Bæjarins besta


Bæjarins besta - 10.01.2013, Blaðsíða 2

Bæjarins besta - 10.01.2013, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 2013 „Fánasmiðjan er búinn að ganga í gegnum algjöra endurnýjun eftir brunatjónið sem fyrirtækið varð fyrir í sumar. Brotist var inn í fyrirtækið og kveikt í með þeim afleiðingum að það skemmdust nær öll tæki, lager og búnaður félagsins. Þó slapp silkiprentvélin sem prentar fyrirtækjafánana. Við náðum að koma henni mjög fljótlega í gang aftur og héldum þannig starfseminni áfram, ásamt því að semja við góðviljaða aðila sem tóku að sér að prenta fána fyrir okkur í erfiðleikum okkar, þannig að við gátum haldið áfram að þjónusta viðskiptavini okkar,“ segir Örn Smári Gíslason fram- kvæmdastjóri Fánasmiðjunnar, en hún opnar formlega að nýju á laugardag. Fljótlega var ákveðið að endur- byggja fyrirtækið þrátt fyrir þá vitneskju brennuvargur gengi laus í bænum. Félagið hefði ekki getað þolað annað tjón af þessu tagi, að sögn Arnar Smára, nóg þurfti að leggja undir til að end- urbyggja félagið. Þótt trygging- arnar hafi bætt hluta af tjóninu var ekki bætt rekstrartap sem fé- lagið varð fyrir en vertíðin er á sumrin og kom gerðist þetta því á versta tíma. Fánasmiðjan flutti til bráða- birgða á fyrstu hæð hússins, sem slapp við brunatjónið, og hélt þjónustunni áfram eins og hægt var við þessar aðstæður. Á sama tíma var farið í að hreinsa út brunarústirnar og skipuleggja og innrétta hæðina upp á nýtt þar sem hún var eins og fokheld eftir að búið var að hreinsa út. Það þurfti að skipta um allar raflagnir byggja upp nýja milliveggi, lofta- efni og lagfæra gólf og fleira. Nú voru sett upp fullkomin bruna- og þjófavarnarkerfi til að koma í veg fyrir svona skaða aftur. Fjárfest var í nýjum tækjum og var ákveðið var að kaupa nýj- ustu og fullkomnustu græjurnar til að auka gæðin og afköstin. Einnig var það hugsað til að auka möguleika í prentun. Fyrir valinu urðu prentarar og skurðarplott- erar frá japanska fyrirtækinu Mimaki, en þeir eru einna stærstir á markaðnum núna. Búið er að tilkeyra tækin nokkuð vel og reynast þau vonum framar. Menn horfa björtum augum á framtíð- ina.Opnunin hefst kl. 13.00 á laugardag og stendur til 17:00, en heitt verður á könnunni. Fánasmiðjan risin upp úr brunarústum „Ég hefði haldið að þrjátíu og fjórir kosnir þingmenn jafnaðar- manna hefðu getað gert þetta í upphafi kjörtímabilsins. Þeim hrýs hinsvegar hugur við það eitt að láta höfuðborgarbúa leggja eitthvað til, svo hægt sé að jafna lífskjör íbúanna í landinu,“ segir Kristinn H. Gunnarsson fyrrum alþingismaður, en hann telur rík- isstjórnina hafa áunnið lítið á nú- verandi kjörtímabili í jöfnun hús- hitunarkostnaðar í landinu, og einnig í raforkumálum. Kristinn segir að jarðhitinn í landinu sé þjóðarauðlind, sem eigi að nýta og dreifa til landsins alls og íbúa þess rétt eins og fiskurinn í sjónum. „Það er eins með jarðhitann eins og fiskinn. Þetta er þjóðareign og ávinning- inn á að færa til allra, ekki bara til þeirra sem við á heitum svæð- um. Þeir eiga frekar að borga aðeins meira svo allir geti notið notið þessarar auðlindar,“ segir Kristinn, sem bætir því við að raforkumálin séu einnig í flækju inni á Alþingi. „Jöfnun raforkuverðs er einnig hlutur sem núverandi ríkisstjórn hafði góð áform um að gera, en hefur ekki gert. Viljinn til að jafna lífskjör í landinu er orðinn ansi daufur hjá þessum fjórum stjórnmálaflokkum,“ segir Krist- inn, sem telur að raforkukerfið og gagnaflutningakerfið þurfi að styrkja bæði á Vestfjörðum og á Snæfellsnesi og því þurfi að virkja meira á Vestfjörðum, svo heimamenn geti stuðst við eigin framleiðslu. Kristinn telur ekki rétt að ráðast á Orkubú Vestfjarða þegar raf- magnsvandræði á Vestfjörðum koma upp. „Það er erfitt að hengja Orkubú Vestfjarða upp á snaga í þessu máli, þar sem ríkið á fyrir- tækið og skammtar því skilyrði. Starfsmenn Orkubúsins hafa staðið sig vel og gert vel úr hlut- unum,“ segir Kristinn, sem ný- lega hefur gengið í stjórnmála- samtökin Dögun og liggur nú undir feldi um hvort hann hyggi á endurkomu á Alþingi. Jarðhitinn eins og fiskurinn „Miðað við aðstæður og þá fækkun sem verið hefur í fjórð- ungnum á undanförnum árum finnst manni sala á fasteignum skárri en tölur um fólksfækkun gefa til kynna. Kannski er það vísir að því að dæmið sé að snúast við,“ segir Tryggvi Guðmunds- son, annar eigenda Fasteignasölu Vestfjarða. Að sögn Tryggva var sala fasteigna á Vestfjörðum svipuð í fyrra og árið 2011, en eftirspurn eftir einbýlishúsum hefur aukist. Vel hefur selst af húsum í Holtahverfi á Ísafirði og í Bolungarvík. Aðspurður um verðlag fast- eigna segir Tryggvi að stöðnun hafi verið frá hruni. „Við erum þó að sjá minni verðhækkanir hér heldur en annars staðar. Fast- eignaverðið helst lægra, en það hefur alltaf verið lægra á jaðar- svæðum,“ segir Tryggvi og bætir því við að verðsveiflur hafi verið minni eftir hrun á Vestfjörðum heldur en á höfuðborgarsvæðinu, en þar var mikið byggt rétt fyrir hrun. Tryggvi telur að verð fast- eigna gæti farið hækkandi á höf- uðborgarsvæðinu á næstu misserum. Tryggvi segir það fyrst og fremst yngra fólk sem festi kaup á stærri eignum, eins og einbýlishúsum. „Unga fólkið virðist vera að kaupa húsnæði í töluvert meira magni en á undanförnum árum. Vonandi leiðir þetta til aukinnar bjart- sýni hjá ungu fólki og það sjái möguleika í því að setjast að á Vestfjörðum,“ segir Tryggvi, sem hefur selt fasteignir á Vest- fjörðum frá árinu 1976. Ungt fólk vill einbýlishús

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.