Víkurfréttir - 19.01.2012, Page 5
5VÍKURFRÉTTIR • FIMMTUdagUrInn 19. janúar 2012
ÁLAGNINGARSEÐLAR
FYRIR ÁRIÐ 2012
Tilkynning til eigenda fasteigna um álagningu ársins 2012
Álagningarseðlar fyrir árið 2012 verða eingöngu birtir rafrænt og ekki sendir út í bréfapósti.
Nú geta fasteignaeigendur nálgast álagningarseðilinn á mittreykjanes.is og á upplýsinga- og þjónustuveitunni www.island.is.
Reykjanesbær mun þó áfram senda einstaklingum 67 ára og eldri álagningarseðil í pósti.
Þeir sem óska eftir að fá álagningarseðilinn sendan í pósti er bent á að senda póst á netfangið thjonustuver@reykjanesbaer.is.
Gjalddagar og greiðsla fasteignagjalda
Gjalddagar fasteignagjalda eru tíu. Fyrsti gjalddagi er 25. janúar 2012 til og með 25. október 2012. Eindagi fasteignagjalda er
þrjátíu dögum eftir gjalddaga og falla öll gjöld ársins í gjalddaga ef vanskil verða. Reynist heildarálögð gjöld 20.000 krónur eða
lægri er gjalddagi gjaldanna 25. janúar 2012.
Athygli er vakin á því að greiðsluseðlar vegna fasteignagjalda eru sendir út rafrænt og birtast í heimabönkum.
Þeir sem vilja fá senda greiðsluseðla er bent á að senda póst á thjonustuver@reykjanesbaer.is.
.
Spennandi vinnustaður í alþjóðlegu umhverfi
SUMARSTÖRF
Hæfniskröfur:
• Góður sölumaður með ríka þjónustulund
• Reynsla af verslunarstörfum
• Hæfni í mannlegum samskiptum
• Gott vald á íslenskri og enskri tungu
Fríhöfnin ehf. er dótturfyrirtæki ISAVIA ohf. og annast rekstur 6 verslana í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Félagið er stærsta
verslunarfyrirtækið í Flugstöðinni með um 120 starfsmenn. Stærstu vöruflokkarnir í verslunum félagsins eru áfengi, tóbak,
snyrtivörur, sælgæti og fatnaður. Fríhöfnin er framsækið fyrirtæki í síbreytilegum ferðaheimi þar sem markmiðið er að
bjóða upp á gæðavörur á góðu verði í samkeppni við verslanir á erlendum flugvöllum.
Fríhöfnin hefur sett sér það markmið að vera ávallt til fyrirmyndar í jafnréttismálum. Í jafnréttisáætlun
félagsins er unnið að því markmiði með margvíslegum hætti og leggur Fríhöfnin áherslu á að jafna hlutfall
kynjanna í sambærilegum stöðum.
Konur jafnt sem karlar eru hvött til að sækja um starfið.
Vegna kröfu um reglugerð um flugvernd þá þurfa umsækjendur að fylla út og skila inn umsókn vegna
bakgrunnsskoðunar, nánari upplýsinga er að finna á heimasíðunni.
Fríhöfnin ehf. óskar eftir að ráða starfsfólk í vaktavinnu í verslun fyrirtækisins á Keflavíkurflugvelli. Leitað
er að glaðlyndum, snyrtilegum og reyklausum einstaklingum sem hafa góða samskiptahæfileika, lipra og
þægilega framkomu, eru sveigjanlegir, geta unnið undir álagi og sýnt frumkvæði í starfi. Starfið felst í sölu
og áfyllingum í verslun. Einnig er óskað eftir starfsfólki á lager en unnið er í dagvinnu og er meirapróf
æskilegt. Aldurstakmark er 20 ár.
Umsækjendur þurfa að geta hafið störf fyrir 1. júní. Umsóknafrestur er til 30. janúar. Nánari upplýsingar
veitir Sóley Ragnarsdóttir, mannauðsstjóri Fríhafnarinnar, soley.ragnarsdottir@dutyfree.is. Umsóknar-
eyðublöð má finna á www.dutyfree.is/atvinna