Víkurfréttir - 01.11.2012, Síða 23
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 1. nóvember 2012 23
20%
afsláttur af Ray•Ban
sólgleraugum
til 15. nóvember
Kauptu jólagjöfina
tímanlega!
Handknattleiksfélag Reykja-nesbæjar er í talsverðri
sókn um þessar mundir. Um 80
krakkar æfa íþróttina í yngri
flokkum félagsins. HKR var
stofnað í kjölfar frábærs árangurs
íslenska landsliðsins á Ólympíu-
leikunum árið 2008 þar sem liðið
varð í öðru sæti. Nú fjórum árum
síðar er kominn góður grunnur á
barna- og unglingastarfi félags-
ins. Einar Sigurpálsson, formaður
HKR, segir framtíð handboltans í
Reykjanesbæ bjarta.
„Það er svolítið skrýtið hvað hand-
bolti er stundaður á fáum stöðum á
landinu miðað við vinsældir lands-
liðsins hjá íslensku þjóðinni. Þetta
er þó aðeins að breytast til hins
betra. Þetta gengur vel hjá okkur
og við einblínum á barna- og ung-
lingastarfið. Við erum með um 80
iðkendur frá 4. flokki og niður í 8.
flokk. Við voru stórhuga þegar við
stofnuðum deildina og stefndum
að því að eignast lið í efstu deild
karla eftir tíu ár. Það eru ennþá sex
ár til stefnu þannig að markmiðið
er það sama. Það eiga margir góðir
handboltamenn eftir að koma upp
í meistaraflokk eftir örfá ár,“ segir
Einar.
Handboltinn keppir um iðkendur
við mjög rótgrónar íþróttir líkt og
knattspyrnu og körfuknattleik. Þó
samkeppnin um unga íþróttamenn
í Reykjanesbæ sé mikil þá telur
Einar að það sé eftirspurn fyrir
handbolta í bænum. „Já, það er
ekki spurning. Við finnum alltaf
fyrir auknum áhuga þegar lands-
liðinu gengur vel. Reykjanesbær
er stórt svæði og hér eiga að geta
þrifist fleiri íþróttagreinar ef að
íþróttafélögin vinna betur saman.
Handboltinn hefur nú verið hér í
nokkur ár og er að festa sig í sessi.
Það er frítt að æfa handbolta fyrir
yngstu krakkana, 6.-8. flokk, og við
hvetjum auðvitað alla til að prófa.
Okkur hefur ekki gengið nógu vel
að fá stelpur í handbolta en það
eru nokkrar ungar stelpur í yngsta
aldursflokknum og vonandi fjölgar
þeim hratt.“
Einn af stofnendum deildarinnar,
Guðmundur Kristinn Steinsson,
lést í sjóslysi árið 2010. Stofnaður
var minningarsjóður í kjölfarið og
hefur sjóðurinn verið notaður til
að niðurgreiða æfingagjöld fyrir
yngstu iðkendur HKR. Þeir sem
vilja kynna sér HKR betur er bent
á heimasíðu félagsins, www.hkr.is.
Æfingar fara fram í íþróttahúsinu
við Sunnubraut, í Heiðarskóla og
einnig í Myllubakkaskóla.
Keflavík mun þjófstarta þorr-anum á nýjan leik með flott-
asta þorrablóti bæjarins þann 12.
janúar 2013 en í fyrri tíð, fyrir
árið 1700, þegar notast var við
júlískt tímatal kennt við Júlíus
Caesar, hófst þorri einmitt 9. til
15. janúar. Á boðstólum verður
ljúffengur og vandaður þjóðlegur
matur og drykkir ásamt glæsilegri
dagskrá.
Dagskrá:
Veislustjóri: Jón Björn Ólafsson en
hann sló svo rækilega í gegn í fyrra
að ekki þótti annað hægt en að gefa
honum sviðið á nýjan leik.
Rúna Júl syrpa með Memfismafí-
unni: Guðmundur Kristinn Jónsson
og Sigurður Guðmundsson munu
leiða Memfismafíuna í Rúna Júl
syrpu sem frumflutt verður á Þorra-
blóti Keflavíkur og enginn ætti að
missa af.
Keflavíkurannáll: Þetta árið verður
annállinn fluttur á videóformi en
stiklað verður á stóru í bæjar- og
íþróttalífi Keflavíkur fyrir árið 2012
með beittum og kómískum hætti.
Baggalútur: Hin þjóðþekkta hljóm-
sveit Baggalútur mun taka við kefl-
inu að borðhaldi loknu og spila sín
vinsælustu lög.
Alli „diskó“: Kvöldið mun svo enda
með alvöru 80´s skífuþeytingum að
hætti Alla „diskó“ í bland við þekkt
90´s lög og íslenskar perlur.
Þorrablótið Keflavíkur 2012 þótti
frábær skemmtun en 2013 mun
slá því við! Ljóst er að færri munu
komast að en vilja og því ráðlagt að
þú bíðir ekki boðanna og tryggir
þér miða!
Til að nálgast miða og/eða til að
bóka miða og borð fyrir hópa má
hafa samband við Sævar Sævars-
son í síma 869-1926 og Davíð Þór
Jónsson í síma 869-6151. Einnig er
hægt að senda tölvupóst á saevar@
keflavik.is eða dj@borgun.is.
Keflvíkingar þjófstarta þorra
Lið í efstu deild eftir sex ár
Handknattleiksfélag ReykjanesbæjaR stefniR HÁtt