Bæjarins besta


Bæjarins besta - 11.01.2007, Side 18

Bæjarins besta - 11.01.2007, Side 18
FIMMTUDAGUR 11. JANÚAR 200718 Ábendingar um efni sendist til Thelmu Hjaltadóttur, thelma@bb.is – sími 849 8699 Mannlífið Netspurningin er birt vikulega á bb.is og þar geta lesendur látið skoðun sína í ljós. Niðurstöðurnar eru síðan birtar hér. Smáauglýsingar Spurning vikunnar Hvernig fannst þér áramótaskaupið? Alls svöruðu 1.387. Frábært sögðu 1 73 eða 12% Gott sögðu 233 eða 17% Sæmilegt sögðu 218 eða 16% Lélegt sögðu 763 eða 55% Einar Valur Kristjánsson, framkvæmdastjóri Hrað- frystihússins Gunnvarar hf., varð fimmtugur 9. janúar sl. Í tilefni afmælisins tekur hann og fjölskylda hans á móti gestum laugardaginn 13. janúar nk. kl. 19:30 í sal Frímúrara á Ísafirði. Afmæli Sigurgeir Sveinn Gíslason, Anna María Guðjónsdóttir, Bragi Björgmundsson, Þórir Guðmundsson, Linda Jónsdóttir, Stígur Berg Sophusson, Halldór Sveinbjörnsson og Ingibjörg Kristjánsdóttir. Á myndina vantar Val Richter. Þórir Guðmundsson hjá Körfuknatt- leiksfélagi Ísafjarðar var kosinn íþrótta- maður Ísafjarðarbæjar 2006. Tilkynnt var um úrslitin í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði í gær, en níu voru tilnefndir og er þetta 27. árið sem kosningin fer fram. Þórir hefur átt glæsilegt ár og er vel að kjörinu kominn. Hann var í liði Íslands sem varð Norðurlandameistari í sumar þar sem þeir unnu Svía örugglega í úrslitaleik. Hann var einnig í sama liði sem keppti á Evrópumóti A-þjóða í Ólympíu í Grikk- landi í sumar, þar sem Ísland vann meðal annars þáverandi og núverandi Evrópu- meistara Frakka, en það er fræknasti sigur sem íslenskt körfuknattleikslandslið hefur unnið. Á síðasta ári æfði Þórir í ellefu mánuði, var frá vegna meiðsla í einn mánuð. Frá áramótum til vors æfði hann átta sinnum í viku, og núna í haust æfir hann fimm sinnum með KFÍ og þrisvar með íþróttaakademíu menntaskólans. Þórir æfði auk þess með landsliði undir átján ára í sumar. Auk Þóris voru tilnefnd Sigurgeir Sveinn Gíslason frá BÍ ´88, Anna María Guðjónsdóttir frá Skíðafélagi Ísfirðinga, Bragi Björgmundsson frá Hestamanna- félaginu Stormi, Þórir Guðmundsson frá KFÍ, Ingibjörg Kristjánsdóttir frá Sund- félaginu Vestra, Halldór Sveinbjörnsson frá kajakklúbbnum Sæfara, Valur Richter frá Skotíþróttafélagi Ísafjarðar, Stígur Berg Sophusson frá glímudeild Harðar og Linda Jónsdóttir frá Hestamannafé- laginu Hendingu. – thelma@bb.is Þórir Guðmundsson íþrótta- maður Ísafjarðarbæjar 2006 Þórir Guðmundsson leikmaður KFÍ var kosinn íþróttamaður Ísafjarðarbæjar 2006. Til sölu er 2ja og 3ja sæta sófi og lítill blöðrubátur. Upplýsing- ar í síma 456 7110. Til sölu er Nissan King Cab, 2,4 dísel, árg. 96, ekinn 175 þús. km. Uppl. í síma 846 7479. Kaupi bíla til niðurrifs. Uppl. í síma 899 4201. Til sölu er örbylgjuofn. Upplýs- ingar í síma 456 3076. Til sölu er Musso dísel 2,9, skoð- aður 07, árg. 1996. Í mjög góðu standi. Búið að taka hann allan í gegn. Er á nýjum dekkjum. Fjórar felgur fylgja. Uppl. í síma 869 4892 og 421 1728 (Jói). Til sölu eru álfelgur undan Sub- aru Legacy árg. 97. Verð kr. 15 þús. Uppl. í síma 897 6771. Til sölu er Subaru Legacy, Lux, árg. 04/2006, ekinn 7000 km. sjálfskiptur, ljósgrár. Upplýs- ingar í síma 661 5042. Vefsíðan http://maple123.blog.is/blog/maple123 Hvernig er eiginlega þarna á Reykhólum? er ég stundum spurður. Norðaustanátt, svara ég. Þetta er að vísu einföldun, og líka útúrsnúningur. En hann er ansi oft á norðaustan. Ekki svo að skilja að ég mæli neitt frekar með sífelldum útnyrðingi. Þetta er bara svona. Og ekki bara akkúrat hérna.Stíf norð- austanáttin er meðal þess sem ég minnist einna best þegar ég hugsa til vetranna minna í Reykjanesi við Ísafjarðardjúp í gamla daga. Sífelldur bölvaður norðaustanleiðindastrekkingur, að manni fannst. En það var bara úti. Ég hugsa með hlýju til skólans í Reykjanesi og allra sem þar voru. Ísafjarðarkirkja Kirkjuskóli barnanna er á fimmtudögum kl. 17. Uppbyggilegar og skemmtilegar samverur. Sóknarprestur!

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.