Víkurfréttir - 14.11.2013, Blaðsíða 21
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 14. nóvember 2013 21
- í eldhúsinu
Ásdís Björk Kristinsdóttir
er að þessu sinni í eldhúsinu hjá Víkurfréttum.
Hún er Njarðvíkingur, fædd 1974, og forstöðu-
maður fjármála og reksturs hjá Íslandsbanka
Kirkjusandi. Ásdís Björk er gift Jóhanni Axeli
Thorarensen flugmanni hjá Icelandair. Þau eiga
þrjár dætur og einn son. Fjölskyldan er afar sam-
heldin og samhent og Ásdís Björk er ekki í vand-
ræðum með að töfra fram dýrindis rétti og kökur.
Þau Jóhann Axel eru oft umkringd stórfjölskyld-
unum beggja megin og afmælisveislur og sam-
verustundir tíðar. Því getur verið gott að luma á
góðum uppskriftum. Ásdís Björk á eina slíka sem
er mjög vinsæl hjá henni við ýmis tilefni:
Hráefni:
Egg
Púðursykur
Rjómi
Snickers (má líka nota mars)
Smjör
Flórsykur
Aðferð:
Botnar
5 eggjahvítur
4 dl. púðursykur
Stífþeytt og sett í tvö form
Bakað við 150 gráður í 50 mín.
Gæti verið aðeins minna eða
meira, fer bara eftir ofninum.
Á milli:
1/2 líter rjómi, þeyttur
2-3 snickers brytjuð smátt út í
Ofan á:
Þeyta 5 eggjarauður og 3 msk flór-
sykur saman með handþeytara.
50-60 gr. smjör og 1-2 snic-
kers brædd saman í potti.
Kæla þetta aðeins og þeyta
svo saman við eggjarauð-
urnar og flórsykurinn.
Karamellan sett
ofan á.
Betra að kæla
karamell-
una aðeins með því að hræra
vel í henni og kannski inn
í ísskáp í smá stund áður en
hún er sett á kökuna svo hún
leki ekki öll niður á diskinn.
Snickerskaka
pósturu olgabjort@vf.is
Ásgeir Gunnarsson,
Þorbjörn Ásgeirsson, Guðrún Sumarliðadóttir,
Sigrún B. Ásgeirsdóttir, Trausti Björgvinsson,
Gunnar Ásgeirsson, Berglind Bjarnadóttir,
Freyja Ásgeirsdóttir, Kristinn H. Einarsson,
barnabörn og barnabarnabarn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Alda Guðjónsdóttir,
Birkiteigi 20, Keflavík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sunnudaginn
3. nóvember. Hún verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju
föstudaginn 15. nóvember kl.13:00.
Jón Sævar Sigurðsson, Ólöf Hafdís Gunnarsdóttir,
Hólmfríður Sigurðardóttir, Magnús Kristinsson,
Anna Sigga Húnadóttir, Emil Helgi Valsson,
Kristinn Sævar Magnússon,
Sigurður Sindri Magnússon,
Mikael Orri Emilsson,
Tómas Aron Emilsson.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
Anna Ragna Jónsdóttir,
Kirkjuvegi 11 Keflavík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja,
þriðjudaginn 22. október 2013.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug.
Keflvíkingurinn Björgvin Ívar Baldursson hefur þrátt fyrir
ungan aldur fengist við tónlist í
langan tíma. Hann er barnabarn
Rúnars Júlíussonar og segja mætti
að hann hafi nánast alið manninn í
hljóðverinu hjá Geimsteini, sem er
upptökuver í eigu fjölskyldu Rún-
ars. Þar starfar Björgvin í dag sem
upptöku- og rekstrarstjóri en einn-
ig hefur Björgvin verið liðtækur í
tónlistinni og spilað í hljómsveitum
á borð við Lifun, Elda, Koju, Klass-
art, I Adapt og Mystery Boy. Björg-
vin hefur í gegnum tíðina verið við-
riðinn rokkið. Þrátt fyrir að blaða-
maður vilji síður stimpla Björgvin,
þá er hann hörku djöfuls rokkari.
Það ætti því að koma flestum á
óvart að Björgin er eldheitur aðdá-
andi bandarísku söngkonunnar Ta-
ylor Swift. Í sumar skellti Björgvin
sér á tónleika með Swift í Banda-
ríkjunum ásamt Ingu Lilju kærustu
sinni. Hann segir þá upplifun hafa
verið rosalega en á tónleikunum
ætlaði allt um koll að keyra. Blaða-
maður Víkurfrétta forvitnaðist um
þennan áhuga Björgvins á popp-
söngkonunni sykursætu.
Björgvin er ekki alveg klár á því
hvernig þessi áhugi á tónlist Swift
hafi kviknað. „Það hefur örugglega
verið í kringum 2008 þegar önnur
platan hennar, Fearless, kom út og
Love Story og You belong with me
voru í gangi. Ég hef pottþétt lent á
þessu á youtube, en þetta er alveg
akkúrat popp/kántrí bræðingur
sem ég fíla,“ segir Björgvin sem
haldið hefur heiðri hennar á lofti
síðan og aldrei farið leynt með að-
dáun sína á henni. „Nei það hef ég
aldrei gert, það er ekkert sakbitið
við þessa sælu.“
Hvað er svona sérstakt
við Taylor Swift?
„Það er til dæmis það að hún er
frábær lagahöfundur og ekki bara
miðað við aldur. Ég hef sagt það í
mörg ár að hún verði sett á sömu
blaðsíðu í tónlistarsögunni og
bestu kvenkyns lagahöfundarnir:
Sheryl Crow, Shania Twain, Carole
King og Carly Simon,“ segir Björg-
vin. Björgvin hrærist í tónlistar-
heiminum og hittir fyrir tónlistar-
menn sem deila ekkert endilega
þessari hrifningu á Taylor Swift.
„Ég held að smátt og smátt sé hún
að vinna sér inn smá töff orðstír
enda heilbrigð og flott ung stúlka
sem semur sína eigin tónlist. En
ég hef oft þurft að „berjast“ fyrir
henni þegar hún hefur borið á
góma í umræðum með einhverju
öðru töff tónlistarfólki. Sumir eiga
erfitt með að kyngja því að gott er
gott sama hvaðan það kemur og
eiga auðvelt með að setja stimpla á
eitthvað án þess að hafa kynnt sér
það betur.“
Björgvin var harður rokkari hér
áður fyrr, en skildi hann vera að
mýkjast með árunum?
„Ég er náttúrulega ennþá rokkari
og var til að mynda á sama tíma
og ég heyrði í henni fyrst í þunga-
rokkhljómsveitinni I adapt. Ég hef
alltaf verið mikið fyrir alls konar
popp. Svo er það líka merkilegt
hvað mikið af fólki sem tengist
þungarokksmenningunni kann vel
að meta góða popptónlist.“
Eru tveir í aðdáendaklúbbnum
Björgvin hlustar á tónlist Swift
undir ýmsum kringumstæðum.
Jafnt með dóttur sinni og í góðra
vina hópi. „Til dæmis set ég nýju
plötuna hennar undir nálina
Björgvin Ívar
er bálskotinn í Taylor Swift
-Ekkert sakbitið við þessa sælu
stundum þegar ég og dóttir mín
erum að borða morgunmatinn. Ég
finn svo einhvern youtube playlista
og set í gang ef ég er að vinna á
skrifstofunni, svo jafnvel í góðra
vina hópi, sérstaklega ef Smári
Klári vinur minn er með en við
erum báðir í aðdáendaklúbbnum,“
segir Björgvin þó svo að ekki sé til
opinber aðdáendaklúbbur Taylor
Swift á Íslandi. Enda væri hann
líklega fámennur að mati Björg-
vins. Hann er undrandi yfir því
hve söngkonan er lítið vinsæl hér
á landi miðað við metin sem hún
hefur sett út um allan heim í miða-
og plötusölu.
Að tónleikunum. Fórstu gagn-
gert yfir hálfan hnöttinn til
þess að sjá hana á tónleikum?
„Já og nei. Það voru uppi einhverjar
pælingar hjá fólki í kringum okkur
frúna að fara á tónleika erlendis
en mér fannst ekki Berlín eða Kö-
ben vera nógu framandi. Ég vissi
að okkar kona væri á túr svo ég
fann tónleika með henni á vestur-
ströndinni og ákvað að gera bara
góða ferð og „road trip“ úr þessu.
Tónleikarnir fóru fram í San Diego
en auk þess heimsóttu þau Björgvin
og Inga Las Vegas og San Franc-
isco. Björgvin segir tónleikana hafa
verið svæsna. „Ég held að hávaðinn
í áhorfendum sé eitthvað sem jafn-
ast á við það þegar Bítlarnir voru og
hétu. Fólkið þarna var gjörsamlega
að klikkast.“ Þetta var því merkileg
upplifun fyrir heitasta aðdáanda
Taylor Swift á Íslandi.
Hvernig tekur frúin þessari
ást þinni á Swift?
„Tónlistarlega séð alveg rosalega
vel, en hún er einmitt líka harður
aðdáandi. Ég man eftir því þegar
ég fékk bílinn hennar lánaðan fyrst
þegar við vorum að hittast að ég
renndi í gegnum iPodinn hennar,
þar voru mörg lög með Taylor á
Top 25 listanum yfir mest spiluðu
lögin. Ég er samt ekki viss um að
henni standi lengur á sama þegar ég
tala um hversu mikið ég er skotinn
í henni,“ segir Björgvin og glottir.
Ef einhverjir hafa áhuga á að kynna
sér verk Swift þá mælir Björgvin
með ýmsu fyrir byrjendur.
„Mér finnst til dæmis rólegri lög
eins og Back to December og Tim
McGraw rosa fín. Kántrídrullur
eins og Mine og Mean líka. Svo af
nýja stöffinu er 22 og I knew you
were trouble alveg rosalegt stöff
enda unnið með Max Martin sem
er fyrir löngu orðinn goðsögn í
poppbransanum.“
Rokkari Björgvin við sviðið þar sem Swift kom fram.