Bæjarins besta - 09.06.2011, Síða 4
4 FIMMTUDAGUR 9. JÚNÍ 2011
Finnbogi
hættur
störfum
Finnbogi Oddur Karlsson
læknir hefur látið af störfum
á sjúkrahúsinu á Ísafirði. Í
aðsendri grein á bb.is í síð-
ustu viku, sem einnig er birt
hér í blaðinu, segist hann
ekki hafa hætt að eigin frum-
kvæði heldur var honum tjáð
á fundi með yfirlæknum
Heilbrigðisstofnunar Vest-
fjarða að ekki væri vilji fyrir
að hafa hann lengur við störf.
„Ég fer ekki að eigin frum-
kvæði en sáttur við menn og
málleysingja, sé bjarta fram-
tíð mér og ykkur til handa
og vona að engum sárni far-
arsniðmátið. Ekki er alltaf á
allt kosið og ekki eru öll
sjálfráð augnablik lífs okkar,
en við berum ábyrgð sjálf
og enginn er sterkari en við
að í að aðlaga eigin háttu,“
skrifar Finnbogi.
Rekja bolta
um götur
5. flokkur karla hjá BÍ ætl-
ar þriðjudaginn 14. júní að
láta reyna á hæfileikana og
úthaldið á sama tíma með
því að rekja bolta um allar
götur Ísafjarðar frá Holta-
hverfi og niður í bæ. Í 5.
flokki eru um 15 til 20 spræk-
ir strákar á aldrinum 11 til
12 ára. Þeir munu taka þátt í
Íslandsmótinu í knattspyrnu
í sumar undir merkjum BÍ/
Bolungarvíkur. Þeir hafa
lagt hart að sér við æfingar í
allan vetur og mikil tilhlökk-
un er í hópnum fyrir sumarið.
„Á Ísafirði er um 65 götur
og því eiga strákarnir mikið
verk fyrir höndum að rekja
boltann um þær allar. Þeir
eru þó ákveðnir í að klára
verkið á einum degi. Hér er
um samstilltan hóp að ræða
sem er undir styrkri stjórn
Atla Freys Rúnarssonar
þjálfara,“ segir í tilkynningu.
Ferðablaðið Vestfirðir 2011 komið út
Ferðablaðið Vestfirðir sumarið
2011 er komið út og hefur verið
dreift á upplýsingamiðstöðvar,
bensínstöðvar og aðra áningars-
taði ferðafólks um land allt.
Meðal fjölbreytts efnis í blaðinu
má nefna umfjöllun um sérstæð
söfn á Vestfjörðum, friðlandið
Hornstrandir og hinar ýmsu bæj-
arhátíðir. Einnig er þar að finna
reynslusögur þriggja þjóðþekktra
kvenna sem allar hafa heillast af
landshlutanum en það eru þær
Inga Lind Karlsdóttir, Eva María
Jónsdóttir og Vigdís Grímsdóttir.
Blaðið liggur að venju frammi
án endurgjalds á viðkomustöðum
ferðafólks og víðar um land allt.
Sunna Dís Másdóttir annaðist rit-
stjórn og efnisvinnslu en Birgir
Örn Sigurjónsson sá um hönnun
og umbrot.
„Ferðablaðið Vestfirðir kemur
nú út sautjánda árið í röð. Það
gefur auga leið að slíkt blað getur
aldrei gert skil öllu því sem í
boði er á svæðinu – enda væri þá
um að ræða doðrant sem hvorki
færi vel í tösku né hendi. Það er
hins vegar von aðstandenda að
ferðalangar finni hér einhverjar
hugmyndir að viðkomustöðum
á leið sinni um undralandið eða
afli sér aukins fróðleiks um land
og sögu,“ segir í ávarpi ritstjóra
blaðsins.
– thelma@bb.is
Forsíðumyndin í ár er af
Sigurði Atlasyni galdra-
manni á Ströndum. Ágúst G.
Atlason tók myndina.
Ráðið í 15 störf á Flateyri
Átaksverkefni í atvinnumálum
á Flateyri hófst í þessari viku á
vegum Ísafjarðarbæjar og Vinnu-
málastofnunar og mun sveitar-
félagið ráða til sín 15 manns af
atvinnuleysisskrá í störf við ýmis
verkefni í þorpinu. Má þar nefna
flutning á Pakkhúsi, skönnun
teikninga fyrir tæknideild Ísa-
fjarðarbæjar, flokkunarstörf fyrir
Héraðsskjalasafnið og ýmiss
konar átakstengd umhverfisverk-
efni. Flest störfin verða unnin á
Flateyri en þau sem tengjast
skjalaflokkun verða unnin á Ísa-
firði og greiðir Ísafjarðarbær fyrir
flutning starfsmanna á milli byggða-
kjarna.
Vinnumálastofnun á Vestfjörð-
um hefur fengið 10 milljóna
króna framlag sem eyrnamerkt
er átaksverkefnum á Flateyri og
hefur stofnunin fundið fólk af
atvinnuleysisskrá til þessara
starfa. Nánari útfærsla verkefna
og stjórnun þeirra er í höndum
tæknideildar Ísafjarðarbæjar. Það
er von bæjaryfirvalda að þetta
átak verði ekki eingöngu til að
koma fólki aftur út á vinnumark-
aðinn heldur einnig til bæjar-
prýði.
Staðan í atvinnumálum Flat-
eyringa síðasta hálfa árið ætti að
vera öllum ljós sem á annað borð
fylgjast með fréttum. Enn er
fjöldi fólks atvinnulaus í bænum
og hefur verið unnið markvisst
að málefnum þess undanfarna
mánuði. Samráðshópur hefur hist
reglulega á Flateyri síðan Fisk-
vinnslan Eyraroddi var tekin til
gjaldþrotaskipta, en hópinn skipa
auk heimamanna fulltrúar ýmissa
stofnana stoðkerfisins á svæðinu.
Félagsþjónusta Ísafjarðarbæjar
hefur boðið upp á vikulega
viðtalstíma á Flateyri og Fræð-
slumiðstöð og Vinnumálastofn-
un hafa verið með námskeiða-
hald, svo eitthvað sé nefnt. Þá
hefur verið rekin eins konar fé-
lagsmiðstöð á Flateyri frá því í
janúar og hefur yfirumsjón starf-
seminnar að mestu verið í hönd-
um Rauða krossins og húsráð-
enda í Félagsbæ.
„Áfallið sem Flateyringar urðu
fyrir í vetur var mikið og því skal
ekki haldið fram að unnið hafi
verið að fullu úr þeim málum.
Það er þó mikilvægt að íbúar
Flateyrar átti sig á að þeir standa
ekki einir í baráttunni og róið
skal að því öllum árum að tryggja
byggð í þorpinu. Átaksverkefnið
í sumar er lítið skref í þá átt og
verður vonandi til að brúa bilið
þar til fiskvinnsla kemst aftur í
gang á Flateyri,“ segir í tilkynn-
ingu frá Ísafjarðarbæ.
– thelma@bb.is
Pönnukökubarinn hefur verið opnaður á Ísafirði en hann er
hugsaður sem kaffi- og smáréttahús. Að sögn Auðar Aradóttur
er starfsemin þó ekki komin á fullt. „Við erum búin að opna en
erum bara svona í rólegheitunum enn sem komið er og ekki
kominn fastur opnunartími.“ Hún segir viðtökurnar hafa verið
góðar, sérstaklega miðað við að opnun staðarins hafi ekkert
verið auglýst. „Við erum með bráðabirgðamatseðil sem inni-
felur kjötsúpu og smurt brauð. En við eigum eftir að innleiða
fylltar pönnukökur og ýmislegt fleira góðgæti eftir að formleg
opnun hefur farið fram,“ segir Auður. Pönnukökubarinn er til
húsa að Austurvegi 1 þar sem verslunin Orkusteinn var áður.
–thelma@bb.is
Pönnukökubarinn opnaður í rólegheitum
Auður Aradóttir á Pönnukökubarnum.