Víkurfréttir - 19.01.2012, Síða 14
14 FIMMTUdagUrInn 19. janúar 2012 • VÍKURFRÉTTIR
AÐ LIFA LÍFINU
Námskeiðið, Að lifa lífinu er ætlað ungu fólki á
aldrinum 18-25 ára en það er hluti af verkefninu
Energí og trú sem Keflavíkurkirkja stendur fyrir.
Markmið þess er að efla þátttakendur í því að mæta þeim áskorunum sem lífið krefst. Þessar ásko-
ranir eru af ýmsum toga. Sumar tengjast peningum, aðrar heilsu og vellíðan og enn aðrar snúast um
það að vera sjálfur í leiðtogahlutverkinu í eigin lí .
Leiðbeinendur eiga það sameiginlegt að hafa mikla reynslu á þeim sviðum sem þeir alla um.
Námskeiðið stendur frá 30. janúar - 28. mars.
Kennt er á mánudögum, þriðjudögum og miðvikudögum frá kl. 10:00 - 13:00.
Skráning stendur yfir hjá hjordis@keflavikurkirkja.is eða í síma 4204300
La u g a r d a g i n n 21. janúar nk.
stendur Ungmenna-
félag Njarðvíkur
f y r i r þ or r ab l ót i
Njarðvíkinga. Eru
það allar deildir
i n n a n f é l a g s i n s
sem koma að fram-
kvæmdinni og hefur undirbún-
ingur staðið í all nokkurn tíma.
Hafa Njarðvíkingar blótað þorr-
ann á fyrsta laugardegi í þorra í
hartnær 70 ár. Fyrst í samkomu-
húsinu Krossinum en síðan í félags-
heimilinu Stapanum eftir að hann
var tekinn í notkun árið 1965 en
félagsheimilið var þá í eigu Ung-
mennafélagsins og Kvenfélags-
ins í Njarðvík. Margir muna eftir
þessum skemmtilegu Njarðvíkur-
blótum þegar Thor-
dersen feðgar fluttu
annál ársins en þeir
gerðu það alltaf á
eftirminnilegan hátt.
Nú hefur hins vegar
ver ið ákveðið að
halda blótið í íþrótta-
húsinu í Njarðvík
í fyrsta skipti sem segja má að sé
aðal samkomustaður Njarðvíkinga
í dag. Fjölbreytt dagskrá verður á
blótinu undir góðri stjórn veislu-
stjóra sem er enginn annar en hinn
háttvísi Örvar Kristjánsson.
Miðasala hefur gengið mjög vel á
blótið en ennþá eru nokkrir miðar
til. Skorað er á alla Njarðvíkinga
og nærsveitarmenn að mæta og
halda á lofti þessari gömlu hefð í
Njarðvíkum.
Rétturinn veisluþjónusta - Hafnargötu 51 - 230 Reykjanesbæ - Sími: 421 8100 - retturinn@retturinn.is
Þorrabakkar, þorraöskjur og þorrablót
Fögnum komu Þorrans með því að
gleðja bóndann með þorraveislu
Auka opnunartími í tilefni þorra:
Opið laugardaginn 21. jan. frá 16:00 - 20:00
Gleðilegan þorra!
www.retturinn.is
Á fundi fjölskyldu- og félags-málaráðs Reykjanesbæjar
á dögunum var gert grein fyrir
því að samþykkt hafi verið að
hefja undirbúning að byggingu
sex íbúða húss fyrir fatlað fólk
í Reykjanesbæ í samstarfi við
Brynju, hússjóð ÖBÍ.
Hjördís Árnadóttir félagsmálastjóri
hjá Reykjanesbæ sagði í samtali við
Víkurfréttir að ekki lægi fyrir hvar
sú bygging myndi rísa og hvenær
hafist yrði handa við framkvæmdir.
Hún segir að gert sé ráð fyrir því að
fatlaðir hafi eins og aðrir val þegar
kemur að búsetu og að fatlað fólk
eigi ekki að þurfa að búa á sam-
býli nema þá í algerum undan-
tekningum.
„Við viljum mæta þessum skil-
yrðum í samstarfi við Öryrkja-
bandalagið sem hefur tekið jákvætt
í að byggja húsnæði en ekki liggur
fyrir hvar það hús yrði. Við höfum
þó óskir um að staðsetningin verði
miðsvæðis í Reykjanesbæ,“ bætti
Hjördís við.
Leikfélag Keflavíkur og leik-félag Fjölbrautaskóla Suður-
nesja,Vox Arena, hafa ákveðið að
leiða saman hesta sína og setja
upp söngleik sem samvinnuverk-
efni í Frumleikhúsinu.
Verið er að skoða leikstjóramál
en ljóst er að margir hafa áhuga.
Í kvöld, fimmtud. 19. janúar kl.
20.00, verður haldinn kynningar-
fundur í Frumleikhúsinu fyrir alla
þá sem áhuga hafa á að taka þátt.
Eina skilyrðið er að vera orðinn 16
ára og hafa áhuga á leikhússtarfi.
Félög þessi unnu síðast saman fyrir
einu og hálfu ári síðan en þá var
sýndur söngleikurinn „Slappaðu
af “ í leikstjórn Valgeirs Skagfjörð.
Meðal verka sem nefnd hafa verið
nú er söngleikur unninn upp úr
myndinni „Með allt á hreinu“
sem Stuðmenn gerðu ódauðlega á
sínum tíma en lög þeirrar myndar
óma enn á öldum ljósvakans. Þá
hafa einnig komið til tals verk eins
og „Footloose“, „Litla hryllings-
búðin“ ofl.
Það mun svo upplýsast á fundinum
í kvöld hvaða verk verður endanlega
fyrir valinu og eins hvaða leikstjóri
verður svo heppinn að fá að vinna
við þessa uppsetningu. Stjórnir
félaganna beggja hvetja alla áhuga-
sama til að koma á fundinn og fá
nánari upplýsingar um það sem
framundan er í leikhúslífi bæjarins.
Undirbúa byggingu
nýs húss fyrir fatl-
aða í Reykjanesbæ
Leikfélag Keflavíkur og
Vox Arena í samstarf
›› Menning og mannlíf:
Bakvörður Keflvíkinga Steven Gerard Dagostino er farinn frá félaginu en leikmaðurinn var með
ákvæði í samningi sínum sem sagði til um að hann
mætti fara ef betra tilboð bærist annars staðar frá.
Nú skömmu fyrir helgi kom slíkt boð frá Spáni og
Dagostino hélt utan á mánudag. Á þessari stundu er
ekki ljóst hvort að Keflvíkingar bæti við sig öðrum
bakverði en Arnar Freyr Jónsson er enn meiddur og
óljóst hvenær hann kemur aftur til leiks. Leikmaður-
inn var búinn að leika ákaflega vel með Keflvíkingum
það sem af er tímabilsins og ljóst að þetta er mikill
missir fyrir liðið sem nú er í 2. sæti deildarinnar ásamt
Stjörnunni. Keflvíkingar taka á móti Grindvíkingum
í kvöld á heimavelli sínum en þar verður væntanlega
hart barist.
Örvar stýrir þorra-
blóti Njarðvíkur
Steven Gerard yfirgefur Keflvíkinga