Bæjarins besta


Bæjarins besta - 09.06.2011, Síða 15

Bæjarins besta - 09.06.2011, Síða 15
FIMMTUDAGUR 9. JÚNÍ 2011 15 Nýr samgöngumáti á Ísafirði? Leið ehf. í Bolungarvík hefur lagt til við bæjaryfirvöld í Ísa- fjarðarbæ, að þar verði sett upp skilti fyrir þá sem óska eftir bíl- fari. Fyrir nokkru samþykktu Bolungarvíkurkaupstaður og Súðavíkurhreppur beiðni Leiðar þessa efnis. Um er að ræða tilraun með nýjan samgöngumáta sem nefndur er samnýting ökutækja. Skiltum er komið upp á vel völd- um stöðum og með því að standa við skiltið gefur sá hinn sami til kynna að hann óski bílfars gegn hóflegu gjaldi. „Eftir því sem næst verður komist hefur sá ferðamáti sem skiltin bjóða ekki verið mikið notaður, ekki enn sem komið er a.m.k., enda mikill meirihluti þeirra sem fara um á eigin öku- tækjum. Með auknum fjölda ferðamanna á komandi sumri er þó ekki ólíklegt að fleiri muni nýta sér þau,“ segir í bréfi Leiðar til Ísafjarðarbæjar. Skiltum hefur verið komið fyrir skammt utan við Hrafnaklett í Bolungarvík og við veitinga- staðinn Ömmu Habbý í Súðavík. „Þó er sá galli á fyrirkomulaginu eins og það er nú að skiltin gefa aðeins kost á bílfari til Ísafjarðar en ekki til baka. Því er hér með gerð tillaga um að sams konar skilti verði sett upp sem hentað gæti þeim sem komast þurfa frá Ísafirði til Bolungarvíkur eða Súðavíkur,“ segir í bréfinu. Tilraunin er gerð á grundvelli samnings Leiðar ehf. og sveitar- félaganna og mun standa allt að sex mánuði. Að þeim tíma lokn- um verður metið hvernig til hefur tekist. Í bréfi Leiðar er jafnframt vakin athygli á að ýmislegt kunni að mæla með því að tilraunin verði gerð víðar í byggðakjörnum Ísafjarðarbæjar, svo sem í Hnífs- dal, á Suðureyri, Flateyri og Þing- eyri. – thelma@bb.is Komið hefur upp skiltum í Bolungarvík og Súðavík þar sem fólk getur nýtt sér samgöngumátann. Ekki meiri götulýsing Vegagerðin segist ekki geta orðið við beiðni Ísafjarð- arbæjar um aukna götulýs- ingu á Suðureyri og Flateyri. Fram kemur í svari Vega- gerðarinnar að ekki sé hægt að verða við beiðninni sökum niðurskurðar á heimildum til götulýsingar. „Fjárheimildir til lýsingar gatna hafa verið skornar veru- lega niður og er leitað leiða til að draga úr kostnaði. Í umræðunni er að stytta veru- lega lýsingartíma eða jafnvel að hætta alveg að lýsa ein- staka vegi. Eðlilegast er að stefna að því að vegir séu ekki notaðir sem gönguleiðir enda getur af því stafað hætta,“ segir í bréfi Vega- gerðarinnar. Úttekt á leikvöllum bæjarins Bæjarráð Ísafjarðarbæjar hefur óskað eftir að gerð verði allsherjar úttekt á leikvöllum á vegum sveitarfélagsins. Var það samþykkt á bæjarráðs- fundi þar sem lagt var fram bréf frá Umhverfisstofnun. Þar minnir stofnunin sveit- arstjórnir sem rekstraraðila leiksvæða á ábyrgð þeirra hvað varðar öryggi leikvalla- tækja og leiksvæða. Þá barst stofnuninni ábending frá Neytendastofu á síðasta ári um að á leiksvæðum kunni að vera notuð leiktæki sem uppfylla ekki ákvæði reglu- gerðar um öryggi leikvalla- tækja og leiksvæða. Báturinn Steinunn HF, sem er í eigu útgerðarfélagsins Kambs ehf., verður á handfærum frá Flateyri í sumar. Kambur er í eigu Hinriks Kristjánssonar útgerðar- manns, sem rak fiskvinnslu undir merkjum félagsins á Flateyri fram til ársins 2007. „Það er gott að gera út á Vestfjörðum og við ætlum að róa á handfæri í sumar. Stefnan er að gera út frá Flateyri en það fer líka eftir aflabrögðum hvar hagkvæmast verður að landa. Þetta er í annað sinn sem við gerum þetta, en síðasta sumar reri Kristján ÍS frá Flateyri á handfæri og það gekk vel. Krist- ján ÍS kemur einnig vestur um leið og veður leyfir,“ segir Hin- rik. „Þessir strákar sem eru að róa fyrir mig eru allir Vestfirðingar og vilja gjarna róa héðan og ekki ætla ég að standa í vegi fyrir þeim ef þeirra vilji er í þá átt,“ segir Hinrik, sem aðspurður segir ekki ákveðið hve lengi bátarnir verði á Flateyri. „Þeir verða hér allavega í sumar og svo sjáum við til með framhaldið. Ég sé að umræðan hér fyrir vestan snýr mjög að háum flutningskostnaði, eins og hún hefur reyndar gert í fjöldamörg ár, en sá kostnaður getur sett í strik í reikninginn. Það er margt sem mælir með því að gera hér út í haust frekar en fyrir sunnan. Þetta veltur allt á því hvað er hagkvæmt og ef það verður hagkvæmt, þá gerum við það,“ segir Hinrik. Steinunn HF er Cleopatra 38 og Kristján ÍS er Cleopatra 31. „Reyndar er stefnan að selja Kristján ÍS og kaupa annan 38- bát, en við fáum hann ekki fyrr en eftir sjávarútvegssýninguna í haust,“ segir Hinrik. Báðir bát- arnir eru í krókaaflamarkskerf- inu. Skv. upplýsingum í Skipa- skrá var aflamarksstaðan á Krist- jáni ÍS tæp 210 tonn af þorski og 120 tonn af ýsu. Aflamark Stein- unnar HF var 240 tonn af þorski og 120 tonn af ýsu. Hinrik hefur rekið fiskvinnslu í Hafnarfirði síðastliðin tvö ár og segir hann bátana koma til með að landa í vinnsluna. „Vinnslan gengur vel og við erum nýbúnir að fjárfesta í flæði- og pökkunar- línum og höfum verið að fjölga hjá okkur starfsfólki.“ Hinrik á einnig fasteignir á höfninni á Flateyri, þar á meðal vinnsluhús þar sem fiskmarkaðurinn var áð- ur. Spurður hvort til standi að vinna fiskinn á Flateyri áður en hann er fluttur segir Hinrik það koma til greina. „Það verður alla- vega ekki í sumar, en við ætlum að leggja nokkuð í viðhald á hús- unum í sumar og mála að utan og innan. Við munum þó nota þessa aðstöðu til að ganga frá fiskinum áður en hann verður fluttur suður. Það verður svo bara að koma í ljós hvert framhaldið verður,“ segir Hinrik Kristjánsson. – kte@bb.is Kambur gerir út frá Flateyri Báturinn Steinunn HF, sem er í eigu útgerðarfélagsins Kambs ehf., verður á handfærum frá Flateyri í sumar. Ljósm: © Mats.

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.