Víkurfréttir - 01.11.2012, Side 20
fimmtudagurinn 1. nóvember 2012 • VÍKURFRÉTTIR20
2 Fimmtudagurinn 14. apríl 2011VÍKURFRÉTTIR
Þjónustumiðstöðin
Nesvöllum
Vikan 1. - 7. nóv. nk.
• Bingó • Gler-, keramik- og
leirnámskeið • Handavinna
• Leikfimi - dans- boltaleikfimi.
• Línudans • Félagsvist • Tölvuklúbbur
• Bridge • Hádegismatur •
Síðdegiskaffi • Bókaútlán
Föstudaginn 2. nóvember n.k. Léttur
föstudagur kl. 14:00:
Friðarliljur syngja og spila.
Allir velkomnir
Nánari upplýsingar í
síma 420 3400 eða á
www.nesvellir.is/
www.vf.is
OK GÆLUDÝRAFÓÐUR
Gæðavara á góðu verði.
Opið fram á kvöld alla daga.
STAPAFELL - Hafnargötu 50.
sMÁAUGLÝsiNGAR – 421 0000
NÚ GETUR ÞÚ SENT VÍKURFRÉTTUM SMÁAUGLÝSINGAR Á VEFNUM VF.IS
TIL LEIGU
240m2 einbýli í Innri Njarðvík
240m2 einbýlishús 4 svefni herbergi
2 faldur bílskúr 3 ára gamalt hús,
stórt eldhús sér bað inn af
hjónaherbergi. Innri Njarðvík.
Áhugasamir sendi fyrirspurnir á
tfo.ice@ gmail.com ,Tryggvi.
Vi n s a m l e g a s t t a k i d f r a m
greiðslugetu, starf,fjölskyldu stærð
og leigu tíma sem óskað er eftir.
TIL SÖLU
Whirlpool uppþvottarvél
til sölu, einnig Zanussi þvottarvél.
Uppl. í síma 661 3570 PARKETÞJÓNUsTA
Parketslípun,
lagnir, viðgerðir
og almennt
viðhald húsnæðis.
Látið fagmenn
vinna verkin!
Parketþjónusta Árna Gunnars,
s. 698 1559,
arnigunnars@simnet.is
PÓSTKASSINN
Að
sen
t
ALMENNAR RAFLAGNIR
Viðhald og breytingar á raflögnum
Nýlagnir og endurnýjun raflagna
Rafmagnstöflur
Tölvu- og símalagnir
Sjónvarpslagnir
Dyrasímar
Ekkert sem tilheyrir raflögnum og rafmagni er okkur
óviðkomandi. Við leggjum áherslu á fagmannleg vinnubrögð
og góða umgengni.
Við komum á staðinn, gerum úttekt á raflögnum og ástandi
þeirra og veitum ráðleggingar um framhaldið.
Brekkustíg 16 - Reykjanesbæ - S: 612-5552, 611-5552 og 421-4426
Þegar gefið er í spili lífsins fá ekki allir fulla gjöf
á hendi. Þannig var það í tilfelli Árna Jakobs
Óskarssonar sem bjó við andlega fötlun allt
sitt líf. Ég kynntist honum eins og mörgum
öðrum félögum okkar hjóna í hópi fatlaðra
einstaklinga á Suðurnesjum þegar við og fleiri
lögðum þeim lið við aukin lífsgæði með því að
standa fyrir Skötumessu í Garðinum. Í þeim
hópi ríkir ósvikin gleði og mikil glaðværð og
þar vann Árni sér virðingu vina og samstarfsfólks fyrir
hæga og prúðmannlega framkomu. Hann var þó kapp-
samur og glaðvær maður með stórt og mikið hjarta. Á
mannamótum sat hann prúður og hljóður en fylgdist
með. Aðeins álútur, hallaði höfðinu örlítið og hakan
seig niður í bringu, hringlóttur undrunarsvipur færðist
yfir munninn og barnsleg brosandi augun fylgdust
með því sem fram fór. Takturinn sem hann sló í lífinu
ekki sá sami og í nánasta umhverfi en samt hugsaði
hann um það sem skiptir okkur mestu máli. Um fjöl-
skylduna. Hann hafði kynnst því að góð fjölskylda var
það mikilvægasta sem við eigum í lífinu. Ásar, kóngar
og drottningar í spili lífsins voru ekki á hans hendi og
hann spilaði því út sem skipti mestu máli. Hjartanu.
Við fyrstu kynni spurði Árni hvort ég ætti konu. Og
þegar ég hafði sagt honum frá Siggu spurði hann mig
hvort við ættum börn. Já, fimm sagði ég. Þú ert ríkur
sagði vinurinn þá. Þetta var auðurinn sem skipti mestu
máli í hans huga, fjölskyldan, uppspretta hamingju
og gleði lífsins. Þessarar spurningar spurði Árni alla
sem hann hitti. Hann var svo innilegur og hlýr ein-
staklingur. Þegar við hittumst þá færðist mikil gleði
yfir hann allan og hlýjan sem fylgdi því að hann hallaði
höfði sínu í vanga minn sagði allt um ósvikið hjartalag
þessa góða manns.
Í sumar mátti sjá að ekki var allt með felldu. Í árlegu ka-
rókístuði og sumargrilli hjá okkur Siggu með nokkrum
fötluðum vinum mátti sjá að glampinn í augunum var
daufur. Það vantaði töluvert í baráttuandann þegar
minnst var á uppáhaldsliðið hans Liverpool og nett
skotin og sprellið sem ég var vanur að fá tvöfalt til baka
voru ekki kröftug. Hann var þó í Livrpoolbolnum,
húfunni og öllum græjum. Hann hafði komið á An-
field með góðum vinum og hitt gamla stjörnu, David
Fairclough, Super sub sem sagði þeim frá félaginu.
Það sem sagt var skipti ekki máli, enda framandi og
óþekkt. Það var upplifunin og andrúmsloftið, að vera
á staðnum sem var málið. Árni hefur fundið það best
þarna á Anfield að Liverpoollagið sagði svo
mikið um hann og þá sem að honum stóðu
og fylgdu honum þessa leið. You never walk
alone. En hann gekk aldrei einn. Guðný systir
hans sem einnig á við fötlun að stríða hefur
að mestu hugsað ein um bróður sinn eftir
andlát móður þeirra. Guðný er hetja lífsins
og við gætum margt af þeim systkinum lært.
Nú hefur verið stokkað upp hjá góðum vin
og hann tekur til við nýtt spil þar sem rétt er gefið. Við
vottum Guðnýju og fjölskyldu þeirra samúðar.
Ásmundur Friðriksson
Sigríður Magnúsdóttir
Árni Jakob vinur okkar er fallinn frá. Árni var hús-
vörðurinn okkar hér á Hæfingarstöðinni, hann vann
sín störf af mikilli alúð og sá meðal annars um að
vökva blómin og til þess að við vissum alltaf hvaða
mánaðardagur væri. Eftir að fréttir komu af andláti
hans settumst við niður og rifjuðum upp allar góðu
minningarnar sem við eigum um Árna.
Ekki er hægt að lýsa Árna í fáum orðum, vinir hans
á Hæfingarstöðinni hafa margt um Árna að segja.
Þau segja að hann hafi verið hress, skemmtilegur
vinur, yndislega forvitinn, hann var bestur, yndislegur
drengur, góður strákur, vinur vina sinna, fyndinn, og
síðast en ekki síst að hann var vinur okkar og okkur
þótti vænt um hann.
Árni snerti líf okkar allra og smitaði umhverfi sitt með
hlýju.
Hann gekk hér um góðra drengja sið,
Gladdi mædda, veitti þreyttum lið.
Þeir fundu best sem voru á vegi hans
Vinarþel hins drenglundaða manns.
Þó ævikjörin yrðu máski tvenn,
Hann átti sættir jafnt við Guð og menn.
(Guðrún Jóhannsdóttir)
Minning um góðan dreng lifir.
Elsku Guðný við sendum þér okkar innilegustu sam-
úðarkveðjur.
Kær kveðja
Þínir vinir á Hæfingarstöðinni í Reykjanesbæ
Árni Jakob Óskarsson - minning
Í umræðunni er oft dregin upp mjög slæm mynd af Ásbrú.
Talað er um þjófnaði, eiturlyfja-
notendur og almennt að allt það
sem gerist uppi á Ásbrú sé slæmt,
hverfið hafi tekið stóru stökki frá
því sem áður var og sé nú hreint
og beint helvíti að búa hér.
Ég er fædd og uppalin í Keflavík og
hef búið uppi á Ásbrú í eitt og hálft
ár. Ég hef ekki orðið vör við það að
hér sé meira um þjófnaði eða eitur-
lyfjaneyslu heldur en annars staðar.
Hlutunum er alls staðar stolið ef
ekki er nógu vel passað upp á þá og
þótt það sé vel passað upp á þá er
þeim samt stolið.
Síðustu vikur hefur verið brotist
inn í fyrirtæki og tölvubúnaði
stolið, olíu stolið af vinnuvélum og
olíutunnum stolið ásamt kerru. Bíl-
stuldur og innbrot í verkfæragám.
Ekkert af þessu gerðist þó uppi á
Ásbrú.
Það gerast slæmir hlutir alls staðar
ekki einungis uppi á Ásbrú og finnst
mér óþarfi að verið sé að sverta
hverfið með slæmu umtali. Hvergi
sé ég talað um alla þá góðu hluti
sem gerast hér.
Við íbúar erum með síðu á Face-
book, þar er talað um allt á milli
heima og geima. Fólk leitar ráða hjá
hvort öðru og biður um aðstoð. Ég
persónulega hef aldrei áður búið í
hverfi þar sem fólk er alltaf boðið
og búið til að hjálpa, vantar ein-
hverjum far í bæinn eða Bónus, þá
setjum við það á vefinn og í flestum
tilfellum getur einhver aðstoðað
mann. Gleymdist eitthvað í búð-
inni? Jú ekki málið, íbúi í blokk sem
Okkur líður vel á Ásbrú
ég hef aldrei stigið inn í áður er til
í að redda mér. Vantar pössun allt í
einu, ekki vandamálið það er alltaf
einhver sem er til í að hjálpa þér.
Ég hef meira að segja séð fólk, bæði
fullorðna og börn, fara út að leita
að týndum dýrum svo ekki fari illa
fyrir þeim eða af því eigendur hafa
sjálfir ekki tök á því að fara út að
leita.
Þessir hlutir eru aðeins brot af því
sem íbúar Ásbrúar telja vera sjálf-
sagðan hlut. Við búum í góðu sam-
félagi þar sem náungakærleikurinn
nær að skína í gegn og er það hluti
af því af hverju mér líður svo vel
hérna. Hér er fullt af heiðarlegu og
góðu fólki þó það geti leynst einn
og einn svartur sauður á milli en
það leynast alls staðar svartir sauðir
og er Ásbrú ekki undantekningin
á því.
Við skulum ekki sverta heilt hverfi
bara af því að þar gerast glæpirnir
eins og alls staðar annars staðar,
við skulum reyna að sjá það góða
við hverfið og kærleikann sem ríkir
á milli íbúa, sem eru alltaf til taks
fyrir hvorn annan sem gerir það að
verkum að hér er frábært að búa.
Fyrir hönd margra
ánægðra íbúa Ásbrúar,
Ólöf Ögn Ólafsdóttir.
Ég persónulega hef aldrei áður búið í hverfi þar
sem fólk er alltaf boðið og búið til að hjálpa,
vantar einhverjum far í bæinn eða Bónus, þá
setjum við það á vefinn og í flestum tilfellum
getur einhver aðstoðað mann. Gleymdist eitthvað
í búðinni? Jú ekki málið, íbúi í blokk sem ég hef
aldrei stigið inn í áður er til í að redda mér.
UngmennaþjónUsta Hss
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja hefur farið af stað með nýja þjónustu innan heilsugæslunnar sem miðar að því að ná
til og þjónusta ungmenni á Suðurnesjum á aldrinum 16-25 ára.
Þjónustan er hugsuð þannig að ungmennin geta sent tölvupóst á
netfangið ungmenni@hss.is með þeim spurningum, vangaveltum
og vandamálum sem á þeim brenna og fengið svar frá hjúkrunar-
fræðingi innan 48 klukkustunda.
Ljóst er að þessi aldurshópur er ekki nægilega vel upplýstur um þau
úrræði sem í boði eru í samfélaginu og því er þetta liður í því að koma
til móts við þau á þann hátt að þau geti fengið faglegar leiðbeiningar
og/eða stýringu inn í viðeigandi úrræði og lausn á sínum vandamálum
eða fyrirspurnum.
Við undirbúning þjónustunnar var gerð lítil rannsókn og kom þar
bersýnilega í ljós að unga fólkið er að glíma við margþætt vandamál
eins og sálfélagsleg-, kynferðisleg-, líkamleg- og neyslutengd vanda-
mál. Einnig sýndu niðurstöðurnar að ungmennin töldu þörf á aukinni
þjónustu hér á svæðinu og voru almennt mjög jákvæð fyrir því að leita
eftir þjónustu hjúkrunarfræðinga í formi tölvupósta.