Víkurfréttir - 27.09.2012, Side 4
fimmtudagurinn 27. september 2012 • VÍKURFRÉTTIR4
hilmar bragi, fréttastjóri
vf.is
Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319
Krossmóa 4, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000
Páll Ketilsson, sími 421 0004, pket@vf.is
Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is
Eyþór Sæmundsson, sími 421 0002, eythor@vf.is
Sigfús Aðalsteinsson, sími 421 0001, fusi@vf.is
Víkurfréttir ehf.
Þórgunnur Sigurjónsdóttir, sími 421 0006, thorgunnur@vf.is
Þorsteinn Kristinsson, steini@vf.is, sími 421 0006
Rut Ragnarsdóttir, sími 421 0000, rut@vf.is
og Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, aldis@vf.is
Landsprent
9000 eintök.
Íslandspóstur
www.vf.is, m.vf.is og kylfingur.is
Útgefandi:
afgreiðsla og ritstjórn:
ritstjóri og ábm.:
fréttastjóri:
blaðamaður:
auglýsingadeild:
umbrot og hönnun:
auglýsingagerð:
afgreiðsla:
Prentvinnsla:
uPPlag:
dreifing:
dagleg stafræn Útgáfa:
ritstjórn
RITSTJÓRNARBRÉF
Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið fusi@vf.is. Auglýsingar berist fyrir kl. 17 á þriðjudegi
fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga fer fram á vef Víkur-
frétta, vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á þriðjudögum. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur
blaðið út á miðvikudögum og þá færist skilafrestur auglýsinga fram um einn sólarhring.
Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á vef Víkur-
frétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða aðsendu greinar birtast í prentaðri útgáfu blaðsins.
Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða
á vefsíðum Víkurfrétta.
Gestir sem skipta máli
Um nýliðna helgi var
haldið í Reykjanesbæ
kvennaþing Slysavarna-
félagsins Landsbjargar.
Um 200 konur af land-
inu öllu komu saman
til fundar á Ásbrú og
var það samróma álit
að þingið hafi tekist vel
í alla staði. Þingið var
skipulagt af kvenna-
sveitinni Dagbjörgu í Reykja-
nesbæ og þar á bæ var leitað til
Suðurnesjakvenna til að sjá um
fundarstjórn og hópastarfið. Að
halda svona þing á Suðurnesjum
skiptir gríðarlega miklu máli fyrir
verslun og þjónustu á Suður-
nesjum. 200 manna hópur þarf
mat, gistingu og afþreyingu. Um
komandi helgi verður svo annað
kvennaþing í Reykjanesbæ þegar
um 200 kvenfélagskonur koma til
Reykjanesbæjar á 36. landsþing
Kvenfélagasambands Íslands. Þar
endurtekur sig í raun
pakkinn frá síðustu
helgi. Þessar 400 konur
sem koma til bæjarins á
þessum tveimur helgum
skipta gríðarlega miklu
fyrir samfélagið og skilja
eftir sig milljónir króna í
kaupum á vöru og þjón-
ustu.
Eins og greint er frá á
forsíðu Víkurfrétta í dag er Holly-
wood-stjarnan Ben Stiller nú í
Garðinum með um 200 manna
starfslið að taka upp kvikmyndina
The Secret Life of Walter Mitty. Það
er verkefni sem skilar hundruðum
milljóna inn í íslenskt samfélag
og miðað við umstangið í Garð-
inum þá verða margar milljónir
eftir þar. Kvikmyndaliðið leigir
aðstöðu bæði af sveitarfélaginu
og einnig hefur Ben Stiller lagt
undir sig björgunarstöðina í Garði
fyrir aðstöðu á meðan á tökum
myndarinnar stendur en upptökur
hafa farið fram við höfnina í Garði
og einnig við björgunarstöðina
þar sem tvær þyrlur hafa verið
tíðir gestir síðustu daga. Þá er Ben
Stiller með fiskiskipið Stafnes KE
á leigu en það kemur mikið fyrir
í myndinni.
Garðmenn eru almennt mjög
sáttir við heimsóknina frá Holly-
wood sem setur svip sinn á bæjar-
braginn. Fjölmargir einstaklingar
úr Garði hafa einnig fengið vinnu
við gerð myndarinnar á einn eða
annan hátt. Förðunarmeistari úr
Garðinum lætur leikarana líta vel
út á meðan aðrir aðstoða við leik-
muni og sjá um öryggismál.
Kvenfélagskonurnar, slysavarna-
konurnar og kvikmyndagerðar-
fólkið eru því gestir á Suðurnesjum
sem skipta máli þegar kemur að
því að afla peninga í kassann.
Hilmar Bragi Bárðarson
Fisktækniskóli Íslands fær
viðurkenningu
Þann 20. júlí síðastliðinn fékk Fisk-
tækniskóli Íslands í Grindavík
formlega viðurkenningu mennta-
og menningarmálaráðuneytisins
sem skóli á framhaldsskólastigi.
Þannig hefur margra ára þróunar-
starf fræðsluaðila, sveitarfélaga
og hagsmunaaðila í sjávarútvegi á
Suðurnesjum nú skilað sér í form-
legri viðurkenningu menntamála-
ráðuneytisins og hefur Fisktækni-
skólinn nú sambærilega stöðu
og aðrir framhaldsskólar – nema
hvað áherslan er á grunnmenntun í
sjávarútvegi og tengdum greinum.
Sérskóli á sviði sjávarútvegs
og tengdum greinum
Skólinn er í eigu sveitarfélaga,
fræðsluaðila auk stéttarfélaga og
fyrirtækja í sjávarútvegi á Suður-
nesjum. Fisktækniskólinn hefur
verið í undirbúningi frá 2007 og
hann er fyrsti framhaldsskólinn á
landinu sem hefur að markmiði að
bjóða eingöngu upp á sérhæft nám
á þessu skólastigi. Skólinn hefur
einnig verið öflugur á sviði endur-
menntunar og boðið upp á fjölda
starfstengdra námskeiða. Mark-
mið stofnenda er að auka veg og
virðingu menntunar í sjávarútvegi
ásamt því að auka framboð á starfs-
tengdu námi.
Frá vorönn 2010 hefur skólinn til-
raunakennt hluta námsefnisins
sem verið var að þróa og hafa hátt
í 50 nemendur tekið þátt í þessu
verkefni. Mikil ánægja var með
námið – bæði meðal þátttakenda
og fyrirtækja sem tóku við nem-
endum í starfsþjálfun. Vinnumála-
stofnun kostaði námið framan af
en verkefnið var síðan fært undir
menntamálaráðuneytið árið 2011
sem liður í átaksverkefni fyrir
Suðurnesin. Gerður var sérstakur
samningur um tilraunakennslu
síðla hausts 2011 til tveggja ára.
Þar sem sá samningur lá ekki fyrir
fyrr en flestir skólar höfðu hafið
starfsemi voru færri þátttakendur í
tilrauninni en stefnt var að.
Á grundvelli samnings um tilrauna-
kennslu stunda nú 7 nemendur
nám í skólanum á öðru ári. Stefnt
er að því að taka inn 12 nemendur
í janúar á næsta ári og er byrjað að
innrita fyrir haustið 2013.
Nýjar leiðir í starfsmenntun
Námið er tveggja ára vinnustaða-
tengt grunnnám á sviði veiða (sjó-
mennsku), vinnslu og fiskeldis
samkvæmt viðurkenndri námskrá
og lýkur með framhaldsskólaprófi.
Námið er afar hagnýtt og ljúka
nemendur meðal annars réttinda-
námi til smáskipa, lyftara auk fjöl-
margra hagnýtra áfanga tengdum
sjávarútvegi. Fyrri önn hvers náms-
árs fer fram í skóla og sú síðari á
vinnustað. Námið er þannig bæði
góður valkostur fyrir þá sem vilja
menntun í sjávarútvegi – nýr skóli
styrkja sig á vinnumarkaði og ná í
góða menntun í leiðinni. Skólinn
leggur mikla áherslu á að koma til
móts við áhugasvið og þarfir hvers
nemanda. Reynslan sýnir að góður
félagsandi og jákvætt viðmót er
grundvöllur að góðum árangri og
vellíðan í skóla. Vettvangsferðir og
raunhæf verkefni eru mikilvægur
þáttur í náminu.
Fisktækniskólinn er orðinn mjög
umfangsmikill á sviði endur- og
símenntunar og hafa yfir fimm
hundruð starfsmenn sjávarútvegs-
fyrirtækja um land allt sótt nám-
skeið sem hafa ýmist verið skipu-
lögð af skólanum einum og sér eða
í samstarfi við fræðsluaðila víða
um land.
Mikið framundan
Störf í sjávarútvegi hafa tekið
miklum breytingum síðustu árin
og ólíku saman að jafna þegar
borin eru saman störf í frysti-
húsum í gamla daga og störf í þeirri
háþróuðu matvælaframleiðslu sem
einkennir greinina í dag. Til þess
að mæta þörfum fyrirtækja þarf
sífellt að leita nýrra leiða í menntun
og þjálfun starfsmanna og tekur
skólinn virkan þátt í þeirri þróun.
Unnið er að útfærslu tveggja nýrra
námsbrauta. Önnur brautin er
unnin í samstarfi við MAREL og
miðar að því að þjálfa fólk til starfa
á hinar fjölbreyttu iðnaðarvélar
fyrirtækisins. Hin brautin tengist
gæðastýringu, en mikil eftirspurn
er eftir fólki með þá menntun.
Stefnt er að því að bjóða upp á þetta
nám á næsta ári.
Fisktækniskólinn býður upp á stutt,
skemmtilegt og hagnýtt eininga-
bært nám sem opnar fjölda mögu-
leika í vel launuð störf í sjávarútvegi
auk möguleika á framhaldsnámi að
loknu grunnnámi.
drukkinn og sviptur
á dráttarvél
Lögreglan á Suðurnesjum hafði á mánudagskvöld
afskipti af karlmanni á fimm-
tugsaldri sem ók dráttarvél,
ölvaður og sviptur ökurétt-
indum, eftir Garðvegi.
Maðurinn var að flytja hey-
rúllur og athygli vakti að bæði
dráttarvélin og vagninn voru
ljóslaus að aftan, og enginn
glitmerki á vagninum. Lögreglan
stöðvaði akstur mannsins og
fannst þá rammur áfengisþefur
af honum. Hann var því hand-
tekinn og færður á lögreglustöð.
Festivagninn sem heyrúllurnar
voru á reyndist við athugun
vera óskráður og einnig vantaði
skráningarmerki og baksýnisspegla
á dráttarvélina. Í henni fannst
hálfs lítra flaska af áfengisblöndu.
Kveikt í nýbyggingu
í reykjanesbæ
Eldur var borinn að
rusli í nýbygg-
ingu við Leir-
dal í Reykja-
nesbæ um
nýliðna helgi. Slökkvilið Bruna-
varna Suðurnesja var kallað til
og réð það niðurlögum eldsins.
Ekki varð mikið tjón í eldinum.
Myndin var tekin þegar unnið var
að slökkvistarfi sl. laugardagskvöld.
staðin að hnupli
í leifsstöð
Kona um fimmtugt var staðin að hnupli í 10-11 verslun í
Leifsstöð fyrir fáeinum dögum.
Um var að ræða lítilræði af mat-
vöru, sem konan tók ófrjálsri
hendi. Hún stóð svo við inn-
gang brottfararmegin og gæddi
sér á góssinu þegar lögreglu
bar að. Hún gekkst við því að
hafa tekið umræddan varning,
en þar sem enginn hefði verið
til að afgreiða sig hefði hún
gengið út án þess að borga.
Hún kvaðst gjarnan vilja greiða
fyrir matvælin, en vildi ekki
fyrir nokkurn mun aftur inn í
verslunina. Því varð úr að hún lét
lögreglu hafa peninga, sem fór
inn, greiddi skuld hennar, fékk
kvittun, sem konan fékk í hendur
og þar með var málinu lokið.