Bæjarins besta


Bæjarins besta - 30.12.2009, Page 4

Bæjarins besta - 30.12.2009, Page 4
4 MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 2009 Inn að beini Soffía Vagnsdóttir,skólastjóri Afdrifaríkasta ákvörðun lífs þíns? Að þora að fara í sambúð með Hollendingi sem ég hafði umgengist lauslega í tvær vikur. Síðan leið hálft ár, þá kom hann með flugvél til Íslands og ég mundi varla hvernig hann leit út. Hann flutti inn til mín og hefur ekki farið síðan. Hvar langar þig helst að búa? Núna bý ég í Bolungarvík, en mig langar að búa aftur erlendis. Ég vil þó gjarnan ljúka æviskeiðinu á heimaslóð ef ég mun fá að eldast og hafa um það eitthvað val. Hver var hamingjusamasta stund lífs þíns? Fæðing fyrsta barnsins og svo barnanna koll af kolli. Það að fá að upplifa að eignast fimm heilbrigð börn sem öll eru að dafna svo ljómandi vel er ein allsherjar hamingjuruna! Mestu vonbrigði lífs þíns? Fyrst kemur upp í hugann bæjarstjórnar- slitin fyrir tveimur árum. Mesta uppgötvunin í lífi þínu? Að átta mig á hve manneskjan getur í eðli sínu verið breysk. Uppáhaldslagið? Úff – erfitt. Ég segi núna af því það er þessi árstími „Panis angelicus“ eftir César Franck ef ég man rétt. Uppáhaldskvikmyndin? Stella í orlofi og Grease. Uppáhaldsbókin? Núna – Viltu vinna milljarð. Tengi það við það sem ég er að segja nemendum mínum, - það borgar sig að vera athugull, eftirtektarsamur og lærdómsfús í lífi sínu almennt. Það getur komið sér vel síðar! Ógleymanlegasta ferðalagið? Ferð til Danmerkur og áfram rútuferð suður Evrópu til Garda- vatnsá Ítalíu með Ingu systur minni sem þá var 16 ára og Oddnýju æskuvinkomu okkar sem þá var 17 ára en sjálf var ég fimmtán ára. Þá upplifðum við þrumur og eldingar í fyrsta sinn, sáum hoppandi engisprettur og ókunnugt fólk elskast í Soffía Vagnsdóttir er skólastjóri í Grunnskóla Bolungarvíkur en hún er einnig bæjarfulltrúi í Bolungarvík. Henni er margt til lista lagt og hefur m.a. skrifað leikrit og er frumkvöðull Ástarvikunnar margrómuðu í Bolungarvík. Þegar Soffía var innt eftir svörum inn að beini kom í ljós að henni líkar að skipta um starf á fimm ára fresti eða svo. gegnum hótelherbergisglugga! Uppáhaldsborgin? Hef ekki mikið ferðast, en segi Tallin. Besta gjöfin? Það er gamall vindlakassi sem einn sona minna sendi mér þegar ég var á spítala í Reykjavík. Í kassanum eru nokkrar steinvölur, brotinn vaxlitur, eldspýtustokkur með mata- dorpeningi og miði sem stendur: „Elsku mamma ég vona að þú hafir áhuga á þessu“. Ég á reyndar margar og einstakar svona gjafir frá öllum börnunum mínum. Telur þú að líf sé á öðrum hnöttum? Ég hef ekki séð það, eða fengið staðfestingu á því en ég get ekki neitað því. Við vitum svo lítið mannlúsirnar um alheiminn. Hvaða hlutar geturðu alls ekki verið án? Símans, tölvunnar og aðgengis að tónlist í einhverju formi. Fyrsta starfið? Fyrsta alvörustarfið var launafulltrúastarf hjá Einari Guðfinnssyni hf., þar sem ég reiknaði út laun fyrir nærri 500 manns og bar peningana svo í taupoka frá bankanum á skrifstofuna. Taldi þá svo í umslög og rölti með umslögin í rólegheitum í trékassa sem ég bar undir arminum út í frystihús til að borga út. Þá var ég 17 ára. Draumastarfið? Mér líkar að skipta um starf á fimm ára fresti eða svo. Næsta draumastarf – rithöfundur eða málari. Hvaða frægu manneskju hefur þér verið líkt við? Kannski helst söngkonuna Cher, líklega út af nefinu! En ég held nú reyndar að hún hafi látið laga á sé nefið. Sú þörf þroskaðist af mér. Fallegasti staðurinn á Íslandi? Hesteyri í Jökulfjörðum. Skondnasta upplifun þín? Þegar ég var flettari í ameríska sendiráðinu í Reykjavík fyrir hollenskan jazzpíanóleikara. Hann var með kæk sem var þannig að hann var alltaf með höfuðið á fleygiferð.Sérstakur höfuðhnykkur átti svo að þýða flett, en maðurinn var bara alltaf að kasta til höfðinu svo ég fletti alltaf á vitlausum stað. Eftir að hann hafði lokið fyrsta verkinu, hneigði hann sig strunsaði út og ég á eftir, - sótti þar konuna sína sem var þá með í för og hafði jafnan flett fyrir hann. Hún þekkti hann betur en ég! Aðaláhugamálið? Bolungarvík og framtíð hennar. Besta vefsíðan að þínu mati? Ég veit það ekki – svei mér þá. Ber ekkert skynbragð á hvað er best, en vafra á margar ótrúlega áhugaverðar og upplýsandi vefsíður. Var t.d. á dögunum á ferðalagi um Madeira, - á alþjóðlegri heimasíðu kvenna í viðskiptum. Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir stór? Söngkona eða hárgreiðslukona. Hver er þinn helsti kostur að þínu mati? Glaðlyndi og jákvæðni. En helsti löstur? Fljótfærni og skortur á rýmisgreind svo eitthvað sé nefnt. Besta farartækið? Bíllinn. Hver er uppáhaldshátíðardagurinn þinn? Sjómannadagurinn hefur alltaf haft þann sess í mínum huga. Hvaða manneskju lítur þú mest upp til? Elsku mömmu, minnar Birnu Hjaltalín Pálsdóttur og Vigdísar Finnbogadóttur fyrrverandi forseta. Ef þú mættir heita hvað sem er, hvað myndirðu heita? Líklega bara Sólbjört Kát Vagnsdóttir, en það er ekki víst að mannanafnanefnd myndi samþykkja það. Á hvaða tíma sólarhrings kanntu best við þig? Á kvöldin og fyrripart nætur. Í hvaða stjörnumerki ertu? Ég er sporðdreki. Lífsmottóið þitt? Betra er að vakna á morgnana en að breiða sængina upp fyrir haus! Eða - kæfðu úr kærleik og þú munt uppskera ríkulega! Bæði heimatilbúin! Dagný Arnarsdóttir hefur verið ráðin fagstjóri haf- og strandsvæðanáms hjá Há- skólasetri Vestfjarða í fæð- ingarorlofi Sigríðar Ólafs- dóttur. Dagný hefur lokið meistaragráðu í umhverfis- og auðlindastjórnun frá Há- skóla Íslands eftir BA próf í fornleifafræði. Dagný er Vestmannaeyingur að upp- runa og segist allt að því hafa verið alin upp á bryggj- unni í Vestmannaeyjum. Hún segir flutningana leggj- ast vel í sig og að hún hlakki til að takast á við verkefnið. „Mér líst mjög vel á bæði bæinn og starfið og ekki síst alla starfsemina sem er í hús- inu sem Háskólasetrið er í. Ég hafði ekki gert mér grein fyrir að þetta væri svona stórt og mikil starfsemi und- ir einu þaki. Bærinn er líka öflugri en ég hafði haldið. Maður finnur svo greinilega að þetta er höfuðstaður fjórð- ungsins.“ Nýr fagstjóri Arnór ráðinn umdæmisstjóri Arnór Magnússon hefur verið ráðinn umdæmisstjóri Flugstoða á Vestfjörðum frá og með 1. janúar 2010. Arnór starfaði hjá Flugstoð- um frá 1984 til 2007 og vann þá í flugturninum. Síðast- liðið sumar kom hann svo inn í afleysingar og er nú orðinn umdæmisstjóri. Hann segir nýja stafið leggjast vel í sig, enda sé hann á heimavelli, þótt hann hafi ekki verið þarna megin við borðið áður. Hermann Halldórsson var settur um- dæmisstjóri síðastliðið vor þegar Guðbjörn Charlesson lét af störfum, en hann hefur nú horfið til annarra starfa.

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.