Víkurfréttir - 13.09.2012, Page 12
FIMMTUDAGURINN 13. SEPTEMBER 2012 • VÍKURFRÉTTIR12
Kveðja frá Dvalar-
heimilum
aldraðra Suður-
nesjum - DS.
Nú hefur Jósefína
Arnbjörnsdóttir,
ætíð kölluð Systa,
kvatt tilveru okkar.
Alltof snemma viljum
við segja, en fáum
litlu um breytt.
Hún Systa kom til starfa á Garð-
vangi í júlí 1986 og hafði því
starfað við umönnun heimilis-
fólksins í 26 ár. Það starf vann hún
af ábyrgð, dugnaði og mikilli til-
litssemi við íbúana. Árið 2003 varð
hún fulltrúi starfsmanna á Garð-
vangi í stjórn DS og átti því 9 ára
setu í stjórninni að baki. Systu var
gott að starfa með. Hún var fylgin
sér og lagði margt gott til hlutanna,
enda þekkti hún aðstæður vel.
Hún var einnig trúnaðarmaður
starfsfólksins um árabil. Systa kom
því að málefnum DS úr fleiri en
einni átt. Samviskusemi var ein af
dyggðum hennar og hún fylgdi fast
eftir skoðunum sínum til hagsbóta
fyrir starfsmenn. Það gerði hún þó
alltaf af lagni og við stjórnendur
DS fundum fljótt að hún vildi leiða
ágreiningsmál farsællega til lykta.
Stjórnendur DS vilja þakka Systu
metnaðarfullt og gott starf í þágu
öldrunarmálanna. Ættingjum
hennar vottum við dýpstu samúð.
Guð blessi minningu Jósefínu
Arnbjörnsdóttur.
Finnbogi Björnsson,
framkvæmdastjóri
Kveðja frá samstarfsfólki
Systa eins og hún var nefnd í
daglegu tali er dáin langt fyrir
aldur fram, sjúk-
dómar og dauðinn
spyrja ekki um stað né
stund, nei - þessu er
þröngvað upp á fólk,
svo þarf að berjast.
Þetta var sannarlega
svona hjá Systu,
sjúkdómur upp-
götvast með öllum
sínum þunga og
grimmd og lagði að velli þessa
hörðu konu á stuttum tíma.
Við samstarfsfólk á Garðvangi
horfum nú á fáum mánuðum
eftir annarri samstarfskonu, þar
sem sama sagan endurtekur sig.
Systa var mikil félagsmálakona
bæði innan og utan vinnustaðar,
hún gegndi m.a. trúnaðarstörfum
á okkar heimilum til hinstu
stundar. Hún var fulltrúi starfs-
manna í stjórn Dvalarheimila
aldraðra Suðurnesjum D.S. og
trúnaðarmaður á Garðvangi fyrir
sitt stéttarfélag, Starfsmannafélag
Suðurnesja. Hún var sauma-/
viðgerðakona okkar hjúkrunar-
heimila og þá kom oft í ljós
hversu lausnarmiðuð Systa var,
með ýmislegt sem tengdist hag-
nýtum hlutum í daglegu starfi.
Fallin er frá hæfileikakona á
mörgum sviðum og var það því
ekki tilviljun, að til hennar var
leitað með eitt og annað, hún
hafði mikla réttlætis- og ábyrgðar-
tilfinningu. Hún átti gott með
mannleg samskipti, ávallt hrein-
skilin og aldrei var lognmolla í
kringum hana. Hún var mikil
skipulagskona, smekkkona og
lét sig hlutina varða. Þessir
hæfileikar ásamt öðrum voru
nýttir um árabil, þar sem hún
hafði m.a. umsjón með hvers-
konar innandyra skreytingum
hér á Garðvangi s.s. á jólum og
páskum. Þá komu líka hennar
skipulagshæfileikar í ljós þegar
ganga þurfti frá hlutunum. Hún
gekk ávallt þannig frá, að enginn
vandi var að koma aftur að hlut-
unum og fyrir allt þetta og meira
til á hún miklar þakkir skildar.
Þegar stilltir strengir bresta
stuna heyrist djúp og þung
svo er þegar sálin besta
sóldraum lífsins kveður ung.
Er sem fyrir dagsól dragi
dimmbrýn skýin hulin mögn,
er í miðju ástarlagi
ægur dauðinn hrópar: - Þögn!
Já, í svipinn sárar vekur
sorgir dauðans koma hér,
en – ef dýpra rök þú rekur,
reynist dauðinn vinur þér.
Hann er sá, er götu greiðir
góðri sál í drottins skaut,
æðri þroska opnar leiðir
eftir skamma stundar þraut
G.G.
Við vottum aldraðri móður, eigin-
manni, börnum, barnabörnum
ásamt allri fjölskyldunni, okkar
dýpstu samúðarkveðjur.
Hvíl í friði kæra samstarfskona.
F.h. starfsfólks á Garðvangi
Aðalheiður Valgeirsdóttir
framkvæmdastjóri hjúkrunar
Dvalarheimili aldraðra
Suðurnesjum ( D.S.)
Jósefína Arnbjörnsdóttir - minning
TIL SÖLU
Hrannargata 6 (Ragnarsbakarí) er til sölu
Hæðin er 328m2 með 20 feta frysti og 10m2 kæli.
Besta útsýni á Suðurnesjum, með byggingarrétti ofan á,
upphitað plan og stór innkeyrsluhurð.
Upplýsingar í síma 897 5755
AÐALFUNDUR
Íslendings ehf verður haldinn í Víkingaheimum
miðvikudaginn 3. október kl. 14:00.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
TÓ
NL
EIK
AR
TÓ
NL
EIK
AR FEÐGARNIR
Guðmundur Kr. Sigurðsson,
tenór og söngvari og
Guðmundur Óskar
Guðmundsson, bassa- og
gítarleikari halda tónleika í
bíósal Duus þann 23. sept.
kl. 18:00 og kl. 20:00.
Ásamt þeim verða nokkrir
gestasöngvarar
Kræsingar & kostakjör
Allt á prjónAnA í nettó!
Garndeildir Nettó | Reykjanesbær | Grindavík | Egilsstaðir | Akureyri | Mjódd | Grafarvogur | Borgarnes
Léttlopi 228 kr
Kræsingar & kostakjör
fædd 30.08. 1956, dáin 31.08 2012
Síðastliðinn föstudag þann 7. september komu þær vin-
konur okkar frá Nesvöllum þær
nöfnurnar Guðrún Emilsdóttir,
Guðrún Finnsdóttir og Guðrún
Greipsdóttir í heimsókn í leik-
skólann Gimli í tilefni af alþjóða-
degi læsis sem í ár bar upp á
laugardaginn 8. september.
Þær nöfnur lásu sögur, fóru með
þulur og kvæði við mikla hrifningu
barna og kennara.
Þess má geta að þetta er fyrsta sam-
verustund yngri borgara á Gimli og
eldri borgara á Nesvöllum á þess-
ari haustönn, í verkefninu Gaman
saman sem staðið hefur yfir í rúm
sex ár. Verkefnið hefur nú þegar
fest sig í sessi sem samfélagslegt
verkefni þar sem kynslóðir miðla
á milli sögum, ljóðum, söng, dansi
og síðast en ekki síst ljúfri nærveru,
virðingu og umhyggju.
Þessar stundir eru alltaf jafn dýr-
mætar og við í leikskólanum Gimli
svo lánsöm að eiga þessar yndis-
legu vinkonur og vini á Nesvöllum
sem alltaf eru tilbúin til að taka þátt
í starfinu með okkur.
Verkefnið Gaman saman hressir,
bætir og kætir unga sem aldna.
Með bestu kveðju,
Karen Valdimarsdóttir leik-
skólastjóri á Gimli
Hús fæst gefins
í Grindavík
Húsnæði á leikvelli sunnan megin við Heiðarhraun í
Grindavík, gamla rólóvellinum,
fæst gefins í því ástandi sem
það er gegn því að viðkomandi
aðili fjarlægi það alfarið á eigin
kostnað innan 30 daga frá afhend-
ingu. Engar teikningar fylgja hús-
næðinu en það er rétt tæpir 50
fermetrar að stærð og þarfnast
viðhalds.
Áhugasamir aðilar sem vilja nánari
upplýsingar og fá að skoða hús-
næðið vinsamlegast hafið samband
við Sigmar Árnason byggingafull-
trúa í síma 420 1100. Hér gildir að
fyrstur kemur - fyrstur fær, segir á
heimasíðu Grindavíkurbæjar.
Brotist inn í
verkfæragám
Lögreglunni á Suðurnesjum var á mánudag tilkynnt um að
brotist hefði verið inn í verkfæra-
gám í Svartsengi. Þegar lögreglu-
menn komu á vettvang reyndist
hafa verið klippt á tvo hengilása
á öðrum af tveimur gámum sem
eru á svæðinu.
Ekki var ljóst hvort einhverju hafði
verið stolið. Þá var búið að eiga við
hengilás á hinum gámnum, en þar
höfðu hinir óprúttnu ekki haft er-
indi sem erfiði, því þeir urðu frá að
hverfa við svo búið.
›› FRÉTTIR ‹‹
Alþjóðadagur læsis
Gaman saman hópurinn