Bæjarins besta - 30.12.2009, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 2009
Erfiðu ári lokið
Stakkur hefur ritað vikulega pistla í Bæjarins besta í mörg ár. Skoðanir hans á mönnum og málefnum
hafa oft verið umdeildar og vakið umræður. Þær þurfa alls ekki að fara saman við skoðanir útgefenda blaðsins.
Þrátt fyrir það bera ábyrgðarmenn blaðsins ábyrgð á skrifum Stakks á meðan hann notar dulnefni sitt.
Stakkur skrifar
smáar
Oft er sagt að ekki eigi að
gera upp söguna fyrr en atburðir
fjarlægjast og nándin verður minni. Liðnir atburðir sjáist þá í skýr-
ara ljósi. Fátt er þó mikilvægara en skrá atburði jafnóðum þannig
að mikilvægar staðreyndir glatist ekki. Hvað bar hæst á árinu sem
er að líða? Þrjár ríkisstjórnir sátu við völd, fyrst stjórn Samfylkingar
og Sjálfstæðisflokks, sem verður minnst fyrir hrunið, síðan minni-
hlutastjórn Vinstri grænna og Samfylkingar með stuðningi Fram-
sóknarflokks og loks sama stjórn með þingmeirihluta að baki eftir
Alþingiskosningar. Sú kennir sig við norræna velferð. Vinstri
stjórn hefur því setið frá 1. febrúar á þessu ári. Allir flokkarnir á
Alþingi hafa verið við stjórnvölinn, nema (Borgara)Hreyfingin
og Frjálslyndi flokkurinn,sem hvarf af þingi í kosningunum 25.
apríl.
Þegar fram í sækir munu margir spyrja hvað hafi verið gert til
góðs á árinu. Verkin hafa verið ærin, flókin og yfirgripsmikil og
um margt staðið deilur. Skipaður var sérstakur saksóknari til að
sækja þá til saka sem hafa framið efnahagsbrot í tengslum við fall
bankana á Íslandi í október 2008. Spyrja má hvort ekki hefði verið
eðlilegra að styrkja þær stofnanir sem fyrir voru, lögreglu, ríkissak-
sóknara og dómstóla. Enn á eftir að koma í ljós hver árangurinn
verður. Um það spyrja Íslendingar framtíðarinnar. Nú hafa tveir
úr neðri lögum bankanna verið dæmdir fyrir kerfissvik. Hvað
verður um hákarlana? Afgreiðslu ábyrgða vegna Icesave rugls
Landsbankans er ólokið enn og deilur harðar. Seðlabankinn
liggur undir ámæli fyrir kæruleysi á síðustu stigum græðgistímans.
Hvað tekur við á Íslandi? Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn, sem
margir hafa ekki mikið álit á, ræður miklu um framtíð okkar
ásamt lyktum Icesave. ,,Vinir“ okkar á Norðurlöndum segjast
vilja hjálpa okkur, en ekki fyrr en íslenska ríkið hefur tekið á sig
ábyrgð á Icesave. Meðan ekki er lokið afgreiðslu þess hörmulega
erindis verður allt fast. Álit Íslendinga erlendis er lítið og mun
ekki vaxa á næstunni. Íslenska þjóðin er í spennutreyju misviturra
stjóra Landsbanka. Þeir lögðu til efnið í treyjuna sem stjórnmála-
menn vefa í samráði við ríki sem enga samúð hafa með Íslending-
um. Sótt hefur verið um inngöngu í Evrópusambandið og um það
verður deilt hart. Kvótakerfið skal skorið upp ófyrirsjáanlegum
afleiðingum. Atvinnuleysi hefur vaxið og komið illa niður á
mörgum ásamt hækkuðum sköttum á öllum sviðum. Margir sjá
ekkert nema svartnættið og nú vantar teikn á himni um eitthvað
sem gefur til kynna ljósari tíð. En ekkert sést við sjóndeildarhring.
Við tekur erfitt ár og ekki auðvelt að greina ljós í myrkrinu, En
þjóðin hefur lifað af margar þrautir og vonandi gerir hún það án
þess að á bresti landflótti. Í barnslegri einfeldni er von lögð á betri
tíð. Með þökkum fyrir samfylgdina á liðnu ári og óskir um gleði-
legt nýtt ár 2010.
Til sölu er sófaborð frá Lín-
unni, fataskápur frá Rúmfata-
lagernum og borðstofuborð
og sex stólar, borðstofuskáp-
ur og sjónvarpsskápur frá
Mexíco. Fæst á mjög lágu verði.
Upplýsingar í símum 858 8858
og 895 7121.
Til sölu er nýleg eldavél. Selst
ódýrt. Uppl. í síma 456 7160
eða 867 6567.
Óska eftir notaðri þvottavél,
gefins eða mjög ódýrt. Uppl.
í síma 898 1588.
Ferðaþjónustan í Reykjanesi
við Ísafjarðardjúp hefur óskað
eftir leyfi Ísafjarðarbæjar til að
setja upp söluskála og salernis-
aðstöðu og breyta legu á bensín-
afgreiðslu í Reykjanesi. Eru
framkvæmdirnar hugsaðar til að
taka á móti aukinni umferð sem
vænta má með tilkomu breytinga
sem gerðar hafa verið á Djúp-
vegi, en ferðaþjónustuaðilar í
Reykjanesi hafa tekið eftir aukn-
ingu á umferð frá því að Mjóa-
fjarðarbrúin var opnuð.
Ísafjarðarbær er landeigandi
og er samþykki bæjaryfirvalda
forsenda þess að hægt sé að
sækja um byggingaleyfi hjá
Súðavíkurhreppi. Bæjarráð tekur
jákvætt í erindið og hefur vísað
því til frekari skoðunar í um-
hverfisnefnd.
Huga að auk-
inni umferð
Fjárfesta fyrir 198 millj-
ónir króna á næsta ári
Rekstur Ísafjarðarbæjar mun
skila 244,5 milljónum króna á
næsta ári gangi fjárhagsáætlun
eftir. Verður sú upphæð nýtt til
greiðslu fjárfestinga að upphæð
198,4 milljónum og mismunur-
inn, 46.122 milljónir, fara til að
greiða niður skuldir. Þetta kemur
fram í stefnuræðu Halldórs Hall-
dórssonar, bæjarstjóra Ísafjarð-
arbæjar, að lokinni síðari um-
ræðu fjárhagsáætlunar 2010. Um
töluverða hækkun er að ræða frá
árinu 2009 á þeirri upphæð sem
ætluð er í fjárfestingar en í fyrra
drógu bæjaryfirvöld fjárfestingar
niður í 33 milljónir króna. Að
teknu tilliti til breytinga milli um-
ræðna hækkar framlegð frá
rekstri úr 243.392 milljónum í
244.522 milljónir.
Farið var í ýmsar aðgerðir til
hagræðingar á árinu sem er að
líða. Helstu innkaup voru stöðv-
uð haustið 2008. Dregið var úr
framkvæmdum strax um vorið
2008. Það ár var mikið fram-
kvæmdaár þar sem lokið var við
stórverkefnið viðbygging við
Grunnskólann á Ísafirði. Mikils
aðhalds hefur verið gætt varðandi
allan rekstur og fyrirmæli til
stjórnenda um að halda aftur af
öllum innkaupum sem mögulegt
er.
Laun bæjarstjórnar og nefnda-
fólks voru lækkuð í samræmi
við lækkun þingfararkaups og
fundum fækkað að meðaltali um
30%. Yfirvinna var lækkuð um
10%, samningar um akstur end-
urskoðaðir og felldir niður í þeim
tilvikum þar sem sérstakur bíll
kemur alfarið í staðinn fyrir notk-
un starfsmanna á eigin bifreið í
þágu Ísafjarðarbæjar.
„Alls staðar er samræming í
innkaupum t.d. fær hver skóli
úthlutað eftir nemendafjölda fjár-
magni í alla þá liði sem skóla-
stjórar geta haft áhrif á. t.d. á
innkaup á ritföngum, efni til verk-
greinakennslu og fl. Minni skól-
arnir fengu þó úthlutað um 20 -
30 % hærri upphæðum en GÍ.
Misjafnt var milli skóla hvort að
þessi samræming hækkaði eða
lækkaði liði þeirra. En sem dæmi
þá lækkaði GÖ um rúmlega
700.000 á þessum ákveðnu lið-
um. Akstur var dreginn saman
og er nú gengið út frá því að hver
skóli sé sem nemur 60 ferðum á
ári milli skólans og Ísafjarðar.
Skólaakstur hjá þeim aðilum sem
eru eingöngu að aka sínum eigin
börnum lækkaður niður í akst-
ursgjald ríkisins,“ segir í stefnu-
ræðu bæjarstjóra.
Við launaáætlanir var gert ráð
fyrir lágmarks forföllum og auka-
tímum s.s. í tengslum við félags-
störf. Helstu lækkanirnar sem eru
í launum á fræðslusviði eru í
raun að koma inn frá fyrra ári þar
sem lækkunin hófst fyrst og fremst
1. ágúst 2009 á nýju skólaári.
Hagrætt hefur verið í rekstri
íþróttamannvirkja með því að
draga úr opnunartíma og hag-
ræða í starfsmannahaldi. Styrkir
til menningarmála o.fl. mála-
flokka voru árið 2009 lækkaðir
um allt að 50% frá fyrra ári.
Samið við HSV um lækkun á
framlagi þó þannig að sú hagræð-
ing komi ekki niður á ástundun
barna og ungmenna.
Að lokinni síðari umræðu
verður endanleg fjárhagsáætlun
gefin út með gjaldskrám, stefnu-
ræðum, efnahagsreikningi og
öðrum fylgigögnum.
– thelma@bb.is
Stjórnsýsluhúsið á Ísafirði.
Gylfi Guðmundsson var
endurkjörinn formaður Fé-
lags opinberra starfsmanna
á Vestfjörðum á aðalfundi
þess á dögunum. Þá var
Gunnfríður Magnúsdóttir
kjörin ritari og Henrý Bær-
ingsson varaformaður.
Frosti Gunnarsson var
kosinn gjaldkeri og Guð-
björg Gísladóttir meðstjórn-
andi. Í varastjórn voru kjörin
Hlynur Aðalsteinsson, Mar-
grét Gunnarsdóttir og Alma
Björk Sigurðardóttir.
Gylfi endurkjör-
inn formaður