Bæjarins besta


Bæjarins besta - 30.12.2009, Qupperneq 10

Bæjarins besta - 30.12.2009, Qupperneq 10
10 MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 2009 Til sölu eða leigu Til sölu eða leigu er Hafnargata 9b í Bolung- arvík. Um er að ræða atvinnuhúsnæði á tveim- ur hæðum, samtals 580m² að stærð. Eignin er staðsett á blönduðu skipulagssvæði. Gæti hentað til breytinga. Hafnarstræti 19, Ísafirði sími 456 3244, fax 456 4547, netfang: eignir@fsv.is Íbúðir eða sumar- hús óskast til leigu SFR-stéttarfélag í almannaþjónustu óskar eftir íbúðum eða sumarhúsum á Ísafirði til fram- leigu fyrir félagsmenn sína sumarið 2010. Ein- ungis fullfrágengið húsnæði í góðu ásigkomu- lagi kemur til greina og lóðir þurfa einnig að vera fullfrágengnar. Áhugasamir sendi upplýsingar til Önnu Dóru Þorgeirsdóttur, verkefnastjóra SFR á netfangið dora@sfr.is fyrir 8. janúar næstkomandi. Allar almennar upplýsingar verða að koma fram s.s. verð, almennt ástand eignarinnar, stað- setning, stærð, möguleikar á fjölda gesta, ald- ur eignar, aðstaða (heitir pottar og slíkt), lýsing á útivistarmöguleikum og afþreyingu í næsta umhverfi, o.s.frv. Myndir eru einnig vel þegnar. Öllum tilboðum verður svarað. Atvinna Vífilfell á Vestfjörðum óskar eftir að ráða starfsmann / verktaka við vörumóttöku og áfyll- ingar í Samkaup á Ísafirði og Bónus við Skeiði. Um er að ræða starf sem fer fram að morgni dags, sex daga vikunnar auk eftirmiðdags á laugardögum. Aðeins stundvísir einstaklingar koma til greina í þetta starf. Þeir sem hafa áhuga á starfinu, vinsamleg- ast sendi umsókn á netf: haukurt@vifilfell.is. Vífilfell á Vestfjörðum Þorsteinn Haukur Þorsteinsson, svæðisstjóri Sjávarútvegs- og landbúnaðar- ráðuneytið hefur sagt upp leigu- samningi um ríkisjörðina Kleifa- kot í Ísafirði í Ísafjarðardjúpi sem Súðavíkurhreppur hefur leigt frá árinu 1992. Í bréfi frá ráðuneyt- inu kemur fram að leigusamn- ingur um jörðina, sem uppruna- lega var leigð Reykjarfjarðar- hreppi, framlengdist frá ári til árs nema að annar hvor aðili eða báðir myndu segja honum upp. Um er að ræða ræktað land og veiðirétt. Á liðnum árum hefur sveitar- félagið ráðstafað veiðirétti í Ísa- fjarðará til þriðja aðila. Í bréfinu kemur fram að það fyrirkomulag þyki ekki heppilegt og hyggst ráðuneytið auglýsa veiðiréttinn til leigu á ný. Á hinn bóginn kunna að vera beitarhagsmunir í Kleifakoti sem sveitarfélagið hefur áhuga á að nýta og er ráðu- neytið reiðubúið til viðræðna um nýjan samning um slík réttindi. – thelma@bb.is Hyggst auglýsa veiðirétt í Kleifakoti Álag á útsvar í Bolungarvík verður lækkað úr 10% í 5% á árinu 2010. Er það gert sam- kvæmt samningi Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga við bæjarstjórn Bolungarvíkur. Út- svarsprósentan fer því úr 14,61% í 13,94%. Þetta er gert með vísan til þess að fjárhagsáætlun fyrir árið 2009 hefur gengið eftir. Áætlanir gera ráð fyrir að álagið falli alfarið niður árið 2011. Á síðasta ári hækkuðu öll sveitarfélög á Vestfjörðum út- svarið í 13,28% sem er hæsta leyfilega útsvarsprósentan. Bol- ungarvíkurkaupstaður lagði að auki 10% álag á útsvarið og var því með hæsta útsvarið á landinu. Útsvarið má vera á bilinu 11,24% til 13,28% og skulu sveitarstjórnir ákveða það á hverju ári fyrir 1. desember hvert útsvarshlutfallið skuli vera á næsta tekjuári. Í ár 58 sveitarfé- lög af 79 á landinu útsvarið, en eitt sveitarfélag, Fljótsdalshrepp- ur, lækkaði það milli ára. Þrjú sveitarfélög á landinu lögðu á lágmarksútsvar eða 11,24%, allt fámenn sveitarfélög: Skorradals- hreppur, Helgafellssveit og Ása- hreppur. – thelma@bb.is Útsvarsprósentan lækk- uð í 13,94% í Bolungarvík „Málið er í skoðun,“ segir G. Pétur Matthíasson, upplýsinga- fulltrúi Vegagerðarinnar, að- spurður um þá klausu í fréttatil- kynningu Vegagerðarinnar að í skoðun sé að leggja af styrktar ferðir í Æðey og Vigur árið 2010. Samningurinn við Sjóferðir Haf- steins og Kiddýjar, sem hafa séð um ferðir til eyjanna tvisvar í viku, rennur út 1. apríl á næsta ári og fyrir þann tíma verður búið að finna lausn, að sögn G.Péturs. „Það sem er í skoðun er að breyta fyrirkomulaginu á ferðunum. En það kemur ekki til að þær verði lagðar af,“ segir G. Pétur. „Það verður búið að skoða þetta og semja upp á nýtt áður en samn- ingurinn rennur út. Því má fólk treysta,“ segir hann. Salvar Baldursson, bóndi í Vigur, segir að þar sem ekki sé lengur kúabú í eynni sé ekki eins brýnt að hafa ferðir tvisvar í viku, en einhverjar samgöngur verði þó að vera tryggðar. Hann segist hafa verið í sambandi við Vega- gerðina um málið og þetta hljóti allt að skýrast á næstu vikum. Guðrún Kristjánsdóttir, annar eigandi sjóferða Hafsteins og Kiddýjar, segist ekkert hafa heyrt frá Vegagerðinni um málið. Hún hafi bara rekið augun í frétt um það í Fréttablaðinu að í skoðun væri að hætta styrktum ferðum. „Þetta hafa ekki verið neinir styrkir,“ segir hún. „Við erum verktakar hjá Vegagerðinni og mér þykir undarlegt að þurfa að lesa um þetta í blöðunum.“ Ferðir í Æðey og Vigur verða ekki lagðar af Upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar fullyrðir að ekki standi til að hætta ferðum í Æðey og Vigur á nýju ári.

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.