Bæjarins besta - 30.12.2009, Síða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 2009
Hátt í 50 nemendur útskrifaðir frá MÍ
Hátt í 50 nemendur voru brautskráðir frá
Menntaskólanum á Ísafirði við formlega athöfn
í Ísafjarðarkirkju föstudaginn 18. desember.
Alls útskrifuðust 44 nemendur með náms- eða
starfsréttindi. Átján útskrifuðust sem vélaverðir
smáskipa. Úr A námi vélstjórnar útskrifuðust
fimm nemendur. Átta útskrifuðust með sveins-
próf í húsasmíði þar af tveir með viðbótarnám
til stúdentsprófs. Þá voru brautskráðir þrír nem-
endur af námsbraut í samfélagstúlkun og er það
annar hópurinn sem lýkur því námi en þeir hófu
nám sitt við Menntaskólann á Ísafirði haustið
2008.
Markmið námsins eru meðal annars að
nemendur geri sér grein fyrir helstu vandkvæð-
um í túlkun á milli mismunandi tungumála og
menningarsvæða og að nemendur þekki innviði
íslensks samfélags auk helstu stofnanna og hlut-
verks þeirra. Ellefu luku stúdentsprófi: Fimm
af félagsfræðabraut, tveir af náttúrufræðibraut
og fjórir með viðbótarnám af iðnnámsbrautum.
Um kvöldið var slegið upp árlegri útskriftar-
veislu í sal heimavistar Menntaskólans á Ísafirði
fyrir útskriftarnema, fjölskyldur þeirra og starfs-
menn skólans. – thelma@bb.is 44 nemar útskrifuðust frá Menntaskólanum á Ísafirði fyrir jól.
Yfir 100 manns fluttu frá
útlöndum til Vestfjarða
Fleiri fluttu til Vestfjarða frá
útlöndum en af landi brott á fyrstu
níu mánuðum ársins. Rúmlega
hundrað manns fluttu frá Vest-
fjörðum til útlanda frá janúar til
september. Flestir fluttu frá Ísa-
fjarðarbæ eða 67 manns. Því næst
kom Bolungarvík þar sem 22
fluttu af landi brott. Þá fluttu 116
manns til Vestfjarða frá öðrum
löndum. Flestir þeirra fluttu til
Ísafjarðarbæjar eða 48, en 31
flutti erlendis frá til Tálknafjarð-
ar. Þetta kemur fram í tölum Hag-
stofunnar.
Allt að 79% íslenskra ríkis-
borgara sem flytja búferlum til
útlanda snúa aftur til Íslands eftir
að meðaltali 2,4 ára dvöl. Er-
lendir ríkisborgarar sem fara af
landi brott snúa til baka í mun
minna mæli, eins og við má bú-
ast, en 17% þeirra hafa þó snúið
til baka eftir innan við ársdvöl
erlendis. Þetta kemur fram í nýju
hefti Hagtíðinda þar sem gerð er
grein fyrir endurkomum þeirra
sem hafa flust til útlanda á
tímabilinu 1986–2008.
Tvö hundruð erlendir ríkis-
borgarar fluttu til Vestfjarða á
síðasta ári. Er það mesti fjöldi í
tíu ár en árið 1998 fluttu 246
erlendir ríkisborgarar til fjórð-
ungsins. Þá fluttu 60 erlendir rík-
isborgarar frá landshlutanum á
árinu. Nítján Íslendingar fluttu
til Vestfjarða í fyrra en 34 fluttu
þaðan. Þess má geta að um 550
erlendir ríkisborgarar voru bú-
settir í fjórðungnum í upphafi
síðasta árs.
Vestfirðir voru með jákvæðan
flutningsjöfnuð á fyrsta árs-
fjórðungi 2009 en aðfluttir um-
fram brottflutta voru 35 manns.
Var það í fyrsta sinn í 20 ár sem
flutningsjöfnuðurinn var ekki
neikvæður í landshlutanum.
– thelma@bb.is
Sorphirða boðin út í Ísafjarðarbæ
Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar
hefur samþykkt að farið verði í
útboð á sorphirðu, sorpflokkun
og sorpeyðingu í Ísafjarðarbæ.
Bæjarráði er falið að láta vinna
útboðsgögn og bjóða nágranna-
sveitarfélögum þátttöku í útboð-
inu. Skilyrði verði samkvæmt út-
boðinu að heimilt verði að sam-
þykkja hvaða tilboð sem er eða
hafna þeim öllum. Lagðar hafa
verið fram áætlanir um kostnað
við framtíðarfyrirkomulag í sorp-
málum. Þar ber töluvert í milli
aðferða í útreikningum, annars
vegar við aukna flokkun og bruna
og hins vegar við aukna flokkun,
endurvinnslu og urðun.
Með útboði vill bæjarstjórn
Ísafjarðarbæjar fá endanlegan úr-
skurð um kostnað við sorphirðu
og sorpeyðingu og tryggja að
hagkvæmasta leiðin fyrir íbúa
og fyrirtæki bæjarins verði farin.
Tillaga um að farið verði í útboð
á sorphirðu, sorpflokkun og sorp-
eyðingu í Ísafjarðarbæ var sam-
þykkt með fimm atkvæðum gegn
einu.
Jóna Benediktsdóttir lagði
fram svohljóðandi tillögu Í-lista:
,,Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar
samþykkir að vinna eftir tillögu
starfshóps um endurskoðun sorp-
mála í Ísafjarðarbæ. Starfshópur-
inn komst að þeirri niðurstöðu
að hagkvæmast væri, til lengri
tíma litið, að endurbyggja Funa.
Þessa niðurstöðu staðfesti Verk-
fræðistofan Verkís, eftir að hafa
framkvæmt úttekt á möguleikum
á sorpmálum Ísafjarðarbæjar, að
beiðni bæjarstjórnar.“ Bæjar-
stjórn felldi tillöguna með fimm
atkvæðum gegn fjórum.
Svanlaug Guðnadóttir sem er
formaður starfshóps um framtíð-
arfyrirkomulag sorpmála í sveit-
arfélaginu gerði grein fyrir at-
kvæði sínu með svohljóðandi
bókun: ,,Með hagsmuni íbúa Ísa-
fjarðarbæjar í huga telur undir-
rituð rétt að fara í útboð á sorp-
eyðingu og sorphirðu. Fram hafa
komið ýmsar efasemdir um þær
forsendur, sem lagðar eru til
grundvallar í skýrslu starfshóps-
ins. Tel ég að með tillögu þessari
séum við að taka af allan vafa
um hvaða leið er hagkvæmust
fyrir íbúa og atvinnulíf sveitar-
félagsins.“ – thelma@bb.is
Tillaga Í-listans um endurbyggingu Funa var felld.