Víkurfréttir


Víkurfréttir - 14.11.2013, Side 18

Víkurfréttir - 14.11.2013, Side 18
fimmtudagurinn 14. nóvember 2013 • VÍKURFRÉTTIR18 Starf föður Bjarneyjar sem lögreglumanns heillaði hana alltaf og henni þótti búningurinn flottur og gaman að fylgjast með þegar faðir hennar var sóttur í vinnuna á lögreglubíl. Hún hefur starfað sem lög- reglumaður í hartnær 13 ár í vor og segir starfið alls ekki erfiðara en hún bjóst við. Það sé frekar meira gefandi ef eitthvað er, fjölbreytni mikil í verkefnum sem og tækifærin mörg. Fer lengra á að vinna með góðu fólki Staða aðalvarðstjóra við embætti Lögreglustjórans á Suðurnesjum er skipuð af Ríkislögreglustjóra eftir ráðn- ingarferli. Hún var auglýst, hópur fólks sótti um og sex enduðu í starfsviðtölum. Að lokum stóð valið á milli tveggja einstaklinga, að þessu sinni karls og konu. Bjarn- ey segist hafa sótt sér menntun í tímans rás til þess að vera öflögur umsækjandi. „Ég var hvött til þess að sækja um stöðuna úr ýmsum áttum og er með gott bakland. Maður fer lengra á því að vinna með góðu fólki, hafa löngunina til að fara lengra og setja sér markmið.“ Stórt áhugamál að koma öðrum í form Óhætt er að segja að Bjarney sé upptekin kona með mörg járn í eldinum. Fyrir utan starf sitt í lögreglunni og sem stundakennari í Lögregluskólanum þjálfar hún og leið- beinir í Metabolic í Reykjanesbæ. Hún segir að þar sé mikið unnið með eigin þyngdir iðkenda og lóðum svo bætt við miðað við getu hvers og eins. „Ég kláraði einka- þjálfaranám hjá ÍAK og bauðst svo að koma að þjálfa þarna í vor. Finnst ég hafa gaman að því að leyfa fólki að taka aðeins á því. Er líka í hóp sem heitir Elíturnar sem höfum æft saman lengi.“ Hittast í dyrunum á milli vakta Ofan á þetta allt er hún við það að ljúka meistaranámi í íþrótta- og heilsufræði við Háskóla Íslands. „Já ég hef verið að dingla mér í náminu með, er búin með rann- sóknir tengdar lokaverkefni sem fjallar um Heilsuskóla Barnaspítalans fyrir börn sem eru í ofþyngd. Það miðar að því að finna fyrir þau hreyfingu við hæfi; sýna þeim fram á þá fjölbreytni sem er til staðar,“ segir Bjarney. Eftir upptalningu þess á daga Bjarneyjar drífur spyrja sig eflaust margir hvernig henni gangi að tvinna saman starf og einkalíf. Hún á rúmlega 3ja ára stúlku og 10 ára stjúpson með sambýlismanni sínum, Sigurði Kára Guðnasyni, sem einnig er lögreglumaður. „Við vinnum á sitthvorri vaktinni og hittumst oft í dyrunum og þar fara fram díalógur um hvað búið er að gerast og hvað þarf að gera,“ segir Bjarney hlæjandi. „Jafn sterk og hópurinn sem ég tilheyri“ Um vinnustaðinn lögreglustöðina segir Bjarney starfs- andann vera góðan og að allir séu miklir félagar sem hafi góð áhrif hver á annan. Forréttindi séu að fá að starfa þar. Spurð um hvaða persónueinkenni hennar njóti sín best í starfinu svarar hún fljótt: „Ég er mjög skipulögð. Og svo reyni ég alltaf að vera jákvæð og glöð. Það er mikilvægt þótt starfið sé erfitt. Getur haft mikil áhrif á það hvernig við tæklum verkefnin með réttu viðhorfi. Já, og svo er ég ákveðin líka, sem þarf í þessu starfi.“ Annars tekur Bjarney skýrt fram að hún sé mikil hópsál og vilji að fólk vinni saman sem ein heild. Verk- efnin séu alltaf hópsins, ekki ein- staklingsins. „Maður er jafn sterkur og hópurinn sem maður tilheyrir. Og maður nær ekki langt nema hafa gott bakland, góða félaga og fjöl- skyldu,“ segir Bjarney að lokum. n Bjarney Annelsdóttir er nýr aðalvarðstjóri og hefur nóg að gera: Mikil hópsál með gott bakland 1 3 -3 0 7 7 - H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / Isavia óskar eftir að ráða rafeindavirkja í rekstrardeild Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar Starfið felst í uppsetningu, viðgerðum og eftirliti með rafeindabúnaði í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Umsækjandi þarf að geta unnið vel í hóp, unnið sjálfstætt og undir álagi. Menntun og hæfniskröfur: • Sveinspróf í rafeindavirkjun • Reynsla af viðgerðum á bæði stafrænum og hliðrænum rafeindabúnaði • Góð tölvukunnátta • Þekking á aðgangsstýringum og öryggiskerfum er æskileg Viltu þjóna flugi með okkur? Gildi Isavia eru öryggi, þjónusta og samvinna Hjá Isavia og dótturfélögum starfa um 850 manns. Helstu verkefni fyrirtækisins eru umsjón með uppbygg- ingu og rekstri flugvalla og að veita flugleiðsöguþjónustu fyrir innanlandsflug, jafnt sem millilandaflug, auk yfirflugsþjónustu fyrir Norður-Atlantshafið. Isavia leggur áherslu á jafnan rétt karla og kvenna til starfa. Umsóknarfrestur er til og með 26. nóvember. Umsóknum skal skila inn rafrænt á www.isavia.is/atvinna. Þar er einnig að finna nánari upplýsingar.

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.