Víkurfréttir - 01.03.2012, Blaðsíða 8
8 FIMMTUdagUrInn 1. Mars 2012 • VÍKURFRÉTTIR
›› Hljóðneminn 2012:
FUNDARBOÐ
Aðildarsamtök Festu lífeyrissjóðs boða til opins fundar mmtudaginn
1. mars nk. að Krossmóa 4a, Reykjanesbæ, 5. hæð.
Hefst fundurinn kl. 20:00.
Fundarefni:
Yrferð og kynning á skýrslu Úttektarnefndar Landssamtaka lífeyrissjóða
um úttekt á árfestingarstefnu, ákvarðanatöku og lagalegu umhver
lífeyrissjóðanna í aðdraganda bankahrunsins 2008.
Verkalýðs- og sjómannafélag Keavíkur og nágrennis
Verkalýðsfélag Grindavíkur
Verkalýðs- og sjómannafélag Sandgerðis
Verslunarmannafélag Suðurnesja
Félag iðn- og tæknigreina
Sigurborg segist hafa byrjað að fikta
við sönginn af einhverri alvöru fyrir
rúmu ári síðan, eða þegar hún var í
10. bekk og því má segja að hún
sé tiltölulega nýbyrjuð að syngja
en hún er á 2. ári í Fjölbrautaskóla
Suðurnesja. „Ég vissi alltaf að ég
gæti sungið en var ekki byrjuð að
syngja fyrir framan fólk fyrr en
frekar nýlega,“ segir Sigurborg en
hún var þó að læra söng um tíma
en hætti vegna þess að klassískur
söngur var ekki á hennar áhuga-
sviði. Sem barn var hún eitthvað að
syngja en þorði ekki að syngja fyrir
aðra, ekki einu sinni fjölskylduna.
„Þetta var voðalegt leyndarmál.
Svo einhvern tímann þá var ég að
ræða við vinkonur mínar um að
ég væri að syngja og þær báðu mig
um að syngja fyrir sig. Ég gerði það
og þær sögðu öllum frá því,“ segir
Sigurborg.
Í fyrra lenti Sigurborg í 2. sæti í
Hljóðnemanum en henni fannst
frekar erfitt að fara upp á sviðið
þá. „Þetta var töluvert auðveldara
núna. Í fyrra var töluvert stress en í
ár var ég eiginlega ekkert stressuð.“
Eftir keppnina í fyrra hefur Sigur-
borg sungið töluvert opinberlega
og er því væntanlega orðin reynsl-
unni ríkari. Hún æfir sig töluvert
heima fyrir og hún segir það hafa
hjálpað sér mikið og hún hefur
bætt sig töluvert að eigin sögn á
undanförnu ári.
„Ég sé alveg fyrir mér að starfa í
tónlistinni í framtíðinni. Mig
langar það mikið og þá sérstaklega
eitthvað tengt söngnum.“ Hún
segir að hún sé einnig áhugasöm
um leiklist og því er aldrei að vita
nema hún sameini söng og leiklist
í framtíðinni. Hún ætlaði sér m.a.
að taka þátt í nýjasta leikriti Fjöl-
brautaskóla Suðurnesja en undir-
búningurinn fyrir Hljóðnemann
átti hug hennar allan.
Ástæðan fyrir því að hún valdi lagið
Come together sem Bítlarnir gerðu
frægt fyrir u.þ.b. 40 árum síðan var
einfaldlega sú að hún heyrði fallega
útgáfu af laginu og svo hefur hún
lengi verið aðdáandi Bítlanna. „Ég
heyrði stelpu syngja þetta lag í Idol-
inu og mig langaði að gera mína
eigin útgáfu af því þar sem ég hef
alltaf elskað Bítlana.“
Önnur áhugamál fyrir utan söng-
inn eru ekki mörg hjá Sigurborgu
en hún tekur virkan þátt í félags-
lífinu að eigin sögn. Nokkrir tón-
listarmenn hafa áhrif á Sigurborgu
og hún nefnir Amy Whinehouse
sem dæmi. „Ég elska hana og
einnig Christina Aguilera. Svo eru
Shakira og Michael Buble í miklu
uppáhaldi.“
Mikill íburður var lagður í Hljóð-
nemann að þessu sinni og keppnin
einkar glæsileg. „Ég kunni vel við
mig á sviðinu og fannst voðalega
gaman.“ Keppnin á stóra sviðinu er
svo framundan en Sigurborg mun
að sjálfsögðu vera fulltrúi Suður-
nesjanna í söngvakeppni fram-
haldsskólanna. „Ég verð nú að
viðurkenna að ég er dálítið stressuð
fyrir þá keppni. En ég ætla að reyna
að standa mig eins vel og ég get.“
Sigurborg þarf að þýða lagið á ís-
lensku og svo segist hún þurfa að
vinna aðeins í sviðsframkomunni.
Systir hennar ætlar að hjálpa henni
að þýða lagið fræga yfir á íslensku.
Þessa stundina er Sigurborg í
hljómsveit ásamt nokkrum strákum
úr Njarðvík en þegar hún var í 10.
bekk stofnaði hún ásamt fleiri
krökkum, hljómsveit sem kom
fram á árshátíðum og þannig upp-
ákomum. „Mér finnst mjög gaman
á hljómsveitaræfingum og þar er
alltaf fín stemning,“ segir hún.
Sigurborg er á málabraut í Fjöl-
brautaskóla Suðurnesja en hún
vonast til þess að geta starfað í
tónlistarbransanum í framtíðinni.
„Þetta er það sem ég elska að gera
og ég veit að mínir hæfileikar liggja
þarna. Ég á bara eftir að finna út
hvað ég vil gera sem tengist þessu,“
segir þessi efnilega söngkona að
lokum.
n
Bjarni Stefánsson hafði verið að vinna hjá vélaverktökum
á gröfum og vörubílum áður en
hann missti vinnuna um miðjan
janúar í fyrra. Hann kynnt-
ist Virkjun á Ásbrú þegar hann
kom þangað á kynningarfund
hjá Vinnumálastofnun. Honum
fannst Virkjun strax áhugaverð en
sagðist fyrst bara hafa ætlað að fá
sér kaffibolla og hitta fólk.
Bjarni segist fljótt hafa kynnst
Gunnari Halldóri, forstöðumanni
Virkjunar, sem hafi spurt hvort
hann gæti ekki lagt eitthvað af
mörkum því hann sé alltaf að leita
að sjálfboðaliðum. Ég sagði strax að
ef ég gæti lagt eitthvað að mörkum
þá myndi ég gera það. Ég sagði
Gunnari það að ég kynni að glamra
eitthvað á gítar og sagðist treysta
mér til að leiðbeina á gítarinn.
Bjarni hefur leiðbeint nokkrum
hópum í gítargripum og þá hefur
hann einnig tekið þátt í starfi sem
kallast Vinir í velgengni. Settir hafa
verið upp tónleikar á sal Virkjunar,
Virkjunardagurinn haldinn hátíð-
legur og margt annað áhugavert
verið gert.
Þó svo Bjarni hafi fengið vinnu í
mars á sl. ári hjá hlaðdeild IGS þá
kom það ekki í veg fyrir að hann
héldi áfram að starfa með Virkjun.
„Ég var hérna eins og grár köttur
á milli vakta og alltaf verið hérna
með annan fótinn,“ segir Bjarni í
samtali við blaðið.
Hann missti aftur vinnuna í sept-
ember á sl. ári og fór þá á fullt í
starfið með Virkjun. M.a. hefur
hann haldið gítarnámskeið en segir
Virkjun er hugsuð sem „virknimiðstöð“ með hag þeirra sem ekki eru á
vinnumarkaði að leiðarljósi og áherslu á atvinnuleitendur. Allir eru hins
vegar velkomnir í Virkjun alla virka daga milli klukkan 08:00 til 16:00 hvort
sem þeir eru atvinnuleitendur, atvinnulausir, bótaþegar og heldra fólk.
Aðsókn að Virkjun hefur farið stig vaxandi og lítur út fyrir að heimsóknir
í Virkjun verði tæplega 15.000 í ár. Þróunin í Virkjun er sú að starfsemin
er að stórum hluta drifin áfram af sjálfboðaliðum sem leiðbeina á nám-
skeiðum og halda utan um hópastarfsemi. Það eru að jafnaði 30 sjálf-
boðaliðar að störfum á viku og 6 hópar og námskeið að jafnaði á dag. Hér
kynnumst við Bjarna Stefánssyni sem er einn af fjömörgum sjálfboðaliðum
í Virkjun. Fleiri viðtöl við fólkið í Virkjun í næstu blöðum Víkurfrétta.
að fólk sem sé án atvinnu megi vera
virkara í starfinu í Virkjun.
Bjarni segir að Virkjun hafi gert
mikið fyrir sig og þá sérstaklega
félagslega og hann segir stærsta
plúsinn við Virkjun vera allt það
góða fólk sem hann hafi kynnst þar.
Hann hafi kynnst álíka mörgum í
Virkjun á síðasta ári eins og á síð-
ustu tíu árum í lífi sínu.
Bjarni hvetur fólk til að taka þátt
í starfinu í Virkjun og a.m.k. láta
sjá sig og kíkja í kaffibolla. Mikil
jákvæðni sé í gangi í Virkjun og þar
verði fólk lítið vart við neikvæða
strauma.
Eins og grár köttur í
Virkjun á milli vakta
- og kennir atvinnuleitendum gítargrip
Þetta er það
sem ég elska
að gera
Sigurborg Lúthers-dóttir fór með sigur
af hólmi í Hljóðnem-
anum 2012, söngkeppni
Nemendafélags Fjöl-
brautaskóla Suður-
nesja, sem fram fór
í Andrews á Ásbrú á
dögunum. Hún flutti
Bítlalagið Come Together
í sinni eigin útgáfu.