Víkurfréttir - 01.11.2012, Side 22
fimmtudagurinn 1. nóvember 2012 • VÍKURFRÉTTIR22
SPORTIÐ
Stu
tta
r
Á KONUKVÖLDINU
Í NETTÓ KROSSMÓA
VERÐUR 25% AFSLÁTTUR
AF ÞESSUM VÖRUM
Hressandi og bragðgóðir lífrænir teorkudrykkir.
Þeir innihalda allir te, ginseng, acai og ávaxtasafa.
Bragðtegundirnar eru þrjár;
Grænt te og granatepli, Svart te
og ferskjusafi og Hvítt te og kirsuber
Mojito
og
Pina Colada
kokteilar.
Einstaklega góðar og hollar lífrænar hrískökur
og maískökur frá lima
Himneskt
Belgískt konfekt
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna
andláts ástkærrar eiginkonu minnar, móður, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
Kristínar Magnúsdóttur,
Pósthússtræti 1, Keflavík
Arnoddur Tyrfingsson,
Arnheiður Magnúsdóttir, Jóhann Þór Hopkins,
Elísabet Arnoddsdóttir, Magnús Ársælsson,
Erla Arnoddsdóttir, Vilhjálmur Ingvarsson,
Jón Ármann Arnoddsson, Svanhildur Leifsdóttir,
Eva Lind Jóhannsdóttir, Unnar Bjartmarsson,
börn og barnabörn
Við nemendur og kennarar í Fjölbrautaskóla Suðurnesja erum að taka þátt í verkefni á vegum
Landlæknisembættisins sem nefn-
ist Heilsueflandi framhaldsskóli.
Tilgangurinn með verkefninu er
að skólar myndi sér heildarstefnu í
forvarna- og heilsueflingarmálum.
Höfuðáhersla verkefnisins er á
fjögur viðfangsefni, þ.e. næringu,
hreyfingu, geðrækt og lífsstíl. FS
byrjaði í þessu verkefni haustið
2011. Þá var næringin sérstaklega
tekin fyrir. Það var gert m.a. með því að breyta
fæðuúrvali í mötuneytinu og minnka unnar vörur
til endursölu.
Núna er ár hreyfingarinnar. Við fylgjum því eftir með
margvíslegum viðburðum sem tengist hreyfingu og
fjöldahreyfingu fyrir nemendur og starfsfólk. Nú
nýlega tókum við þátt í keppni á milli framhalds-
skólanna sem nefnist Lífshlaupið. Keppnin fólst í því
að nemendur og starfsfólk skráði sína hreyfingu inn
á www.lifshlaupid.is og saman kepptum við, við aðra
framhaldsskóla. Keppt var um meðal dagafjölda per
nemenda. Við náðum upp mikilli keppni innanhúss
með því að skipta nemendum og starfsfólki í lið. Liðin
voru þannig skipuð að hvert sveitarfélag var með sitt
lið og hvert svið innan skólans fyrir starfsmenn og
kennara var með sitt lið. Hvert og eitt lið var síðan
með sína liðsstjóra sem hvatti fólk til hreyfingar og
jafnframt að skrá hana inn í keppnina.
FS-ingar háðu mikla keppni við Verzlunarskóla Ís-
lands og Fjölbrautaskólann við Ármúla. Mikill rígur og
samanburður er hjá nemendum í FS við VÍ. Við erum
sífellt að bera okkur saman við þá hvað varðar félags-
lífið og stemmingu innan skólans. Þessi rígur hvatti
okkur til að gera enn betur í hreyfingu og skráningu
í keppninni. Liðin skiptust á að hafa forystu, en svo
fór að lokum að FS stóð uppi sem sigurvegari í Lífs-
hlaupinu 2012!
Þetta er bara rétt byrjunin og ætlum við okkur að halda
áfram að auka hreyfingu meðal nemenda og starfsfólks
FS. Vill stjórn NFS þakka öllum þeim nemendum og
starfsfólki sem tóku þátt í þessu verkefnin kærlega
fyrir.
Ísak Ernir Kristinsson.
Formaður Nemendafélags Fjöl-
brautaskóla Suðurnesja.
SPIlakvöld
vIRkjunaR
Þann 8. nóvember verður haldið spilakvöld Virkjunar
og mun allur ágóði kvöldsins
renna til styrktar hópastarfi Virkj-
unar.
Spiluð verður félagsvist. Stór-
glæsilegir og fjölbreyttir vinningar
í boði. Spilaspjaldið kostar 500
kr. og allir eru velkomnir. Spila-
kvöldið sem hefst kl. 20:00 verður
haldið í húsnæði Virkjunar, Flug-
vallarbraut 740. Spilað verður til kl.
22:00. Virkjun vill koma á framfæri
þökkum til allra þeirra fyrirtækja
sem styrkja Virkjun með vinn-
ingum fyrir spilakvöldið.
- Sjá nánar á vf.is
FS sigurvegari í Lífshlaupinu 2012
Bragi hættir með
Grindavíkurstúlkur
Bragi Hinrik Magnússon hefur sagt upp störfum sem
þjálfari Grindavíkur í Dominos-
deild kvenna í körfuknattleik.
Bragi tók við liðinu fyrir leik-
tíðina en illa hefur gengið í
upphafi leiktíðar og því hefur
Bragi ákveðið að stíga til hliðar.
Hann vildi þó ekki tilgreina
nánar ástæðu uppsagnar sinnar.
Ellert Magnússon stýrði liði
Grindavíkur í leik gegn Fjölni á
útivelli í gærkvöldi. Liðið var á
botni deildarinnar án stiga eftir
fimm leiki. Grindavík eru nýliðar
í deildinni á þessu ári eftir að hafa
komið upp úr 1. deildinni í vor.
njarðvík sendir
Belin heim
Körfuknattleiksdeild UMFN hefur sagt upp samningi
við Jeron Belin sem hefur leikið
með karlaliði félagsins það sem
af er hausti og hefur hann leikið
sinn síðasta leik fyrir félagið.
Belin þótti ekki standa undir stóð
væntingum og því töldu þjálfarar
og stjórn það liðinu fyrir bestu
að slíta samstarfinu. Það liggur
því fyrir að UMFN mun tefla
fram einum Bandaríkjamanni á
næstunni en von stendur til að
nýr leikmaður verði kynntur til
sögunnar á næstu dögum. Njarð-
vík er í 9.-11. sæti með 2 stig eftir
fjóra leiki í Dominos-deildinni.
Williamson fer
frá Grindavík
Skoski miðjumaðurinn Iain Williamson mun ekki leika
áfram með Grindvíkingum
næsta sumar. Williamson
kom til Grindvíkinga frá
Raith Rovers um mitt sumar og
skoraði tvö mörk í tíu leikjum
í Pepsi-deildinni. Nú er hins
vegar ljóst að Williamson mun
ekki leika áfram með Grindavík
en hann náði ekki samningum
við félagið. Williams þótti með
betri leikmönnum liðsins eftir
að hann kom um mitt sumar
og því er missir af leikmann-
inum fyrir Grindvíkinga.
Dregið gæti til tíðinda úr her-
búðum Grindvíkinga í næstu
viku en þá kemur í ljós hver mun
stýra liði Grindavíkur á næstu
leiktíð. Ólíklegt þykir að Guð-
jón Þórðarson stýri liðinu í 1.
deildinni á næstu leiktíð en liðið
féll úr Pepsi-deildinni í sumar.
Milan Stefán Jankovic er talinn
líklegasti eftirmaður hans.
Karlalið Keflavíkur í körfu-knattleik er að rétta úr
kútnum eftir dapra byrjun á
keppnistímabilinu. Síðastliðið
mánudagskvöld lögðu þeir granna
sína og Íslandsmeistara Grinda-
víkur í Lengjubikarnum í Toyota-
höllinni. Lokaúrslit urðu 99-91 í
spennandi leik. Darrel Lewis var
stighæstur hjá Keflavík með 25
stig en Sammy Zeglinski lék best
hjá Grindavík með 20 stig.
Keflavík er í efsta sæti A-riðils með
6 stig eftir fjóra leiki en Grinda-
vík með fjögur stig eftir þrjá leiki.
Njarðvík tapaði á sunnudag fyrir
Þór Þorlákshöfn, 76-84, á heima-
velli. Njarðvík er með 2 stig eftir
þrjá leiki í D-riðli.
Öll Suðurnesjaliðin þrjú verða svo
í eldlínunni í kvöld þegar fimmta
umferð Dominos-deildar karla
hefst. Keflavík tekur á móti Fjölni
í Toyota-höllinni, Njarðvík mætir
Stjörnunni í Ljónagryfjunni og
Grindavík fer í heimsókn í Selja-
skóla og mætir ÍR. Heil umferð var
í Dominos-deild kvenna í gær en
Víkurfréttir var farið í prentun áður
en úrslit úr leikjunum voru ljós.
Umfjöllun um leikina má finna á
vefsíðu Víkurfrétta, vf.is.
keflavík kOmnIR
í GanG OG löGÐu íS-
landSmeISTaRana
Herrakvöld GS
Hið árlega Herrakvöld Golf-klúbbs Suðurnesja verður
haldið föstudaginn 9. nóvember
nk. í golfskálanum í Leiru.
Gunnar Páll Rúnarsson mun reiða
fram hið margrómaða sjávarrétta-
hlaðborð. Happdrætti með glæsi-
legum vinningum og uppboð verða
á sínum stað auk skemmtiatriða.
Húsið opnar kl. 19:00 og borðhald
hefst stundvíslega kl. 20:00. Hægt er
að panta miða í síma 846-0666 eða
á gs@gs.is. Miðaverð er kr. 4.900.
Það er alltaf mikið fjör
á herrakvöldum GS.Keflvíkingar unnu sinn fyrsta deildarsigur í körfuknattleiknum á þessu
hausti þegar þeir mætti Ísfirðingum fyrir vestan. Keflvíkingar gleymdu
búningum sínum heima og urðu að spila í varabúningum Ísfirðinga.
Ljósmynd: Bæjarins besta, bb.is