Víkurfréttir - 27.09.2012, Page 11
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 27. september 2012 11
VETRARKORT
Veitir þér ótakmarkaðan aðgang í Bláa Lónið yfir vetrartímann*
www.bluelagoon.is
*Vetrartími er frá 1. september til 31.maí. Sumartími er frá 1.júní til 31.ágúst
Einstaklingskort 15.000 krónur
Fjölskyldukort 20.000 krónur
Frítt fyrir börn 13 ára og yngri í fylgd með forráðamönnum
Mundu eftir sérkjörum fyrir félaga Vinaklúbbsins
A
N
T
O
N
&
B
E
R
G
U
R
Í fimm áratugi hefur Ásmundur Sigurðs-son starfað við járnsmíðar á Suður-
nesjum. Hann hóf störf hjá Oddgeiri Pét-
urssyni fyrir 50 árum sem suðumaður í
bílskúr á Garðavegi 13. Úr bílskúrnum
á Garðavegi var flutt í Grófina 6 þar sem
byggð var smiðja. Þar óx fyrirtækið hratt
og sprengdi utan af sér húsnæðið og því var
starfsemin flutt að Fitjabraut 26 í Reykja-
nesbæ, þar sem Vélsmiðja Ása og Óla er nú
til húsa. Þeir Ásmundur og Oddgeir störf-
uðu saman til ársins 1993, þegar Oddgeir
lét af störfum sökum aldurs. Ásmundur
hefur nokkur undanfarin ár verið einn
í smiðjunni en nú er sonur hans, Ólafur
Ásmundsson, einnig kominn í smiðjuna
eftir að hafa starfað í 29 ár hjá Slökkviliði
Keflavíkurflugvallar. Ásmundur er orðinn
72 ára og segir að það sé komið að því að
aðrir taki við keflinu. Þeir feðgar starfa
því hlið við hlið í smiðjunni en reka í raun
tvö fyrirtæki undir sama þaki. Ásmundur
hefur sín verkefni og Ólafur sín. Þá vinna
þeir saman að stærri verkum.
Stærstur hluti þess sem smiðjan framleiðir
er búnaður fyrir fiskvinnslu. Þannig er Odd-
geirs-hausarinn fyrir löngu orðinn þekktur í
fiskvinnsluhúsum bæði hér og erlendis. Þá
hefur smiðjan framleitt nokkuð af saltpækil-
stækjum fyrir saltfiskframleiðendur.
Hausararnir eru í dag smíðaðir úr ryðfríu
stáli en voru áður smíðaðir úr svörtu járni.
VIÐSKIPTI OG ATVINNULÍF
n Vélsmiðja Ása og Óla við Fitjabraut 26 í Reykjanesbæ:
A Ásmundur Sigurðsson búinn að vera 50 ár við járnsmíðar
A Til skoðunar að hefja smíði á stangarmélum fyrir hesta
Þeir eru svo til viðhaldsfríir en þeir feðgar
hafa verið á fá hausara í viðhald eftir 10-
11 ára notkun sem hafa verið lítið slitnir.
Hausararnir hafa farið víða. Flestir eru þeir
innanlands en einnig í Noregi, Þýskalandi
og Kanada.
Þegar karfaveiðar voru í hámarki smíðaði
smiðjan um 100 karfahausara sem fóru
flestir um borð í verksmiðjuskipin sem voru
við veiðar á Reykjaneshrygg. Þá voru af-
greiddir þrír hausarar á hálfum mánuði.
Undanfarin ár hefur smiðjan svo verið í
verkefnum fyrir hitaveituna, Reykjanesbæ
og IGS á Keflavíkurflugvelli. Þá er einnig
nokkuð um það að menn komi inn af
götunni með smáverkefni ýmiskonar. Þá
hefur smiðjan nýlega lokið við að smíða
gólfrennur og niðurföll í nýtt fiskvinnsluhús
sem er í smíðum í Sandgerði.
Ásmundur er einnig þekktur sem smiður-
inn sem gerir við álfelgur á Suðurnesjum
og einnig hefur hann gert við olíupönnur.
„Það eru margir sem vísa á okkur með
svona smotterís vesen sem enginn nennir að
vinna,“ segir Ásmundur og brosir.
Þrátt fyrir að vera orðinn 72 ára gamall
stundar Ásmundur sína vinnu alla daga og
vinnur oft langan vinnudag. Hann segir að
það sé gott að vinna á kvöldin. Hann segist
einnig vinna frameftir til að vinna sér inn
frí. Hann hafi gaman af því að ferðast um
landið og hefur útbúið sér stóran og mikinn
fjallabíl til þeirra ferðalaga.
Ásmundur segir að það komi að því að hann
láti Ólafi eftir alla stærri smíði og snúi sér
meira að léttari verkum eða smíði sem sé
smærri í sniðum. Þannig sé það til skoðunar
að hefja aftur smíði á svokölluðum stanga-
mélum. Þau hafa ekki verið smíðuð á Íslandi
um nokkurt skeið. Ásmundur kann hand-
bragðið og segir að þessi mél séu vinsæl
hjá hestamönnum. Mélin eru ekki smíðuð
lengur hér á landi og hestamenn eru farnir
að taka upp á því að læsa þau í skápum,
enda mikil verðmæti í þeim. Eftirlíkingar af
þessum mélum hafa verið smíðaðar í Tævan
en hestamenn hér heima vilja þær ekki og
kjósa frekar íslensku stangamélin.
Framleiða vinsæl
fiskvinnslutæki
J Feðgarnir Ásmundur Sigurðsson og Ólafur Ásmundsson í smiðjunni.
J Hinn landsfrægi Oddgeirs-hausari sem smíðaður er í Reykjanesbæ.