Víkurfréttir


Víkurfréttir - 01.11.2012, Side 10

Víkurfréttir - 01.11.2012, Side 10
fimmtudagurinn 1. nóvember 2012 • VÍKURFRÉTTIR10 TENERIFE FERÐ Fyrirhuguð ferð til Tenerife ef næg þátttaka fæst 13. - 27. feb. 2013 á 4 stjörnu hóteli Iberostar Bouganville Playa í tvær vikur Hálft fæði kr: 179.900.- Allt innifalið kr. 242.300.- Möguleiki á 3 vikum Hálft fæði kr. 232.900,- Allt innifalið kr. 326.500.- Staðfestingagjald greiðist fyrir 3. des. 2012 og fullgreiðsla fyrir 11. jan 2013. Ekki innifalið: Forfallatrygging né akstur til og frá ugvelli. Hópstjóri í ferðinni er Oddný Mattadóttir. Skráning hefst mánudaginn 5. nóv. kl. 13:00 - 23. nóv. hjá Jórunni s. 423 7601 og 898 2540, Brynju s. 422 7177 og 849 6284, og Oddnýju 421 2474 og 695 9474. Laugardaginn 3. nóvember kl. 13:00 ætlar kvenna- klúbbur Karlakórs Keflavíkur að vera með Nytjamarkað í Karlakórshúsinu Vesturbraut 17, Reykjanesbæ. Kökubasar kaffi og vöfflur til sölu. Vonumst til að sjá sem flesta. NYTJAMARKAÐUR Vetri fagnað í Bláa lóninu Bláa lónið fagnaði vetrarkomu með því að bjóða samstarfsað-ilum úr ferðaþjónustunni og víðar í fögnuð í Lava veitinga- salnum sl. fimmtudag. Fjöldi góðra gesta mætti í Lava og mat- reiðslumeistarar staðarins reiddu fram veitingar sem runnu ljúft ofan í maga. Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa lónsins sagði ferðaþjónustuna á Íslandi í mikilli sókn og þar væri Bláa lónið í framlínunni. Hann sagði mikilvægt að hlúa vel að greininni sem væri orðin ein af burðarásum íslensks atvinnulífs. Meðfylgjandi myndir tók Oddgeir Karlsson, ljós- myndari á vetrarfagnaðinum. MANNLÍFIÐ Opnar kosninga- skrifstofu Í tilefni af framboði sínu í 2.-3. sæti í flokksvali Samfylkingar- innar í Suðurkjördæmi, sem fer fram 16. og 17. nóvember, opnar Ólafur Þór Ólafsson kosninga- skrifstofu að Tjarnargötu 6 í Sandgerði í sama húsi og Mamma mía. Skrifstofan verður opnuð fimmtudaginn 1. nóvember kl. 17:00 og eru stuðningsmenn sem og þeir sem vilja kynna sér framboðsmálin hjartanlega vel- komnir. VINsæL VILLI- BráÐ Í LAVA Villibráðarkvöld er orðinn fastur liður í upphafi vetrar á veitingastaðnum Lava í Bláa lóninu. Fjöldi gesta mætti í Lava um síðustu helgi til að njóta fjöl- breyttrar villibráðar en villibráð verður einnig í boði á Lava næsta laugardag. Viktor Örn Andrésson, matreiðslu- meistari Lava sagði þetta einn af hápunktum ársins hjá hans fólki í eldhúsinu og ljóst var að gestir kunnu að meta kræsingarnar sem lagðar voru á borð. „Við reynum að koma á óvart á hverju ári og ég held að okkur hafi tekist það,“ sagði Viktor í stuttu spjalli við VF. Tugir rétta voru á boðstólum, for- réttir og aðalréttir, matur sem meðal-Jóninn er ekki að borða dags daglega. Bragðlaukarnir vakna var heitið á matseðlinum og átti vel við því þar mátti m.a. sjá grafna gæs, reykta andabringu, hreindýracar- paccio, svartfuglsbringur, hrefnu- kjöt og míní hreindýrahamborgara á forréttaborðinu. Í aðalréttum var boðið upp á hægeldaða gæsa- bringu með bláberja- og vodka- sósu og hreindýrasteik, svo fátt eitt sé nefnt auk ljúffengra eftirrétta. Þá var boðið upp á vínsmökkun í upphafi kvölds þar sem gestir gátu smakkað þau vín sem voru í boði á kvöldinu. Ljósmyndari Víkurfrétta tók þessar myndir á villibráðakvöldinu. Nýverið tók til starfa í Reykjanesbæ snyrtistofan Car-isma en hún er í eigu Hafdísar Lúðvíksdóttur snyrti- og förðunarfræðings. Stofan er staðsett að Hafnargötu 57, nánar tiltekið í húsnæði Flughótelsins. Stofan er björt og hlýleg og mjög vel staðsett, í hjarta bæjarins með gott aðgengi og næg bílastæði. Á stofunni er boðið upp á allar helstu snyrtimeðferðir og verður lögð sérstök áhersla á íslenskar meðferðarvörur unnar úr nærliggjandi náttúruauðlindum. Boðið verður upp á 25% afslátt í fyrsta tíma af öllum með- ferðum í nóvember, og 20% afslátt ef bókaður er annar tími. Að sögn Hafdísar er ætlunin að byggja upp starfsemina smám saman með lengri opnunartíma og fjölbreyttar meðferðir til að koma til móts við bæjarbúa og gesti hótelsins. n Snyrtistofan Carisma opnar í Kjarna Björt og hlýleg snyrti- stofa í hjarta bæjarins Lífið Björn og Þórður í smurstöð og hjólbarðaþjónustunni fögnuðu 30 ára starfsemi fyrirtækisins með samstarfsfólki og mökum. Þrír ættliðir í Hópsnesfjölskyldunni úr Grindavík, Eðvarð, Sigmar, Otti og eiginkonur voru á villibráðarkvöldinu. Þóra Tómasdóttir og Magnea Guðmundsdóttir. Einar Hannesson og Maddý Andrésdóttir. Eva Dögg Sigurðardóttir og Davíð Jónsson. Aðalheiður Héðinsdóttir og Eiríkur Hilmarsson. Jóna Hrefna Bergsteinsdóttir og Böðvar Jónsson. Framvarðasveit Lava. F.v.: Magnús, Andrea, Viktor og Óli. Vigdís Jóhannsdóttir auglýsingakona kíkti á sushi-ið.

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.