Víkurfréttir - 14.11.2013, Blaðsíða 18
fimmtudagurinn 14. nóvember 2013 • VÍKURFRÉTTIR18
Starf föður Bjarneyjar sem lögreglumanns heillaði hana alltaf og henni þótti búningurinn flottur og
gaman að fylgjast með þegar faðir hennar var sóttur
í vinnuna á lögreglubíl. Hún hefur starfað sem lög-
reglumaður í hartnær 13 ár í vor og segir starfið alls
ekki erfiðara en hún bjóst við. Það sé frekar meira
gefandi ef eitthvað er, fjölbreytni mikil í verkefnum
sem og tækifærin mörg.
Fer lengra á að vinna með góðu fólki
Staða aðalvarðstjóra við embætti Lögreglustjórans á
Suðurnesjum er skipuð af Ríkislögreglustjóra eftir ráðn-
ingarferli. Hún var auglýst, hópur fólks sótti um og sex
enduðu í starfsviðtölum. Að lokum stóð valið á milli
tveggja einstaklinga, að þessu sinni karls og konu. Bjarn-
ey segist hafa sótt sér menntun í tímans rás til þess að
vera öflögur umsækjandi. „Ég var hvött til þess að sækja
um stöðuna úr ýmsum áttum og er með gott bakland.
Maður fer lengra á því að vinna með góðu fólki, hafa
löngunina til að fara lengra og setja sér markmið.“
Stórt áhugamál að koma öðrum í form
Óhætt er að segja að Bjarney sé upptekin kona með mörg
járn í eldinum. Fyrir utan starf sitt í lögreglunni og sem
stundakennari í Lögregluskólanum þjálfar hún og leið-
beinir í Metabolic í Reykjanesbæ. Hún segir að þar sé
mikið unnið með eigin þyngdir iðkenda og lóðum svo
bætt við miðað við getu hvers og eins. „Ég kláraði einka-
þjálfaranám hjá ÍAK og bauðst svo að koma að þjálfa
þarna í vor. Finnst ég hafa gaman að því að leyfa fólki að
taka aðeins á því. Er líka í hóp sem heitir Elíturnar sem
höfum æft saman lengi.“
Hittast í dyrunum á milli vakta
Ofan á þetta allt er hún við það að ljúka meistaranámi
í íþrótta- og heilsufræði við Háskóla Íslands. „Já ég hef
verið að dingla mér í náminu með, er búin með rann-
sóknir tengdar lokaverkefni sem fjallar um Heilsuskóla
Barnaspítalans fyrir börn sem eru í ofþyngd. Það miðar
að því að finna fyrir þau hreyfingu við hæfi; sýna þeim
fram á þá fjölbreytni sem er til staðar,“ segir Bjarney.
Eftir upptalningu þess á daga Bjarneyjar drífur spyrja
sig eflaust margir hvernig henni gangi að tvinna saman
starf og einkalíf. Hún á rúmlega 3ja ára stúlku og 10
ára stjúpson með sambýlismanni sínum, Sigurði Kára
Guðnasyni, sem einnig er lögreglumaður. „Við vinnum á
sitthvorri vaktinni og hittumst oft í dyrunum og þar fara
fram díalógur um hvað búið er að gerast og hvað þarf að
gera,“ segir Bjarney hlæjandi.
„Jafn sterk og hópurinn
sem ég tilheyri“
Um vinnustaðinn lögreglustöðina segir Bjarney starfs-
andann vera góðan og að allir séu miklir félagar sem
hafi góð áhrif hver á annan. Forréttindi séu að fá
að starfa þar. Spurð um hvaða persónueinkenni
hennar njóti sín best í starfinu svarar hún
fljótt: „Ég er mjög skipulögð. Og svo reyni
ég alltaf að vera jákvæð og glöð. Það er
mikilvægt þótt starfið sé erfitt. Getur haft
mikil áhrif á það hvernig við tæklum
verkefnin með réttu viðhorfi. Já, og svo
er ég ákveðin líka, sem þarf í þessu
starfi.“ Annars tekur Bjarney skýrt
fram að hún sé mikil hópsál og vilji að
fólk vinni saman sem ein heild. Verk-
efnin séu alltaf hópsins, ekki ein-
staklingsins. „Maður er jafn sterkur
og hópurinn sem maður tilheyrir.
Og maður nær ekki langt nema hafa
gott bakland, góða félaga og fjöl-
skyldu,“ segir Bjarney að lokum.
n Bjarney Annelsdóttir er nýr aðalvarðstjóri og hefur nóg að gera:
Mikil hópsál með gott bakland
1
3
-3
0
7
7
-
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
/ / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / /
Isavia óskar eftir að ráða rafeindavirkja í rekstrardeild
Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar
Starfið felst í uppsetningu, viðgerðum og eftirliti
með rafeindabúnaði í Flugstöð Leifs Eiríkssonar.
Umsækjandi þarf að geta unnið vel í hóp, unnið
sjálfstætt og undir álagi.
Menntun og hæfniskröfur:
• Sveinspróf í rafeindavirkjun
• Reynsla af viðgerðum á bæði stafrænum og hliðrænum rafeindabúnaði
• Góð tölvukunnátta
• Þekking á aðgangsstýringum og öryggiskerfum er æskileg
Viltu þjóna flugi með okkur?
Gildi Isavia eru öryggi, þjónusta og samvinna
Hjá Isavia og dótturfélögum starfa um 850 manns. Helstu verkefni fyrirtækisins eru umsjón með uppbygg-
ingu og rekstri flugvalla og að veita flugleiðsöguþjónustu fyrir innanlandsflug, jafnt sem millilandaflug, auk
yfirflugsþjónustu fyrir Norður-Atlantshafið. Isavia leggur áherslu á jafnan rétt karla og kvenna til starfa.
Umsóknarfrestur er til og með 26. nóvember. Umsóknum skal skila inn rafrænt á www.isavia.is/atvinna.
Þar er einnig að finna nánari upplýsingar.