Bæjarins besta


Bæjarins besta - 30.12.2009, Side 11

Bæjarins besta - 30.12.2009, Side 11
MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 2009 11 Ekki verður farið í dýpkun inn- siglingarrennunnar í Sundunum á Ísafirði á næsta ári, en verkið er meðal fjárfestinga sem felldar voru úr fjárhagsáætlun 2010 við fyrri umræðu. Verkið var sett á frest haustið 2008 vegna efna- hagsástandsins en framkvæmdin er talin nauðsynleg til að stór skemmtiferðaskip geti lagst að bryggju við Ásgeirsbakka. Að- staðan þar er orðin góð að lokinni nokkurra ára endurbyggingu en stór skip komast ekki að viðlegu- kantinum vegna þröngrar og grunnrar innsiglingu um Sundin. Stefna átti að því að Ásgeirsbakki yrði orðinn aðal viðlegukantur skemmtiferðaskipa frá og með árinu 2011. Áætlaður kostnaður við dýpkun innsiglingarrennunn- ar er 60 milljónir og þar af er hluti ríkis 75%. Móttaka skemmtiferðaskipa er nú þegar orðin talsverður hluti af starfsemi Ísafjarðarhafnar og fer fjöldi skemmtiferðaskipa ört vax- andi. Árið 2007 komu 25 skemmti- ferðaskip til hafnar á Ísafirði og þar af þrjú skip stærri en 50.000 brtn. Árið 2008 komu 21 skemmti- ferðaskip til hafnar á Ísafirði og þar af tvö skip stærri en 50.000 brt og árið 2009 komu 27 skemmti- ferðaskip til hafnar á Ísafirði þar af þrjú skip stærri en 50.000 brtn. Árið 2010 eru þegar skráð til hafnar á Ísafirði 25 skemmti- ferðaskip og þar af fjögur skip stærri en 50.000 brtn og forskráð á árið 2011 eru þegar þrjú skip að stærð upp undir 100.000 brtn. Við fyrri umræðu fjárhagsáætl- unar var einnig fallið frá endur- byggingu löndunarbryggju á Suð- ureyri sem hljóðar upp á 44 millj- ónir og borgar ríkið 60% af því. og lagfæringu á olíumúlanum við Ísafjarðarbæ en kostnaður var upphaflega 59 milljónir og er hluti ríkisins 60%. Fallið frá dýpkun Sundanna Kvenfélagið Hlíf eitt hundrað ára Á næsta ári verður Kvenfé- lagið Hlíf á Ísafirði 100 ára. Afmælisárið byrjar með um- sjón með álfadansinum á þrett- ándanum, að sögn Önnu Kar- enar Kristjánsdóttur, formanns félagsins, en í mars er mein- ingin að gefa út veglegt afmæl- isrit með ágripi af sögu félags- ins og í júní verður sett upp í Safnahúsinu á Ísafirði sögu- sýning um starfsemi félagsins undir leiðsögn Guðfinnu Hreið- arsdóttur, sagnfræðings. Tvær þriggja manna nefndir starfa að undirbúningnum á vegum kvenfélagsins, annars vegar sýn- ingarnefndin þar sem Guð- finna Hreiðarsdóttir er í for- svari og hins vegar ritnefnd afmælisblaðsins undir stjórn Jónu Símoníu Bjarnadóttur. Afmælisdagurinn sjálfur er 6. mars og þann 7. mars verður efnt til afmælissamsætis í Ed- inborgarhúsinu. Menningar- ráð Vestfjarða styrkti á dögun- um Kvenfélagið Hlíf í tilefni afmælisins og verður styrkur- inn notaður til að kosta útgáfu afmælisritsins og setja upp sögu- sýninguna. – fridrika@bb.is Sveitarstjórnarmenn vilja sam- ræmdar aðgerðir í ljósi þess að staða margra sveitarfélaga í land- inu er slæm og um leið afar mis- jöfn. „Þessi misjafna staða á sinn þátt í því að sveitarstjórnarmenn vilja að sveitarfélög samræmi að einhverju leyti aðgerðir sínar þegar kemur að erfiðum niður- skurði. Verði ekki gripið til sam- ræmdra tímabundinna aðgerða verður sjálfsagt erfiðara fyrir sveit- arstjórnarmenn að færa íbúum fregnir af erfiðum aðgerðum, s.s. að loka þurfi litlum skólum eða draga úr þjónustu, eigi slíkar að- gerðir sér ekki stað í næstu sveit,“ seagði á mbl.is. Halldór Hall- dórsson, formaður Sambands ís- lenskra sveitarfélaga, segir að of snemmt sé að segja til um heild- arstöðu sveitarfélaga þar sem ekki hafi öll birt fjárhagsáætlun. Þó sé ljóst að tekjur hafi ekki dregist eins mikið saman og óttast var. Á hinn bóginn hafi spá fjár- málaráðuneytisins um styrkingu gengisins ekki gengið eftir. Skömmu fyrir jólin 2008 var heimild sveitarfélaga til að leggja á útsvar hækkuð úr 13,03% í 13,28%. Langflest þeirra nýttu sér lagabreytinguna til að hækka útsvarið eins og við var að búast, í ljósi þeirra upplýsinga sem lágu fyrir um fjármál sveitarfélaga. Öll sveitarfélög á Vestfjörðum nýttu sér hæstu leyfilegu útsvars- prósentuna. Bolungarvíkurkaup- staður lagði að auki 10% álag á útsvarið sem þýðir að útsvarið var í raun 14,61% í ár. Önnur sveitarfélög héldu aftur af sér, en nú er ljóst að mörg þeirra hafa sprungið á limminu. Mjög misjafnt er hvort önnur gjöld hækka. Nokkuð er um að sorphirðugjöld hækki, að sögn Halldórs. Hann bendir á að sorp- hirðugjöldin eigi að endurspegla raunkostnað sem hafi hækkað gríðarlega án þess að gjöldin hafi fylgt eftir. „Við höfum verið að nota aðra fjármuni sveitarfélaga til að greiða niður þessa þjónustu. Það er ótrúlega stutt síðan opnir öskuhaugar voru við hvert sveit- arfélag, krakkar að leika sér að kveikja í og elta rottur. Þetta er ekki svona lengur,“ segir hann. Viðræður hafa verið milli sveit- arfélaga og menntamálaráðherra um að vikuleg kennsluskylda verði minnkuð, einkum í eldri bekkjum. Halldór segir að fækk- un kennslustunda gæti sparað sveitarfélögum í landinu á bilinu 900-1.400 milljónir. „Sveitarfé- lögin kalla eftir þessu. Þau verða að fá eitthvað,“ sagði Halldór. Um síðustu áramót voru skuldir sveit- arfélaga 194 milljarðar og voru þá ótaldar lífeyrisskuldbindingar og skuldbindingar utan efnahags. Ljóst er að einstaka sveitarfélög hafa skuldsett sig of mikið, nán- ast til óbóta. Á vettvangi sveitarfélaga og samgönguráðuneytisins hefur undanfarið verið rætt um stífari reglur, jafnvel að lántökum sveit- arfélaga yrðu settar skorður með lögum. Halldór bendir á að hann og Árni M. Mathiesen þáverandi fjármálaráðherra hafi, löngu fyrir hrun, ritað undir viljayfirlýsingu um að sveitarfélög setji sér fjár- málareglur. Því miður hafi ekki tekist að klára þá vinnu. „Ég tel að fjármálareglur þurfi að setja og fjármálakafla sveitar- stjórnarlaganna þurfi að endur- skoða frá A til Ö.“ Í fjármála- reglum væri t.d. áskilið að sveit- arfélög yrðu að vinna með ríkinu í hagstjórn og halda aftur af sér á þenslutímum. Einnig væri hugs- anlegt að settar yrðu skorður við því hversu mikið sveitarfélög mættu skuldbinda sig, með tilliti til tekna. – thelma@bb.is Vilja samræmdar aðgerðir Halldór Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga og bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar.

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.