á undan.
Ég er ekki viss um að ég komi meiru fyrir,“
sagði jólakallinn við Túngötuna.
Vilja fjölga
sjómönnum í
Grindavík
Grindavík er sem kunnugt er ein stærsta verstöð
landsins, en bærinn er þriðja
af lahæsta höfn landsins.
Þaðan gera út fjölmargir bátar
og sjómenn eru vel á þriðja
hundrað talsins.
Á nýju ári hafa bæjarstjóri og
upplýsinga- og þróunarfulltrúi
heimsótt frystitogara og línubáta
í grindvíska flotanum til þess að
kynna sjómönnum kosti þess að
búa í Grindavík og freista þess
að fjölga sjómönnum í bænum.
Um þriðjungur skipverja á
grindvískum bátum eru búsettir
í Grindavík og því er eftir miklu
að slægjast.
Að sögn Róberts Ragnarssonar
bæjarstjóra hafa þeir fengið
mjög góðar móttökur um borð
í skipunum og sjómennirnir
verið áhugasamir og spurt um
ýmislegt, m.a. um ýmsa þjónustu
í bænum, atvinnumöguleika
fyrir maka, fasteignaverð,
lóðaverð og ýmislegt fleira.
Orkustofnun
rannsakar heitt
og kalt vatn á
Keilisnesi
Orkustofnun hefur lagt fram bréf í bæjarráði
Sveitarfélagsins Voga þar sem
óskað er umsagnar vegna
rannsóknarleyfis á Keilisnesi.
Bæjarráð gerir ekki athuga-
semdir fyrir sitt leyti við veitingu
rannsóknarleyfis á heitu og
köldu vatni á Keilisnesi.
Hörður Harðarson gerir við það
athugasemd að í umsókninni
er vitnað í samning mil l i
Sveitarfélagsins Voga og ríkisins
sem ekki er til.
›› Vogar:
›› Grindavík:
Fr umraun hljómsveitarinnar Of Monsters And Men, My Head is an
Animal, er meðal þeirra 10 íslensku platna
sem hlustendur og starfsmenn Rásar 2
völdu þær bestu á árinu. Platan hafnaði í 5.
sæti en sú plata sem hlustendur töldu bestu
íslensku plötu ársins var plata Mugison,
Haglél.
Söngkona sveitarinnar, Nanna Bryndís
kemur úr Garðinum eins og flestir vita
og ljóst að Garðbúar eru að gera það gott
um þessar mundir, með heimamenn
í fjármálaráðuneytinu og í vinsælustu
hljómsveit landsins.
My Head is an
Animal ein af
plötum ársins
Helgarvinna að taka
niður jólahús barnanna