Víkurfréttir - 01.11.2012, Blaðsíða 18
fimmtudagurinn 1. nóvember 2012 • VÍKURFRÉTTIR18
A lexandra Líf Briem er 16
stúlka úr Keflavík
sem stundar nám við
Fjölbrautaskóla Suður-
nesja. Alexandra er á
félagsfræðibraut en
hana dreymir um að
verða sálfræðingur í
framtíðinni. Henni
finnst FS spennandi
skóli og segir félags-
lífið vera alveg hreint
æðislegt. Kynnist FS-ing vikunnar hér að neðan.
Af hverju valdir þú FS?
Spennandi skóli sem hefur margt upp á að bjóða
og svo eru vinkonur mínar líka í honum.
Hvernig finnst þér félagslífið í skólanum?
Það er æðislegt! Alltaf eitthvað um að vera niðri
í sal og einhverjir viðburðir sem henta öllum.
Áhugamál?
Vinirnir, fjölskyldan, bílar, föt og sumar.
Hvert er stefnan tekin í framtíðinni?
Síðan ég var lítil þá hefur mig langað til
þess að verða sálfræðingur og það er ennþá
planið í dag. Svo dreymir mig um að flytja út
og taka kannski háskólann í Danmörku.
Ertu að vinna með skóla?
Nei, eða alla vega ekki mikið, ég passa
stundum. Mig sárvantar vinnu!
Stundarðu íþróttir eða ert í öðrum
tómstundum?
Ég fer bara í ræktina en ég tók mér smá pásu
og byrja aftur eftir áramót. Þegar að ég er
komin með bílprófið, sem kemur í janúar,
og stundataflan mín breytist því ég hef lítinn
sem engan tíma fyrir ræktina á meðan að
ég er alltaf búin svona seint í skólanum.
Hvað borðar þú í morgunmat?
Honey Nut Cheerios.
Hvaða FS-ingur er líklegur til þess að verða
frægur?
Úff, ég hef bara ekki hugmynd.
Hvað fær þig til að hlæja?
Góðir grínþættir eins og Two and a
half man og The big bang theory.
Svo eru kommentin hans pabba alltaf
snilld, hann er rosalega fyndinn.
Hvert fara FS-ingar í hádegismat?
Ég er alla vega alltaf bara uppi í skóla.
En veit um fólk sem fer t.d á Subway,
KFC, Grillhornið og Réttinn.
Eftirlætis:
Sjónvarpsþættir
90210, Gossip girl, Bachelor(ette), Pretty little
liars, Family guy, American dad, Jersey shore,
Two and a half man og The big bang theory
Kvikmynd
House bunny
Vefsíður
Facebook og bleikt.is
Skyndibiti á Suðurnesjum
Villabar og Olsen Olsen
Kennari
Atli sögukennari og Sara enskukennari
Fag
Íslenska held ég, því það er svo auðvelt.
Tónlistin
Ég hlusta aðallega á HipHop, en ég fíla
samt sem áður allskonar tónlist
Tónlist sem þú fílar í laumi (guilty pleasure)
Jet black Joe og Bítlarnir
FS-INGUR VIKUNNAR
EFTIRLÆTIS...
Garðar Ingi Guðmunds-son er í 10. bekk og er í
Grunnskólanum í Sandgerði.
Hann vill verða lögfræðingur
í framtíðinni. Burrito er
í uppáhaldi hjá honum, en
bara ef hann eldar það.
Hvað gerirðu eftir skóla?
Heim að éta og beint í
tölvuna.
Hver eru áhugamál þín?
Fótbolti, tölvur og tölvuleikir
og svo auðvitað the ladies.
Uppáhalds fag í skólanum?
Enska og íþróttir eru uppá-
halds.
En leiðinlegasta?
Þjóðfélagsfræði er leiðinleg-
ast.
Hver er uppáhalds maturinn
þinn?
Burrito en bara ef ég elda það!
En drykkur?
Aquarius er bestur.
Ef þú gætir hitt einhvern
frægan, hver væri það?
Svo margir, en örugglega Ian
McKellen (Gandalf úr Lord of
the Rings).
Ef þú gætir fengið einn ofur-
kraft hver væri hann?
Galdrað, myndi bara galdra
mönsa eins og enginn væri
morgundagurinn.
Hvað er draumastarfið í
framtíðinni?
Að verða lögfræðingur.
Hver er frægastur í símanum
þínum?
Haha ef maður horfir á inter-
net frægðina þá er það Saral-
ind.
Hver er merkilegastur sem þú
hefur hitt?
Mamma verður alltaf merki-
legust.
Hvað myndirðu gera ef þú
mættir vera ósýnilegur í einn
dag?
Ég held að það sé ekki við hæfi
haha.
Hvernig myndirðu lýsa fata-
stílnum þínum?
Skater.
Hvernig myndirðu lýsa þér í
einni setningu?
Skulum bara segja að ef ég
væri epli, væri ég frekar stór-
kostlegt epli.
Besta
Bíómynd?
Allar Lord of the
Rings myndirnar.
Sjónvarpsþáttur?
Friends, How I met your
mother og The big bang
theory eru bestu þættirnir.
Tónlistarmaður/Hljómsveit?
Eminem verður
alltaf uppáhald.
Leikari?
Liam Neeson eða Ian McKel-
len eru uppáhalds leikararnir.
Lið í ensku?
Liverpool til' I die.
Vefsíða?
Engin, þoli ekki Facebook,
Formspring eða Tumblr, samt
er ég alltaf inni á þessu.
Ég væri stórkostlegt epli
n GARÐAR INGI GuÐmuNdssoN // UNG UmSjón: PÁLL oRRI PÁLSSon • PoP@VF.IS
Pabbi er rosa-
lega fyndinn
Frægðarför hljómsveitarinnar Of Monsters And Men virðist engan
endi ætla að taka en sveitin kom fram í
spjallþætti Graham Norton í Bretlandi
á dögunum. Spjallþátturinn er ansi
vinsæll meðal Breta en ásamt hljóm-
sveitinni komu fram herra Bond sjálfur,
Daniel Craig auk leikkonunnar Judi
Dench og spænska sjarmörsins Javier
Bardem, en þau fara öll með aðalhlut-
verk í nýjustu kvikmyndinni um James
Bond, Skyfall. Of Monsters And Men
fluttu smell sinn Little Talks í þættinum
við góðar viðtökur en Daniel Craig
hrósaði krökkunum fyrir góða plötu.
„Þetta var frekar töff, ég er sjálfur mikill
James Bond aðdáandi þannig að mér
fannst ekkert rosalega leiðinlegt að taka
í hendina á honum og Judi Dench,“ segir
Keflvíkingurinn Brynjar Leifsson sem er
gítarleikari hljómsveitarinnar.
„Eftir þáttinn þegar var verið að taka af
okkur hljóðnemana þá hrósaði Daniel
okkur fyrir góða plötu en við spjölluðum
ekkert sérstaklega við hina gestina. Bara
þarna í sófanum en það var reyndar eitt-
hvað af því klippt út,“ segir Brynjar. Mest-
megnis hafi það bara verið kusteisishjal.
Brynjar segir að Graham Norton sjálfur
virki eins og hinn hressasti náungi en
hann er fremur líflegur þáttastjórnandi.
Of Monsters And Men taka þátt í Air-
waives hátíðinni sem er í þann mund að
hefjast en þau voru að koma úr löngu
ferðalagi. „Síðustu þrjár vikur höfum við
bara verið í sitthvoru horninu í fríi. Þar
áður vorum við í þriggja mánaða tón-
leikaferðalagi um heiminn þar sem við
fórum um Ástralíu, Bandaríkin og end-
uðum svo á ferðalagi um Evrópu í einn og
hálfan mánuð.“
Það eru þó fleiri spennandi ferðalög á
döfinni og sannkölluð heimsreisa fram-
undan.
Eftir airwaves er stutt frí og svo er ferðinni
heitið til Ameríku í tónleikaferð í mánuð.
Í byrjun næsta árs svo er búið að skipu-
leggja tónleikaferðir þar sem krakkarnir
ferðast til Japan, Ástralíu, Nýja Sjálands,
Brasilíu og Chile. Svo er aftur haldið til
Bandaríkjanna og Evrópu.
Fyrir áhugasama þá spilar hljómsveitin
í Hörpunni í kvöld, 1. nóvember og á
morgun er það Hotel Marina sem hýsir
sveitina á svokölluðum „Off venue“ tón-
leikum.
n
James Bond
er aðdáandi Of
Monsters And Men
MaNNLÍFIÐ