Bæjarins besta - 24.01.2013, Blaðsíða 19
FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 2013 19
Lausn á síðustu krossgátu Sudoku þrautir
Smáhýsin í Tungudal í deiliskipulagsvinnu
Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar hefur samþykkt einróma
tillögu þess efnis að farið verði í deildiskipulagsvinnu
í Tungudal. Tillagan var lögð fram í kjölfar þess að
Guð-mundur Tryggvi Ásbergsson hefur óskað eftir
leyfi til að byggja tuttugu smáhýsi í Tungudal. „Hægt
verður að úthluta lóðum í fyrsta lagi eftir hálft ár. Við
myndum heldur ekki vilja miklar framkvæmdir í sumar
þegar tjaldsvæðið er opið. Heppilegt væri að byrja
á þessu í september,“ segir Daníel Jakobsson bæjar-
stjóri á Ísafirði um ferlið sem eftir er, verði tillagan sam-
þykkt í bæjarstjórn.
„Ég tel að deiliskipulagsferlið taki í besta falli sex
mánuði,“ segir bæjarstjóra. Nú fer af stað hönnunar-
vinna hjá arkitektum sem teikna upp svæðið. Ef
hönnuðir finna viðeigandi lausn á skipulagi fer málið
aftur til inn í bæjarstjórn og svo í almenna auglýsingu
og athugasemdaferli. Deiliskipulag verður þá auglýst
og íbúar svæðisins hafa tækifæri á að koma sínum
athugasemdum á framfæri. Eftir það yrði deiliskipulag
auglýst aftur og staðfest af umhverfisráðherra. Þá
væri hægt að úthluta lóðum ef allt hefur gengið að
óskum. Farið verður í deiliskipulagsvinnu í Tungudal þar sem Guðmundur Tryggvi hyggst reisa 20 smáhýsi.