Bæjarins besta - 24.01.2013, Síða 4
4 FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 2013
Stefna á útflutning á fiskiolíu til Asíu
„Við erum fyrst og fremst að
horfa á heilsumarkaðinn, en í augna-
blikinu leitum við að samstarfs-
aðilum erlendis,“ segir Anna Sig-
ríður Jörundsdóttir frumkvöðull
úr Bolungarvík, en hún hyggur á
framleiðslu á fiskiolíu ásamt
þeim Sigrúnu Sigurðardóttur og
Birgittu Baldursdóttur. Fyrirtæki
þeirra nefnist True West ehf, og
er markmið þess koma á markað
náttúrulegri fiskiolíu sem er
minna meðhöndluð en venjulegt
lýsi. Fyrirtækið er til húsa við
höfnina í Bolungarvík, en að sögn
Önnu og Sigrúnar er stefnan fyrst
og fremst sett á Asíumarkað. Þær
stöllur eru bjartsýnar á að geta
hafið útflutning á næstu misser-
um.
„Við ætlum að hefja fram-
leiðslu á þessu ári. Við erum
komnar með samstarfsaðila á Ís-
landi sem eru í útflutningi og
þeir eru að leita samstarfsaðilum
í Asíu,“ segir Sigrún, en umrædd
fiskiolía verður í fljótandi formi
líkt og hefðbundið lýsi. Að sögn
þeirra felst munurinn á fiskiolíu
True West og hefðbundnu lýsi
aðallega í vinnslunni á vörunni.
Venjulegt lýsi er unnið á þann
hátt að frávirk efni eru hreinusuð
úr, með þeim afleiðingum að upp-
runaleg vítamín hverfa, og koma
þarf þeim fyrir aftur.
„Við erum spenntari fyrir því
að láta náttúruna ráða og styðjast
meira við árstíðarsveiflur. Að
sama skapi erum við ekki eins
föst við ákveðna staðla,“ segir
Anna, en True West vinnur nú
ásamt Matís að frekari þróun á
vörunni. Eiginleg framleiðsla
hefst þó ekki fyrr varan og allir
ferlar eru tilbúnir, fjármagn hefur
verið tryggt og kaupendur er-
lendis sömuleiðis. Anna og Sig-
rún eru sannfærðar um að mikill
áhugi verði fyrir vörunni í Asíu.
„Við búumst við því að 80-90%
af vörunni verði flutt til Asíu.“
Að sögn Sigrúnar er markhóp-
ur fyrirtækisins notendur heilsu-
vara. „Í auknum mæli hefur verið
kallað eftir minna unnum afurð-
um og eftir öðruvísi lýsi en við
erum vön. Fólk í heilsugeiranum
er ekki hrifið af mikið unnum
afurðum,“ segir Anna, en varan
mun henta vel til inntöku fyrir
hráfæðisætur. „Þeir sem borða
bara hráfæði hita ekki matinn
sinn upp fyrir 47 gráður, og því
hentar fiskiolían fullkomlega fyr-
ir þau.“ Þeir sem neyta einungis
hráfæðis hita fæðu sína ekki
meira en 47 gráður til þess að
ensím haldist óskert í hráefninu
og líkaminn eyði sem minnstri
orku í að melta og nýta sér orkuna
úr matnum.
Þær Anna, Sigrún og Birgitta
útskrifuðust allar úr MBA námi
við Háskóla Íslands árið 2011.
Upphaflega ætluðu þær að fram-
leiða lýsi fyrir gæludýr en áttuðu
sig fljótt á því að lýsi fyrir heilsu-
markaðinn væri betri hugmynd.
„Eftir að hafa kannað markaðinn
og heyrt í fólki í þessum geira
urðum við sannfærðar um að það
væri betri hugmynd,“ segir Anna,
en hún segir hugmyndina hafa
elt þær í gegnum námið. „Segja
má að þessi hugmynd hafi fylgt
okkur í gegnum nokkra kúrsa og
við losnuðum aldrei við hana.
Þetta varð svo að alvöru eftir
útskrift.“
Þær stöllur hafa fengið all-
nokkra styrki að undanförnu og
ljóst er að margir aðilar hafa trú á
verkefninu. Meðal annars má
nefna 300.000 króna styrk frá
Landsbankanum. Því verður
spennandi að fylgjast með þeim
Önnu, Birgittu og Sigrúnu á
næstu misserum og fyrirtæki
þeirra, True West.
– gudmundur@bb.is