Víkurfréttir - 01.03.2012, Blaðsíða 10
10 FIMMTUdagUrInn 1. Mars 2012 • VÍKURFRÉTTIR
Auglýsingasími
Víkurfrétta er 421 0001
Tjáskipti manna á milli geta verið flókið fyrirbæri, sérstaklega ef við höfum
það í huga að orðin ein og sér hafa lítið vægi, já sérfræðingar segja innan
við 10%. Annað sem vegur þarna upp á móti eru
svipbrigði, líkamsstaða, beiting vöðva, andardráttur,
beiting raddar, látbragð og augnsamband.
Ég man ekki hvað ég var gömul þegar ég var nokkuð
viss um að ég hefði þann einstaka hæfileika að geta
lesið hugsanir, í líkamstjáningu, svipbrigði og þagnir. Ég
,,vissi“ t.d. hvað fólk var að hugsa um mig og vinkonu
mína þar sem við sátum í strætó á leið á dansæfingu og
horfðu á nýju, allt of háu dansskóna mína með korkfylltu
hælunum. Þá átti ég til að segja eitthvað að fyrra bragði
eins og ,,þið getið bara sjálf verið í hallærislegum skóm“
því ekki ætlaði ég að láta fólk komast upp með svona lagað. Þegar vinkona mín
hafði verið hárgreiðslumódel í eitt skiptið og sat uppi með tyggjóbleikt hárið, las
ég umsvifalaust í tjáningu fólks hvar sem við vorum. Þannig gátum við verið
að labba niður Laugaveginn þegar við mættum fólki sem missti andlitið yfir
þessum óvenjulega háralit og þá las ég strax hvað var í gangi, vatt mér jafnvel
að manneskjunni og sagði ,,ég held að þú ættir bara að fara heim til þín og gera
eitthvað smekklegt við eigið hár“. Elsku vinkona mín mátti þola mikið á þessum
árum - sorry elskan!!
Misskilningur í samskiptum er algengari í dag en áður því meirihluti þeirra á
sér stað í gegnum síma, sms, tölvupóst, msn og Facebook. Það ættu allir að
vera meðvitaðir um að einföld sms eins og: ertu upptekin? kallar á mismunandi
svör. Þannig þýðir: já (ég er upptekin - hringi á eftir) en svarið: JÁ!! (stórir stafir
og upphrópunarmerki) þýðir: JÁ aUÐVITaÐ Er Ég UPPTEKIn Og HÆTTU aÐ
TrUFLa MIg!
Fólk gerir sér ekki alltaf grein fyrir hvernig það talar í símann en það sem skiptir
mestu máli er hvernig maður svarar þegar það er hringt í mann. sá sem svarar:
jaaaá með semingi, á bara alls ekki að vera að svara yfir höfuð því svona svar
þýðir bara eitt: hringir hún, ég nenni ekki að tala við hana svo ég svara bara eins
og ég sé með rýting í bakinu að taka síðasta andardráttinn í þessu lífi.
Eigum við eitthvað að ræða þá sem kveðja ekki, þú heyrir ekki ,,blessið“ því
viðkomandi er búinn að skella á í miðju bless-inu og maður situr eftir gjörsam-
lega frosin með eitthvað bleeeee í eyrunum sem má túlka: loksins er ég laus
við hana úr símanum!!
Facebook býður upp á allskonar misskilning og túlkanir. Breytilegir og opnir sta-
tusar sem gera manni mjög erfitt fyrir og í sömu vikunni getur staðið hjá sama
einstaklingnum: einhleypur, í sambandi, í opnu sambandi eða, þetta er flókið.
Maður er rétt búin að sjá fyrir sér ástfangna parið í opnu og yndislegu sam-
bandi, þegar fyrir hugskotssjónum manns blasa flækjur, gildrur og öngstræti.
svo er ,,potið“ alveg kafli út af fyrir sig og má túlka: hei þú ert áhugaverð kona
og mig langa til að kynnast þér....yfir í: sit hér einn heima og hafði ekkert betra
að gera en að ,,pota“ hingað og þangað til að athuga viðbrögðin!! Og þegar
maður ,,potar“ fimm sinnum í einhvern er maður þá ekki að búa til gatasigti!
samskipti kynjanna geta verið flókin og í raun ótrúlegt að karlmenn átti sig ekki
á því augljósa eins og þegar þeir segja: heyrðu elskan, ég var að hugsa um að
skreppa út í nokkra bjóra með strákunum í kvöld, er þér ekki sama? (þýðing: ég
þarf að komast einn út núna, hrynja í það með strákunum, ímynda mér að ég
sé aftur orðinn átján ára og einhleypur). Þegar hún svarar: jú, jú, drífðu þig, þú
hefur gott af því (þýðing: auðvitað er mér ekki sama, á eftir að sitja hér heima og
ímynda mér að þú sért farinn að skoða tattúið á bringunni á gömlu kærustunni
úr menntó, og þess vegna get ég lofað þér að ég mun búa um þig í sófanum
þar sem þú getur ,,drepist“ þegar þú kemur sauðdrukkinn heim í morgunsárið.
Búðu þig undir næstu daga í frosti vinur). Það sama á við þegar karlmenn
finna á sér að eitthvað er ekki eins og það á að vera og spyrja: er ekki allt í lagi
elskan? Ef svarið er: aUÐVITaÐ er allt í lagi, HVaÐ ætti svo sem að vera að!!
þýðir það að sjálfsögðu: það er ekkert í lagi því þú gleymdir a) afmælinu mínu b)
trúlofunardeginum okkar c)brúðkaupsdeginum okkar d) Valentínusardeginum
og konudeginum e) sérð ekki að ég var að klippa mig, o.s.frv.
Tjáskipti geta svo sannarlega verið flókin en galdurinn er líklega sá að spyrja ef
maður er ekki viss um hvað er í gangi. Hugurinn getur farið með mann á ótrú-
legt ferðalag og misskilningur á oftar en ekki rætur í óskýrum skilaboðum eða
hugsanavillum þar sem við erum að lesa kolrangt í hlutina. skilaboðin mín eru
skýr - við getum ekki lesið hugsanir og því er farsælast að ræða málin þegar við
erum í vafa. Ef það gengur ekki upp er bara eitt til ráða - fjárfesta í textavél!
Þangað til næst - gangi þér vel
Anna Lóa
Er ekki allt í
lagi elskan!!
BREYTING Á
AÐALSKIPULAGI
AUGLÝSING
um óverulega breytingu á aðalskipulagi Reykjanesbæjar 2008-2024,
vegna Brekkustígs 11
Samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, hefur bæjarstjórn
Reykjanesbæjar þann 21. febrúar 2012 samþykkt óverulega breytingu á
aðalskipulagi Reykjanesbæjar 2008-2024.
Breytingin er sett fram á uppdrætti, dags í janúar 2012,
í mkv.1:17.500.Greinagerð, þar sem rökstuðningur kemur fram,er á
uppdrætti.
Breytingin felst í því að hluti svæðis til sérstakra nota fellur út fyrir
stækkun stofnanareits vegna sérdeildar fyrir börn með hreyfihömlun.
Svæðið afmarkast af Grundarvegi, Brekkustíg og Njarðarbraut.
Málsmeðferð var í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010.
Reykjanesbæ, 22. febrúar 2012.
Sveinn Númi Vilhjálmsson
Skipulagsfulltrúi
Mánagata 11, Keflavík
OPIÐ HÚS milli klukkan 17:00 og 18:00
mánudaginn 5. mars 2012
Fallegt og vel staðsett 287,8m2 einbýlishús
ásamt 24,5m2 bílskúr, samtals 312,3m2. Húsið er
á þremur hæðum og sér íbúð í kjallara með sér
inngangi sem hægt er að leigja út.
Hús sem vert er að skoða, sjón er sögu ríkari.
Umsjón: Elsa Björg, sími: 664-6013
Linda B Stefánsdóttir,
Löggiltur fasteignasali
kr. 33.000.000,-
FRAMREIÐSLUSTÖRF
Okkur vantar fleiri þjóna í aukavinnu í Stapann Reykjanesbæ.
Reykleysi skilyrði, góð þjónustulund og góð framkoma.
Vinsamlega sendið inn umsókn á orn@soho.is
Ekki yngri en 20 ára
HÚSMÆÐRAORLOF
GULLBRINGU- OG KJÓSARSÝSLU
Álftanes, Garðabær, Garður, Grindavík, Kjósarhreppur,
Mosfellsbær, Reykjanesbær, Sandgerði, Seltjarnarnes
og Vogar.
Rétt til þess að sækja um eftirfarandi ferðir, hefur sérhver
kona sem veitir, eða hefur veitt heimili forstöðu, án
launagreiðslu fyrir það starf.
Franska Rivieran, Cannes og Mónakó, 2. til 9. júní.
Aðventuferð til München, 8. til 11. desember.
Eftirtaldar konur veita nánari upplýsingar og taka á móti
pöntunum í síma á milli kl. 17:00 og 19:00 á virkum
dögum frá 27. febrúar til 7. mars.
Svanhvít Jónsdóttir, s. 565 3708
Ína Jónsdóttir, s. 421 2876
Guðrún Eyvindsdóttir, s. 422 7174
Valdís Ólafsdóttir, s. 566 6635
Sigrún Jörundsdóttir, s. 565 6551
Orlofsnefndin
Opinn dagur
hjá lögregl-
unni á Suður-
nesjum í til-
efni opnunar
hverfisstöðvar
á Ásbrú
Á undanförnum árum hefur lögreglustjórinn á Suður-
nesjum aukið áherslu á hverfa-
löggæslu í umdæminu. Frá árinu
2009 hafa verið opnaðar hverfi-
stöðvar í fjórum sveitarfélögum í
umdæminu þ.e. í Sveitarfélaginu
Garði, Grindavíkurbæ, Sandgerð-
isbæ og Sveitarfélaginu Vogum og
nú í byrjun mars opnar sú fimmta
á Ásbrú í Reykjanesbæ. Mark-
miðið með hverfalöggæslu er að
auka og efla tengsl lögreglu við
íbúa, félagasamtök og stofnanir
ásamt því að auka þjónustu lög-
reglu við íbúa. Ljóst er að viðvera
lögreglu í minni sveitarfélögum í
umdæminu hefur mælst vel fyrir
og vill lögreglan auka þjónustu
sína við íbúa svæðisins og efla
tengsl við samfélagið með því að
opna hverfastöð á Ásbrú.
Í tilefni opnunar hverfisstöðvar-
innar á Ásbrú verður lögreglan
með opinn dag við Skógarbraut
945 á Ásbrú laugardaginn 3. mars
n.k. frá klukkan 13:00 til 16:00. Til
sýnis verða ökutæki lögreglu ásamt
tækjum og ýmsum búnaði sem
lögreglan notar við störf sín. Lúlli
löggubangsi verður á svæðinu og
mun taka lagið ásamt Krissa löggu
klukkan 14:00. Boðið verður upp
á veitingar.
Viðvera lögreglu í hverfa-
stöðvum á Suðurnesjum er:
Ásbrú: 09:00 – 13:00
Garður: 13:30 – 15:30
Grindavík: 09:00 – 17:00
Sandgerði: 08:00 – 16:00
Vogar: 13:30 – 15:30