Bæjarins besta - 30.12.2009, Side 13
MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 2009 13
Vesturverk ehf. hefur krafist
þess að raforkulögum verði breytt
þannig að Landsnet fái lagalega
heimild til að fella niður tengi-
gjald vegna Hvalárvirkjunar.
Þetta kemur fram í svari iðnaðar-
ráðherra við fyrirspurn Eyrúnar
Ingibjargar Sigþórsdóttur á Al-
þingi um endurskoðun raforku-
laga. Þar segir að ráðuneytið hafi
leitað eftir afstöðu Landsnets til
erindis Vesturverks sem benti á
að við núverandi lagaumhverfi
telji fyrirtækið ekki mögulegt að
fella niður tengigjöld einstakra
viðskiptavina vegna þeirra áhrifa
sem það hefði á almenna gjald-
skrá. Þá er bent á að lagabreyt-
ingar í þessu efni kalli augljós-
lega á aðrar fjármögnunarleiðir,
t.d. niðurgreiðslur úr ríkissjóði
eða álagningu einhvers konar raf-
orkujöfnunargjalda.
Ráðuneytinu hefur enn fremur
borist áskorun frá Ísafjarðarbæ,
Fjórðungssambandi Vestfirðinga
og Orkubúi Vestfjarða þar sem
þeim eindregnu tilmælum er
beint til ríkisstjórnarinnar að hún
beiti sér fyrir því að tengigjöld
Hvalárvirkjunar verði greidd úr
ríkissjóði.
Ráðherra bendir á að í sam-
ræmi við ákvæði raforkulaga er
starfandi nefnd til að endurskoða
raforkulögin. Þeirri endurskoðun
á að ljúka fyrir 31. desember
2010. Erindi Vesturverks hefur
verið kynnt nefndinni og mun
hún taka afstöðu til þess hvort
lagðar verði til breytingar á 8.
mgr. 12. gr. sem og öðrum grein-
um raforkulaga. Þegar tillögur
nefndarinnar liggja fyrir verður
tekin afstaða til þeirra.
Að auki benti ráðherra á að
skipaður hefur verið ráðgjafa-
hópur til að fara yfir fyrirliggjandi
tillögur Landsnets um leiðir til
að bæta raforkuöryggi á Vest-
fjörðum. Hópnum er jafnframt
falið að leggja mat á það til hvaða
aðgerða þurfi að grípa til að bæta
samkeppnisstöðu Vestfjarða með
tilliti til möguleika svæðisins til
áframhaldandi atvinnuuppbygg-
ingar og fjalla um mismunandi
möguleika á að nýta raforku til
atvinnuuppbyggingar á Vest-
fjörðum á næstu árum. Hópnum
er falið að skila ráðherra greinar-
gerð fyrir lok ársins en honum
ber í störfum sínum að hafa sam-
ráð við sveitarfélög á Vestfjörð-
um. – thelma@bb.is
„Ekki mögulegt að fella niður tengi-
gjöld í núverandi lagaumhverfi“
Skátafélagið Einherjar vinn-
ur nú að því að gera upp Skáta-
skálann Valhöll í Tungudal.
Meðal þess sem gert hefur
verið er að innrétta gestahúsið
Tígul í gömlum stíl. Vildu Ein-
herjar hafa þar þvottastand,
eða servant sem svo er kallað-
ur, sem er nokkurs konar
snyrtiborð þar sem vatnskanna
og þvottaskál standa. Upphófu
Einherjar mikla leit að slíkum
servanti, en hann reyndist með
öllu ófáanlegur. Gripu þeir þá
til þess ráðs að fá Örn Snorra
Gíslason til að hanna servant
sem Guðmundur Halldórsson
smíðaði síðan. Útkoman er
glæsileg eins og sjá má á með-
fylgjandi mynd.
Ekki tók betra við þegar leit
að emaleraðri vatnskönnu og
þvottafati hófst. Reyndist slíkt
með öllu ófáanlegt og voru
Einherjar komnir í samband
við breska aðila um að hafa
milligöngu um kaupin. Eitt
sett fannst þó að lokum í versl-
un í Árbænum í Reykjavík.og
er nú servanturinn tilbúinn til
notkunar.
– fridrika@bb.is
Urðu að smíða
servantinn sjálfir
Guðmundur Halldórsson á heiðurinn
af þeirri listasmíð sem servanturinn er.
Fjórir starfsmenn Fjórðungssjúkrahússins á Ísafirði voru kvaddir með veglegu kaffisamsæti á
sjúkrahúsinu stuttu fyrir jól. Samanlagður starfsaldur þeirra var á annað hundrað ár. Það voru
hjúkrunarfræðingarnir Helga Sigurgeirsdóttir og Ingibjörg Sigurlaugsdóttir, læknaritarinn Ást-
hildur Ólafsdóttir og ræstitæknirinn Guðrún Kristjánsdóttir. Voru þeim færðar gjafir og þökkuð vel
unnin störf.
Hætta störfum eftir rúm 100 ár
Landsbankinn styrkir
barna- og unglingastarf
Landsbankinn og Boltafélag
Ísafjarðar hafa undirritað sam-
starfssamning til tveggja ára um
víðtækan stuðning bankans við
barna- og unglingastarf á vegum
félagsins. Með samningnum
verður Landsbankinn áfram einn
af aðalstyrktaraðilum Boltafélags
Ísafjarðar. Samningurinn felur
meðal annars í sér að á hverju ári
verður skipulagt sérstakt Lands-
bankamót í knattspyrnu fyrir
yngri aldurshópa. Það voru Svav-
ar Þór Guðmundsson, formaður
Boltafélags Ísafjarðar og Inga Á.
Karlsdóttir, útibússtjóri Lands-
bankans á Ísafirði sem undirrit-
uðu samstarfssamninginn í íþrótta-
húsinu við Torfnes að viðstödd-
um nemendum í fótboltavali í
Grunnskóla Ísafjarðar. Þau lýstu
bæði yfir ánægju sinni með sam-
starfið.
„Samstarfssamningur við Bolta-
félag Ísafjarðar er Landsbankan-
um mikils virði og við hlökkum
til að standa þétt að baki einu
öflugasta íþróttafélagi bæjarins,“
segir Inga Á. Karlsdóttir. „Við
metum stuðning Landsbankans
mjög mikils. Hann mun hafa
mikla þýðingu, ekki síst fyrir
barna- og unglingastarfið,“ segir
Svavar Þór Guðmundsson, for-
maður Boltafélags Ísafjarðar.
Svavar Þór Guðmundsson, formaður BÍ, og Inga
Á. Karlsdóttir, útibússtjóri Landsbankans undir-
rituðu samstarfssamning í íþróttahúsinu við Torfnes.