Víkurfréttir - 19.01.2012, Page 12
12 FIMMTUdagUrInn 19. janúar 2012 • VÍKURFRÉTTIR
Föstudaginn 20. jan. k l. 18.00 opnar Aðalheiður S.
Eysteinsdóttir sýninguna „Á
Bóndadag“ í Listasafni Reykja-
nesbæjar.
Að þessu sinni taka 11 listamenn
auk Aðalheiðar, þátt í því að gera
þorrablótsstemmningu á bónda-
ginn í Reykjanesbæ. Gestalista-
mennirnir eru Arnar Ómarsson
og Sean Millington sem gera
rýmið fyrir viðburðinn, Guð-
brandur Siglaugsson gerir texta-
verk, Gunnhildur Helgadóttir
gerir borðbúnað, Jón Laxdal gerir
fylgihluti, Nikolaj Lorentz Mentze
gerir hljóðfæri og hljómsveitin
Hjálmar verður með uppákomu
við opnun. Á opnuninni flytur
Aðalheiður dansverk og boðið
verður upp á veitingar að þjóð-
legum sið.
Listasafn Reykjanesbæjar hefur í
nokkur ár staðið fyrir kynningu
á íslenskri myndlist í Leifsstöð á
Keflavíkurflugvelli. Í næstu viku
verður hægt að sjá þar skúlptúra
eftir Aðalheiði undir heitinu
„Ferðalangar“ og telst það 35. sýn-
ingin í Réttardagsverkefninu.
Listasafn Reykjanesbæjar er opið
alla daga 12.00-17.00 og um helgar
13.00-17.00, aðgangur er ókeypis.
Sýningin stendur til 18. mars.
- Ítarlegri umfjöllun um
sýninguna á vef Víkurfrétta.
›› Listasafn Reykjanesbæjar í DUUShúsum:
Aðalheiður S.
Eysteinsdóttir
opnar sýningu
á morgun
2 Fimmtudagurinn 14. apríl 2011VÍKURFRÉTTIR
SMÁAUGLÝSINGAR – 421 0009
NÚ GETUR ÞÚ SENT VÍKURFRÉTTUM
SMÁAUGLÝSINGAR Á VEFNUM VF.IS
TIL LEIGU
Ýmsar stærðir og gerðir af her-
bergjum, með eða án húsgagna,
með sameiginlegu eldhúsi og bað-
herbergi eða sér eldhús og bað,
með eða án húsgagna. Aðgangur
að gufubaði og borðtennisborði.
Internet og orka innifalin og all-
ur sameiginlegur kostnaður. Góð
staðsetning og hagstætt leiguverð.
Uppl. í síma 895 8230 og 860 8909.
Stúdioíbúð til leigu á góðum stað
í hjarta Keflavíkur ca 40m2 leigu-
verð kr. 47.500. Ísskápur, örbylgju-
ofn, internet, þvottavél, þurrkari og
kapalsjónvarp.
Laus 1. feb., leigubætur fáanlegar.
Upplýsingar 691 1685 /898 5599
3ja herbergja íbúð
75 þús. á mánuði fyrir utan hita
og rafmagn. 1 mánuður fyrirfram.
Engin gæludýr. Uppl í síma 615
6828 eftir kl. 13:00. Laus 1. feb.
Stór 4ra herbergja íbúð til leigu í
Keflavík, efri hæð, sér inngangur.
Laus strax. Uppl. í síma 421 2896
og 847 8342.
Til leigu reyklaus einstak-
lingsíbúð í miðbæ Keflavíkur.
Hundahald bannað. Sanngjörn
leiga. Uppl. í s. 821 5824.
Íbúð fyrir einstakling eða par
sem er huggulega innréttuð í bíl-
skúr á rólegum stað í Keflavík.
Svefnherbergi, stofa, baðherbergi
og eldunaraðstaða. Aðgangur að
interneti. Leiga 45 þús. á mánuði.
Upplýsingar í síma 848 5389.
Til leigu tveggja herbergja íbúð í
Garði. Íbúðin er 60m2 með sér inn-
gangi. Uppl. í síma 777 4200 eftir
kl. 18:00.
Kirkjur og samkomur:
Föstudaga kl. 20.00
Sunnudaga kl. 11.00
Bænasamkoma þriðjudag kl.
20.00.
Bænastundir þr iðjudaga og
fimmtudaga í hádeginu. Kl. 12.00.
Ókeypis súpa í hádeginu alla föstu-
daga frá kl. 11.30-13.00.
Nk. sunnudag kl. 20.00 sam-
kirkjuleg samkoma í Hvíta-
s u n n u k i r k j u n n i . Þ á t t t a k a
Keflavíkurkirkja, Njarðvíkurkirkja
Hjálpræðisherinn, Útskálakirkja
og Aðventukirkjan.
ÓSKAST
Óska eftir 4ra herb. eða stærra.
Lítil fjölsk. óskar eftir rað/par eða
einbýli til langtímaleigu frá mars/
apríl. arnbjorg27@gmail.com eða
842 2525.
Óskum eftir 3ja herb. íbúð
á jarðhæð frá 1. feb. Erum með kött
og meðmæli. Greiðslugeta: 90 þ.
Vinsamlegast hafið samband í síma
663 6795.
ÝMISLEGT
Búslóðaflutningar og allur al-
mennur flutningur. Er með 20
rúmmetra sendibíl/kassabíl með
lyftu. Uppl. í síma 860 3574 Siggi.
Tek að mér allskonar viðgerðir
á bílum, sláttuvélum. Er með
greiningartölvu til að bilanagreina
margar tegundir bíla. Vanur maður,
20 ára reynsla, sanngjarnt verð!
Uppl. S: 864 3567.
ATVINNA
Atvinna óskast!
Ýmislegt kemur til greina. Er
menntaður málari, hef unnið við
bifvélavirkjun, er með meirapróf
og er liðtækur í smíðum. Uppl.
gefur Leó í síma 692 2551.
TIL SÖLU
Húsgögn til sölu
Gott amerískt hjónarúm, einstak-
lingsrúm, hillusamstæða, eldhús-
borð og ljós selst ódýrt. Upplýs. í
síma 821 5824.
Íbúð fyrir 60+
Til sölu falleg 47 ferm íbúð, laus
strax. Uppl. í síma 846 5471.
www.vf.IS
896 0364
Bói Rafvirki raf-ras.is
Nærri fjögur hundruð manns sóttu glæsilegt þorrablót Keflavíkur í Íþróttahúsi Keflavíkur
sl. laugardagskvöld. Keflvíkingar þjófstörtuðu þorr-
anum sem hefst samkvæmt gamalli hefð um næstu
helgi.
Starfsmenn Réttarins framreiddu ljúffengan þorramat
sem rann ljúft ofan í maga viðstaddra, meira að segja
erlendra körfuknattleiksmanna Keflavíkur sem höfðu
ekki séð svona mat áður. Þeir tóku engu að síður vel
til matarins.
Skemmtidagskrá kvöldins var mjög góð þar sem kefl-
vískir tónlistarmenn og söngvarar héldu uppi þeim
þætti. Dúettinn Eldar sem skipaður er þeim Valdimar
Guðmundssyni og Björgvini Ívari Baldurssyni tók
nokkur lög og síðan kom kór Keflavíkurkirkju og söng
hluta úr svokallaðri U2 messu við mikla hrifningu
gesta. Kórinn flutti síðan sömu messu í beinni útsend-
ingu í útvarpsmessu á RÚV daginn eftir. Breiðbands-
kappinn Rúnar Hannah flutti íþróttaannál og gerði
það vel. Maður kvöldsins var þó veislustjórinn og
Njarðvíkingurinn Jón Björn Ólafsson sem reyndar
á einnig ættir sínar að rekja til Hafna. Jón Björn fór
á kostum og var að flestra mati besta skemmtiatriði
kvöldsins þar sem hann gerði stólpagrín að mörgum
íbúum þessa sveitarfélags.
Að skemmtidagskrá lokinni var stiginn dans fram
eftir nóttu. Meðfylgjandi myndir voru teknar á þorra-
blótinu.
Njarðvíkingur fór á kostum
á þorrablóti Keflavíkur
Halldóra Jóna Guðmundsdóttir og fjölskylda.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur hlýju,
samúð og fallegar kveðjur við andlát og útför okkar
ástkæra eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og langafa
Ingólfs Bárðarsonar,
Kjarrmóa 15, Njarðvík.
Þakkir til Frímúrarabræðra í Sindra, séra Baldurs R. Sigurðssonar
og starfsfólks krabbameinsdeildar Landspítala Hringbraut.
Guð blessi ykkar störf.
Vertu í góðu
sambandi við
Víkurfréttir!
n Auglýsingadeild í síma 421 0001
n Fréttadeild í síma 421 0002
n Afgreiðsla í síma 421 0000