Víkurfréttir - 01.03.2012, Blaðsíða 14
14 FIMMTUdagUrInn 1. Mars 2012 • VÍKURFRÉTTIR
ÝMISLEGT
Búslóðaflutningar og allur al-
mennur flutningur. Er með 20
rúmmetra sendibíl/kassabíl með
lyftu. Uppl. í síma 860 3574 Siggi.
Tek að mér allskonar viðgerð-
ir á bílum, sláttuvélum. Er með
greiningartölvu til að bilanagreina
margar tegundir bíla. Vanur mað
ur, 20 ára reynsla, sanngjarnt verð!
Uppl. S: 864 3567.
2 Fimmtudagurinn 14. apríl 2011VÍKURFRÉTTIR
SMÁAUGLÝSINGAR – 421 0009
NÚ GETUR ÞÚ SENT VÍKURFRÉTTUM SMÁAUGLÝSINGAR Á VEFNUM VF.IS
TIL LEIGU
70 m2 íbúð í Keflavík
Leiga 75 þús. m. rafmagni og hita.
Svefnherbergi með stórum fata
skáp, stórt eldhús og stofa. Laus
strax. Uppl. í síma 847 7364 eftir
kl. 16.
Heiðarhvammur
Þriggja herbergja íbúð í Keflavík til
leigu 85 þús. á mánuði f. utan hita
og rafmagn. Laus strax. S.892 9163
Sálarrannsóknarfélag
Suðurnesja
Skyggnilýsingarfundur
Þórhallur Guðmundsson
verður með skyggnilýsingar
fund í húsi félagsins að
Víkurbraut 13 í Keflavík,
sunndaginn 4. mars kl. 20.30
Aðgangseyrir 1500 kr.
Allir velkomnir
Stjórnin.
Þjónustumiðstöðin
Nesvöllum
Vikan 1. 7. mars nk.
• Bingó • Gler-, keramik- og leir
námskeið • Handavinna
• Leikfimi • Dansleikfimi • Jóga
á boltum • Hádegismatur •
Síðdegis kaffi • Tölvuklúbbur FEBS
Léttur föstudagur
Föstudaginn 2. mars nk.
Léttur föstudagur kl. 14:00
Kaffihúsið opið.
Nánari upplýsingar
í síma 420 3400
www.vf.IS
Kirkjur og samkomur:
Hvítasunnukirkjan í Keflavík
Súpa og brauð í hádeginu alla
föstudaga.
Föstudagur kl. 20.00 Opið hús.
Gestur okkar verður Freddie Filmore
frá Florida.
Sunnudagur kl. 11.00 Fjölskyldu
samkoma.
Þriðjudagur kl. 20.00 Bæna
samkoma.
Þriðjudaga og fimmtudaga bæna
stundir í hádeginu.
ÓSKAST
5 manna fjölskylda óskar eftir
húsnæði til leigu. Óskum eftir ein
býli, par eða raðhúsi til leigu í
Innri Njarðvík. Uppl. í síma 663
9964.
Óska eftir leiguhúsnæði!
Ég er snyrtilegur, reglusamur og
reyklaus verkamaður sem er að
leita mér að heimili til lengri tíma.
Ég er ekki á vanskilaskrá og ég get
borgað leigu fyrirfram. 692 8012,
(Dagur) dagur01@simnet.is
Óskast til leigu
Bílskúr eða lítið pláss óskast.
Upplýsingar í síma 868 1418, Egill.
ÞJÓNUSTA
Skattframtöl 2012.
Vantar þig aðstoð við skattframtalið
þitt? Ódýr og góð þjónusta í boði
fyrir þig. http//bokhald.net eða
846 4441
SPÁKONA
Spámiðill
Les í bolla, spil, Tarot og Sígauna.
Á lausa tíma. Tímapantanir í síma
421 1152 og 691 6407.
Kveðja Rósa
OK GÆLUDÝRAFÓÐUR
Gæðavara á góðu verði.
Opið fram á kvöld alla daga.
STAPAFELL - Hafnargötu 50.
NÚ GETUR ÞÚ SENT
VÍKURFRÉTTUM
SMÁAUGLÝSINGAR Á VEFNUM
www.vf.IS
HEILSA
Viltu léttast án þess að svelta þig?
Íslensku Vigtarráðgjafarnir kenna
þér að temja þér heilbrigðan lífsstíl
þannig að þú léttist og öðlast bætta
líðan. Síðustu forvöð að skrá sig á
námskeið í Reykjanesbæ að sinni.
Nýliðar velkomnir alla mánudaga
í mars, ekki tekið við nýliðum eft
ir það.
Ís lensku Vigtarráðgjafarnir,
Grófinni 8, 230 Reykjanesbæ.
Sóley Birgisdóttir, lýðheilsufræð
ingur.
S: 8699698.
Leiðsögn um þorrablótið
sem slegið hefur í gegn
Nú líður óðum að því að vetur konungur fari að
kveðja og vorið að birtast okkur í allri sinni yndis-
legustu mynd. Að sama skapi tekur líkamsstarfsemin
okkar mannanna breytingum við árstíðarskiptin
þegar líkaminn byrjar að hreinsa sig af vetrarhýðinu
með tilheyrandi og eðlilegum niðurgangi.
Niðurgangur getur bæði haft skaðlausar en einnig
mjög hættulegar afleiðingar. Þær geta komið fram í
að eiturefni fari í mat, upp komi sýkingar, bakteríur
þróist, sjúkdómar eða sveppasýkingar. Sálrænar
afleiðingar, til dæmis álag og streita fyrir próf og
verkefni eða kvef- og flensubylgja á leikskólanum,
geta haft sams konar áhrif á líkamann.
Við hnerra dreifast sýkingar og bakteríur lengra en
fjóra metra sem þýðir að sérhvert barn í grenndinni
getur smitast mjög auðveldlega. Smit í gegnum hráa
eða skemmda fæðu eða milli barna sem eru sýkt af
bakteríum getur leitt til niðurgangs. Vökvamissir
vegna niðurgangs hefur þau áhrif á líkamann að
hann þornar að innan og missir mikilvæg steinefni
og næringarefni, til dæmis magnesíum, natríum
(sem einkum fæst úr matreiðslusalti) og kalíum sem
er mikilvægasta næringarefnið og hefur einnig áhrif
á vöðvastarfsemi.
Standi niðurgangur lengur en tólf klukkustundir
er ráðlegt að leita læknis. Ef um ákafan niðurgang
er að ræða er gott að fá sér haframjöl með mjólk
eða vatni í morgunmat daginn
eftir. Einnig ætti að gæta þess
að borða í litlum skömmtum
yfir daginn. Oftast hjálpar þessi
aðferð betur en „kók og salt-
stengur“. Ef tekin eru lyf sem
virka gegn niðurgangi getur
það leitt til hægðartregðu dag-
ana á eftir sem hefur slæm áhrif
á virkni í þörmum.
Til að færa líkamanum að nýju þau steinefni sem
hann hefur misst er hægt að fylgja gömlu húsráði.
Blandið saman einni teskeið af borðsalti, fimm te-
skeiðum af sykri, hálfri teskeið af lyftidufti og setjið
síðan út í einn lítra af sjóðandi vatni með örlitlum
appelsínusafa. Drekkið í litlum skömmtum nokkrum
sinnum yfir daginn. Bætið bananabitum út í til að
bragðbæta blönduna.
Mörg börn og unglingar taka sér ekki nægan tíma í
að tæma þarma almennilega, stundum vegna tíma-
leysis eða af skömm ef þau eru til dæmis stödd í
skóla eða leikskóla. Oft gleyma þau að tæma sig
áður en þau fá sér að borða og það leiðir til þess að
maturinn bragðast ekki jafn vel og ella. Öll þessi
smáatriði skipta miklu máli fyrir líkamsþroska barna
og ungmenna.
Birgitta Jónsdóttir Klasen
Líkamsstarfsemin tekur breytingum
Birgitta Jónsdóttir Klasen skrifar
Sunnudaginn 4. mars kl. 15:00 verður myndlistarkonan
Aðalheiður S. Eysteinsdóttir með
leiðsögn um sýningu sína „Á
Bóndadag“ sem nú stendur yfir í
sýningarsal Listasafns Reykjanes-
bæjar í Duushúsum. Þar hefur
Aðalheiður, ásamt gestalista-
mönnunum Guðbrandi Siglaugs-
syni, Gunnhildi Helgadóttur, lista-
tvíeykinu Ar-Se; Sean Millington
og Arnari Ómarssyni, Nikolaj Lo-
rentz Mentze og Jóni Laxdal Hall-
dórssyni, umbreytt Listasalnum
í félagsheimili þar sem þorrablót
stendur yfir með tilheyrandi áti
og skemmtanahaldi. Það er óhætt
að segja að sýningin hafi slegið í
gegn en hundruð gesta hafa lagt
leið sína í safnið og tekið þátt í
þorrablótinu.
Sýningin er 34. sýningin í röð 50
sýninga sem bera yfirskriftina
Réttardagur og fjalla allar á einn eða
annan hátt um sauðkindina og þau
mótunaráhrif sem bændamenn-
ingin hefur haft á okkur Íslendinga
sem þjóð. Markmið verkefnisins er
að sýna breiða mynd af samfélagi
sem lætur lítið yfir sér en er engu
að síður undirstaða vænlegs lífs.
Hinar ýmsu hliðar menningar sem
við tökum sem sjálfsögðum hlut og
hugum því ekki að dags daglega,
eins og mikilvægi hversdagsleik-
ans.
Sýningin stendur til 18. mars og
er opin frá kl. 12.00 – 17.00 virka
daga og 13.00 – 17.00 um helgar og
aðgangur er ókeypis.
n
Valur Margeirsson hefur opnað verslun með bílavara-
hluti, bílavörur og vinnufatnað
á Fitjatorgi á Fitjum í Njarðvík.
Verslunin er opin virka daga
frá kl. 07 að morgni til kl. 20 að
kvöldi. Einnig er opið um helgar
en þá í styttri tíma.
Í samtali við Víkurfréttir sagði
Valur það vera gamlan draum að
stússast í svona verslunarrekstri
en í kjölfar þess að hann missti
vinnuna hjá Varnarliðinu á Kefla-
víkurflugvelli árið 2004 fór hann í
verslunarrekstur og keypti rekstur
á lítilli þjónustuverslun við bensín-
stöð Orkunnar á Fitjum. Honum
og öðrum rekstraraðilum í húsinu
hafði verið sagt upp húsaleigu þar
sem til stóð að fara í breytingar á
húsinu. Þau áform breyttust um
áramót og Valur fékk boð um að
leigja allt húsið. Hann lét slag standa
og hefur nú opnað verslunina.
Mikið af þeim vörum sem Valur
selur koma frá Poulsen og smátt og
smátt bætist í vöruúrvalið. Þeir sem
leita að viftureimum, bremsum,
ljósum og ýmsu öðru fyrir bílinn
ættu að kíkja við í verslunina til
Vals. Þar eru einnig verkfæri,
hreinsivörur og olíur.
Auk verslunarinnar á Fitjum þá eru
Valur og samstarfsaðili hans, Jón
Þór Önundarson, með bílaþjónustu.
Hún hefur til þessa verið í Grófinni
en er að flytja í nýtt húsnæði þar
sem Vatnsafl var á Njarðarbraut í
Njarðvík. Þar verður í boði að fá
olíu- og dekkjaskipti, auk smávið-
gerða. M.a. hafa þeir félagar sér-
hæft sig í bílum frá Volkswagen og
Audi en þjónusta í raun alla bíla.
Til þess að vekja athygli á nýju bíla-
búðinni setti Valur blikkandi ljós í
glugga verslunarinnar í rauðum og
bláum litum. Í gærmorgun mætti
hins vegar lögreglan og bannaði
honum að hafa ljósin í glugganum.
Valur segist hafa verið undrandi á
þessu enda hafi það tíðkast í fjölda-
mörg ár að verslun með bílahluti
í Reykjavík, Bílasmiðurinn, hefur
verið með blikkandi forgangsljós í
gluggum sinnar verslunar.
n
›› Verslun og þjónusta:
Ný verslun með bíla-
vörur á Fitjatorgi
Kaupmaðurinn Valur Margeirsson í verslun sinni á Fitjum.