Víkurfréttir - 27.09.2012, Page 13
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 27. september 2012 13
Auglýst er eftir styrkumsóknum til Vaxtarsamnings
Suðurnesja á grundvelli samnings milli Iðnaðar-
ráðuneytis og Atvinnuþróunarráðs Sambands sveitar-
félaga á Suðurnesjum.
Styrkhæf verkefni eru þróunar- og nýsköpunarverkefni
sem markvisst stefna að markaðssetningu nýrrar eða
endurbættrar vöru eða þjónustu. Skilyrði úthlutunar er
að viðkomandi verkefni feli í sér samstarf þriggja eða fleiri
fyrirtækja og falli að markmiðum samningsins sem og
verklagsreglum um úthlutun. Styrkir geta verið allt að
50% af styrkhæfum kostnaði einstakra verkefna, gegn
mótframlagi þátttakenda. Skilgreining á styrkhæfum
kostnaði, umsóknareyðublöð og aðrar upplýsingar er að
finna á vefsíðu vaxtarsamningur.sss.is.
Umsóknarfrestur er til kl. 16:00 föstudaginn
19. október. Umsóknum skal skilað á netfangið
vaxtarsamningur@heklan.is.
Nánari upplýsingar veitir Björk Guðjónsdóttir,
verkefnastjóri, bjork@heklan.is, sími 420 3288.
SUÐURNES | GARÐUR | GRINDAVÍK | REYKJANESBÆR | SANDGERÐI | VOGAR
VAXTARSAMNINGUR
SUÐURNESJA
VERKEFNASTYRKIR
Tóta tímabundna!
PISTLAR
H itti Tótu fyrst þegar yngri sonur minn var á barnaheimili. Hún stoppaði
mig á bílaplaninu einn daginn – ertu ekki
í stjórn foreldrafélagsins.... jú jú passaði.
Spurði hvernig jólaföndrið yrði þetta árið,
hefði nú ekki verið upp á marga fiska síð-
ast. Gætum við ekki komið með eitthvað
nýtt og skemmtilegt, hún væri föndur-
fíkill og væri með fullt af hugmyndum. Ég
sagðist gjarnan vilja fá að heyra meira af
þessum hugmyndum, bauð henni á næsta
fund eða jafnvel að koma bara í
stjórnina. Tóta hló, hahaha, ég í
stjórnina, ætti nú ekki annað eftir.
Er ekki fyrir mig, fínt að hafa bara
svona fólk eins og þig Lóa mín.
Það eru alltaf ákveðnar týpur sem
sækja í þetta – ég hef lítinn tíma
fyrir svona.
Ég var að vinna í sjoppunni á
einum körfuboltaleiknum. Hluti
af foreldrastarfinu og auðvitað
mætti Tóta að kaupa kaffi og prins
– týpískt, þú hér Lóa mín. Vildi
ólm ræða þjálfaramál við mig –
var ekki sátt enda sonur hennar
ekki að skila þeim árangri sem hann ÁTTI
að vera að skila. Ég bauðst undan að ræða
þetta á staðnum, hvatti hana til að mæta
á fund hjá ráðinu og koma sínu á fram-
færi. Alltaf gott að fá fleiri í hópinn. Tótu
leist ekki á það, hún hafði skilað sínu og
meira en það. Lífið snýst nú ekki bara um
körfuna Lóa mín!
Hitti Tótu aftur nokkrum árum síðar.
Vorum að versla og ég spurði hvað væri
að frétta. Ekkert sérstakt enda svo sem
ekki von á því enda eintómir hálfvitar við
stjórn í þessu landi – valdasjúkir eigin-
hagsmunaseggir sem hugsuðu ekki um
neitt nema sjálfan sig. Ég reyndi nú að
draga úr þessu, sagðist persónulega þekkja
nokkra sem hefðu gefið allt sitt í bæjar-
stjórnar- eða landsmálin og þetta gæti
ekki alltaf verið auðvelt. Þá fékk ég aðra
ræðu um fólk eins og mig sem lætur bjóða
sér allt, rís ekki upp og berst fyrir rétti
sínum. Ég sagði: Tóta mín, þú hefur mjög
ákveðnar skoðanir hvernig á að gera hlut-
ina, af hverju notar þú ekki krafta þína
í þágu samfélagsins og býður þig fram
í bæjar- eða landsmálin, við búum jú í
lýðræðisþjóðfélagi þar sem allir geta boðið
sig fram. Puff, heyrist í minni, ég ætti þó
ekkert annað eftir. Hef engan áhuga á að
starfa með þessu liði, það breytist aldrei
neitt, svo hef ég engan tíma í svona lagað!
Fór á bókasafnið um daginn – jú jú, Tóta
var þar. Hún sagðist hafa lesið grein eftir
mig. ,,Ágætt Lóa mín, en allt í lagi að skrifa
kannski um eitthvað sem er að gerast í
bæjarfélaginu þínu. Það verður einhver að
halda þessu liði við efnið. Finnst þér ekki
í lagi að koma með gagnrýni ha? Alveg
kominn tími á að einhver segi eitthvað!!
Ég horfði djúpt í augun á Tótu og sagði:
veistu, ég veit ekki alveg hvað þú átt við,
en ég hvet þig til að skrifa grein. Það væri
ómetanlegt fyrir samfélagið ef þú mundir
deila visku þinni með öðrum. Hún horfði
á mig eins og ég væri búin að missa´ða og
sagði: ég að skrifa í blöðin, kanntu annan!
Nei, ég hef nóg á minni könnu þó ég fari
nú ekki að viðra skoðanir mínar opinber-
lega. Nei, það er ekki fyrir fólk eins og mig,
þú ert fín í þessu......og guð má vita að ég
hef ekki tíma í þetta.
Ég gæti svo sannarlega lagt meira til sam-
félagsins því það verður aldrei verra né
betra en fólkið sem þar býr. Ef við erum
sífellt að benda á aðra og frýja okkur sjálf
ábyrgð þá er ekki von á breytingum til
batnaðar. Auðvitað erum við ekki öll til
þess fallin að taka að okkur félags- eða
nefndarstörf eða höfum ekki tíma eins
og hún Tóta mín. Að sjálfsögðu má
líka benda á það sem betur má fara en
ósanngjörn gagnrýni er í versta falli um-
hverfismengun og orkan sem fer í hana
eru örugglega nokkur hundruð MW sem
mætti virkja í eitthvað allt annað og betra,
samfélaginu til heilla. Spurning um að ég
ræði þetta við hana Tótu næst þegar við
hittumst – já ef ég hef tíma!
Þangað til næst – gangi þér vel.
Anna Lóa Ólafsdóttir
Fylgstu með mér - http://www.
facebook.com/Hamingjuhornid
ANNA LÓA
ÓLAFSDÓTTIR
SKRIFAR
HamIngjUHoRnIð
Ég sagði: Tóta mín, þú hefur
mjög ákveðnar skoðanir hvernig
á að gera hlutina, af hverju notar
þú ekki krafta þína í þágu sam-
félagsins og býður þig fram
í bæjar- eða landsmálin, við
búum jú í lýðræðisþjóðfélagi þar
sem allir geta boðið sig fram.
Velja á lista
Samfylkingar
16. og 17. nóvember
Á kjördæmisþingi Samfylk-ingarinnar í Suðurkjördæmi
sem haldið var í Reykjanesbæ á
sunnudaginn var ákveðið að við
val á framboðslista í kjördæminu
vegna Alþingiskosninganna 2013
verði viðhaft flokksval þar sem
flokksfélagar og skráðir stuðn-
ingsmenn einir hafa kosninga-
rétt.
Valið verður rafrænt og fer fram
dagana 16. og 17. nóvember nk. en
kjörstaðir verða einnig opnir þessa
daga. Niðurstaða flokksvalsins
verður bindandi í 4 efstu sæti listans
og paralistaaðferð verður beitt til að
tryggja jafnt hlutfall kynja.
Þátttökugjald í flokksvalinu verður
20.000 kr. og framboðsfrestur
rennur út 24. október kl. 17.00.
Birgir vill í 2. sæti
í Suðurkjördæmi
Birgir Þórar-insson, vara-
þingmaður Fram-
sóknarflokksins í
Suðurkjördæmi,
sækist eftir 2. sæt-
inu á lista flokks-
ins fyrir komandi
Alþingiskosningar.
Birgir, sem er fæddur og uppalinn í
Keflavík, er búsettur á Vatnsleysu-
strönd.