Bæjarins besta - 11.01.2007, Síða 20
Stofnað 14. nóvember 1984 · Sími 456 4560 · Veffang: www.bb.is · Verð kr. 300 m/vsk
bb.is – fjölsóttasti vestfirski vefurinn
Lífgað upp á almenningssamgöngukerfið
Almenningssamgöngur Ísa-
fjarðarbæjar og nágrennis
munu fá góðar og litríkar
merkingar á næstu mánuðum.
Greipur Gíslason hjá fyrirtæk-
inu Ýmislegt smálegt ehf. hef-
ur unnið að hugmyndum und-
anfarna mánuði að hönnun á
útliti farartækja, merkingu
biðstöðva, útgáfu nýrrar leið-
arbókar og upplýsingaskilta á
biðstöðvum. Greipur kynnti
hugmyndir sínar fyrir bæjar-
ráði Ísafjarðarbæjar í síðustu
viku sem tók vel í þær.
„Markmiðið er að gera
merkingar á almenningssam-
göngum aðgengilegri og greini-
legri fyrir bæði heimamenn
og ferðafólk. Þetta verður í
fyrsta sinn sem hver stoppi-
stöð í sveitarfélagi mun hafa
sitt eigið nafn sem verður
kyrfilega merkt“, segir Greip-
ur. Að auki verður gefin út
leiðarbók auk þess sem nálg-
ast má upplýsingar um leiðar-
kerfið á netinu. Stefnt er að
því að merkingarnar verði
komnar upp fyrir ferðamanna-
tímabilið og verkefninu verði
lokið að fullu í haust. Að
hönnun merkinganna standa
sömu hönnuðir og gerðu veg-
presta sem komið var upp á
Ísafirði í sumar og vísa þeir
ókunnugum veginn til ýmissa
staða í bænum svo sem sjúkra-
húss, hafnar og sundlaugar.
Greip var falið verkefnið í
kjölfar útgáfu Ýmislegs smá-
legs á fimm ísfirskum póst-
kortum undir vörumerkinu
Ísafjörður Collection sem
er ætlað að fanga hinar mörgu
hliðar Ísafjarðar. Eitt póstkort-
ið er hugarfóstur eigenda fyrir-
tækisins og sýnir almennings-
samgöngukerfi Ísafjarðarbæj-
ar og nágrennis eins og það er
í dag en í búningi neðanjarða-
lestakerfa stórborga heimsins.
Ein ástæðan fyrir því að kortið
kom út segir Greipur vera þá
staðreynd að í sveitarfélaginu
sé töluvert íburðarmikið sam-
göngukerfi sem hugsanlega
nýtist ekki vel og fær einhvern
veginn ekki að njóta sín. Því
hafi þeir fengið þá hugmynd
að gefa almenningssamgöngu-
kerfinu andlitslyftingu, sam-
hæfa það og gera aðgengilegra
fyrir íbúa „heimsborgarinnar“
Ísafjarðar og gesti hennar.
– thelma@bb.is
Póstkortið sem sýnir helstu rútuleiðir frá Ísafirði í anda neðanjarðalestarkerfa
stórborga. Kortið er hannað af Högna Sigþórssyni í samstarfi við Greip Gíslason.
Betur fór en á horfðist
þegar jeppabifreið valt á
Gemlufallsheiði í síðustu
viku. Tilkynnt var til lög-
reglu að fjórir hefðu verið
í bílnum og að minnsta
kosti einn þeirra væri fast-
ur í bifreiðinni. Tveir
sjúkrabílar og slökkvilið
var kallað út ásamt lög-
reglu en þegar komið var
á staðinn var þrennt í bíln-
um, tveir fullorðnir og
barn. Voru þau öll í beltum
og komumst heil úr slys-
inu.
Að sögn lögreglunnar á
Ísafirði var krapi og hálku-
blettir á veginum. Bifreið-
in var á leið upp heiðina
Dýrafjarðarmegin, og fór
eina veltu vinstra megin
út af veginum en aðstæður
þar voru mun betri en hinu
megin. Læknir var með í
för á slysstað og var fólkið
flutt til nánari skoðunar á
Fjórðungssjúkrahúsið á
Ísafirði en svo virðist sem
þau hafi sloppið ósködd-
uð. – thelma@bb.is
Sluppu
ómeidd úr
bílveltu
Símamynd frá slysstað.
Íbúar á Vestfjörðum með
erlent ríkisfang eru 528 talsins
samkvæmt bráðabirgðatölum
Hagstofu Íslands, af alls 7.470
íbúum, og telja því 7% af
heildaríbúafjölda. Árið 2005
voru erlendir ríkisborgarar
466 talsins eða 6,2%, árið
2004 voru þeir 450 eða 5,8%,
árið 2003 voru þeir 489 talsins
eða 6,2%, árið 2002 voru þeir
510 talsins eða 6,4%, árið
2001 485 talsins eða 6% og
árið 2000 voru þeir 501 talsins
eða 6,1% af heildaríbúafjölda
Vestfjarða.
Hlutfallshækkun erlendra
ríkisborgara segir þó ekki alla
söguna enda hefur þeim ein-
ungis fjölgað um 27 einstakl-
inga ef miðað er við árið 2000,
eða um 5,3%, en á sama tíma
hefur íslenskum ríkisborgur-
um fækkað úr 7.651 í 6.942,
eða um 9,3%.
Alls hefur íbúum á Vest-
fjörðum þannig fækkað úr
8.152 í 7.470 á þessum sex
árum, eða um 8,4%. Ef ein-
ungis er litið til fjölgunar er-
lendra ríkisborgara á svæðinu
á síðustu 12 mánuðum hefur
þeim fjölgað um 13%, úr 466
í 528. Eins og sjá má á tölun-
um hér að ofan voru þó óvenju
fáir erlendir ríkisborgarar þó
á Vestfjörðum árin 2004 og
2005, en meðalfjöldi erlendra
ríkisborgara á tímabilinu var
489. – eirikur@bb.is
Erlendum ríkisborgurum fjölgar á Vestfjörðum
Byggingafyrirtækið Ágúst
og Flosi ehf., á Ísafirði hefur
verið úrskurðað gjaldþrota að
beiðni Lífeyrissjóðs Vestfirð-
inga. Úrskurður þess efnis var
kveðinn upp í Héraðsdómi
Vestfjarða á föstudag og hefur
Sigmundur Guðmundsson,
héraðsdómslögmaður á Akur-
eyri verið skipaður skiptastjóri
þrotabúsins. Hjá fyrirtækinu
starfa um 20 starfsmenn.
Sigmundur átti fund með
forsvarsmönnum fyrirtækis-
ins á föstudag og segir hann
fundinn hafa verið til að fá
mynd af þeirri stöðu sem fyr-
irtækið er í. Segir Sigmundur
enn ekki neitt ljóst með fram-
haldið, en verið sé að fara yfir
ástandið og möguleikana í
stöðunni. Aðspurður um fram-
tíð nýbyggingar sem Ágúst
og Flosi hafa verið að reisa
við Hafnarstræti á Ísafirði
segir Sigmundur að það skýr-
ist vonandi á næstu dögum.
„Það verður vonandi í vik-
unni, en það er þó ekki víst“,
segir Sigmundur. Þá mun enn
ekki ljóst hversu stórt gjald-
þrotið er en eftir á að lýsa
kröfum í þrotabúið og mun
það taka einhverja mánuði.
Samkvæmt heimildum blaðs-
ins mun það vera yfir 100
milljónir króna.
Stærstu verkefni fyrirtæk-
isins eru nýbygging við Hafn-
arstræti á Ísafirði og bygging
skemmu fyrir Jakob Valgeir
ehf., í Bolungarvík. Aðaleig-
andi Ágústs og Flosa ehf., er
Björgmundur Örn Guðmunds-
son. – eirikur@bb.is
Byggingafyrirtækið Ágúst og Flosi
ehf., á Ísafirði úrskurðað gjaldþrota
Húsnæði Ágústs og Flosa við Árnagötu á Ísafirði.