Víkurfréttir


Víkurfréttir - 01.11.2012, Side 19

Víkurfréttir - 01.11.2012, Side 19
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 1. nóvember 2012 19 Meira í leiðinni GERÐU BÍLINN KLÁRAN FYRIR VETURINN FYRSTA FLOKKS VETRARDEKK Á FRÁBÆRU VERÐI OG FRAMÚRSKARANDI ÞJÓNUSTA WWW.DEKK.IS Á DEKKJAHÓTELI N1 BÝÐST ÞÉR AÐ GEYMA DEKKIN GEGN VÆGUGJALDI HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA N1 REYKJANESBÆ | GRÆNÁSBRAUT SÍMI 440 1372 MANNLÍFIÐ „Þetta var frekar töff, ég er sjálfur mikill James Bond aðdáandi þannig að mér fannst ekkert rosalega leiðinlegt að taka í hendina á honum og Judi Dench,“ segir Keflvíkingurinn Brynjar Leifsson sem er gítarleikari hljómsveitarinnar. Frægðarför hljómsveitarinnar Of Monsters And Men virðist engan endi ætla að taka en sveitin kom fram í spjall- þætti Graham Norton í Bretlandi á dögunum. Spjallþátturinn er ansi vinsæll meðal Breta en ásamt hljómsveitinni komu fram herra Bond sjálfur, Daniel Craig Erró gefur málverk til Reykjanesbæjar Sá skemmtilegi atburður átti sér stað við opnun sýningar Þor-bjargar Höskuldsdóttur í Listasafni Reykjanesbæjar sl. föstudag að Aðalsteinn Ingólfsson sýningarstjóri með meiru kvaddi sér hljóðs og sagðist vera með kveðju frá Erró. Aðalsteinn hafði hitt Erró í París sl. sumar og þá hefði Listasafn Reykjanesbæjar borist í tal. Erró þótti nokkuð til um að komið væri listasafn á Reykjanesið en Listasafn Reykjanesbæjar er eitt yngsta listasafn landsins og hefur aðeins verið með starfsemi frá árinu 2003. Safnið sinnir þó öllum tilskyldum safnaskyldum og hefur m.a. staðið fyrir á sjötta tug sýninga. Sjá nánar á vef safnsins reykjanesbaer.is/listasafn. Bæjarstjórinn, Árni Sigfússon tók á móti gjöfinni og bað Aðalstein fyrir kveðjur Reyknesinga til Errós. Árni sagði m.a. í þakkarræðu sinni að við gjöfina hefði safneign þessa eina listasafns Suðurnesjamanna aukist að miklum mun og þá ekki síst í listrænum skilningi. Málverkið verður til að byrja með til sýnis í Duushúsum, menningar- og listamiðstöð Reykjanesbæjar sem opin er alla virka daga frá kl. 12.00-17.00 og um helgar frá kl. 13.00- 17.00. 007 Góð gjöf

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.