Bæjarins besta - 09.06.2011, Síða 19
FIMMTUDAGUR 9. JÚNÍ 2011 19
Sælkeri vikunnar er Salóme Ingólfsdóttir á Ísafirði
Karfi í sesamhjúp
Karfann smakkaði ég í fyrsta
sinn fyrir nokkrum vikum, ég
sé ekki eftir að hafa aukið við
fiskiflóruna á matseðlinum og
þessi uppskrift sá til þess að ég
á eftir að elda karfa aftur. Fjöl-
breytni í vali hráefna er lykill-
inn að hollu fæði sem allir ættu
að temja sér.
700 g hrár karfi
½ tsk salt
½ tsk svartur pipar
2 msk Dijon sinnep
1 dl vatn
1 dl sesamfræ
1 dl heilhveiti
2 msk matarolía.
Skerið karfann í þægilega stór
stykki, saltið og piprið. Hrærið
saman sinnepi og vatni og veltið
fiskistykkjunni upp úr sinnepinu
og síðan upp úr blöndu af sesam-
fræjum og heilhveiti. Steikið upp
úr olíu við frekar vægan hita í 2-
3 mínútur á hvorri hlið. Eða þar
til fiskurinn er hvítur í gegn.
Gott að bera fram með sósu,
ofnbökuðum kartöflum og fersku
salati.
Sósa:
1 dós 10% sýrðum rjóma –
Smakkað til með hvítlauk og
Dijon sinnepi.
Hér kemur skyrterta sem hægt
er að hafa á boðstólum allt árið
ef fólk er duglegt að fara í
berjamó á haustin og tilvalinn
haustréttur sem allir unnendur
skyrs- og bláberja ættu að prófa.
Skyrterta
½ Lu kanilkex
1 bolli múslí
3 msk smjör
1 peli rjómi
500 vanilluskyr
Bláber (mega vera frosin)
Kanilkexið er mulið og bland-
að saman við hollt og gott múslí
að eigin vali. Sett í botninn á
fallegu formi og bræddu smjör-
inu hellt yfir. Rjóminn er þeyttur
og blandað saman við vanillu-
skyrið. Blöndunni dreift varlega
yfir mulninginn í forminu. Og
fullt af bláberjum hellt yfir. Best
er að gera kökuna daginn áður.
Ég skora á mágkonu mína
Hörpu Lind Kristjánsdóttur að
vera næsti sælkeri vikunnar.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
hætti störfum hjá Ísafjarðarbæ á
fimmtudag í síðustu viku eftir 30
ára starf. Ásthildur hefur starfað
hjá sveitarfélaginu, áður Ísafjarð-
arkaupstað, með hléum frá 1966
við hin ýmsu störf sem snerta
umhverfi og fegrun bæjarins.
Samstarfsmenn hennar, Jóhann
Birkir Helgason og Ralf Trylla,
færðu henni af því tilefni gjafir
frá Ísafjarðarbæ og starfsmanna-
félagi bæjarskrifstofunnar.
„Ég vil senda öllum bæjarbú-
um góðar kveðjur og þakklæti
fyrir hve allir hafa verið mér góð-
ir og hve fólk hefur gegnum þessi
ár hvatt mig áfram, þ.e. bæjar-
búar, og verið mér mikil hvatning
til góðra hluta. Ég get líka stolt
hætt og veit að bærinn minn hefur
notið góðs af því sem ég gat gert
fyrir hann og bæjarbúa,“ segir
Ásthildur á bloggsíðu sinni.
– thelma@bb.is
Ásthildur var leyst út með gjöfum. Hér er hún með Ralf Trylla.
Ásthildur kveður
eftir 30 ára starf
Daníel Jakobsson bæjarstjóri
Ísafjarðarbæjar hefur lagt til að
umhverfisnefnd í samráði við
umhverfis- og eignasvið bæjarins
fari í vinnu við gerð fimm ára
framkvæmdaáætlunar fyrir sveit-
arfélagið. Við gerð hennar verði
sérstaklega horft til verka sem
fegra bæinn og draga úr rekstrar-
kostnaði.
„Mikið hefur verið rætt um
þörf á auknu fé til framkvæmda
og viðhalds. Nýverið var kynnt
framkvæmdaáætlun fyrir árið
2011 í bæjarráði og þau verkefni
sem til stendur að fara í. Mörg
kostnaðarsöm verkefni hafa
beðið og framkvæmdafé verið
takmarkað. Því er mikilvægt að
nýta fjármagn sem best og skoða
leiðir til að koma stórum verkum
á nokkur ár,“ segir í minnisblaði
bæjarstjóra.
Þar leggur hann til að jafnframt
verði skoðað hvort hægt sé að
bjóða út stærri verk sem greidd
væru á lengri tíma en fram-
kvæmdirnar standi yfir. „Þannig
mætti hugsanlega flýta fram-
kvæmdum og auka þær, núna
þegar að verkefnastaða verktaka
er takmörkuð,“ segir Daníel Jak-
obsson.
– thelma@bb.is
Vill að gerð verði fimm ára framkvæmdaáætlun