Bæjarins besta - 24.01.2013, Síða 6
6 FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 2013
Útgefandi: Gúttó ehf., kt. 680501-2620
Afgreiðsla og ritstjórn: Silfurgötu 1, Ísafirði, sími 456 4560
Ritstjóri BB og bb.is: Sigurjón J. Sigurðsson, 892 5362, bb@bb.is
Ábyrgðarmenn: Halldór Sveinbjörnsson, 894 6125, halldor@bb.is
Sigurjón J. Sigurðsson
Blaðamenn: Guðmundur B. Þorbjörnsson, gudmundur@bb.is
Hörður Andri Steingrímsson, hordur@bb.is
Auglýsingar: Halldór Sveinbjörnsson, 894 6125, halldor@bb.is
Prentvinnsla: Litróf ehf.
Upplag: 2.200 eintök
Dreifing: Íslandspóstur. Dreift án endurgjalds inn á öll heimili
á norðanverðum Vestfjörðum
Stafræn útgáfa: www.bb.is / facebook.com/pages/bbis
Önnur útgáfa: Á ferð um Vestfirði
ISSN 1670-021X
Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið bb@bb.is.
Auglýsingar þurfa að berast fyrir kl. 17 á mánudögum
fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum.
Ritstjórnargrein
Velviljinn einn dugir skammt
Spurning vikunnar
Hefur þú fengið flensuna í ár?
Netspurningin er birt vikulega á bb.is og þar geta lesendur
látið skoðun sína í ljós. Niðurstöðurnar eru síðan birtar hér.
Alls svöruðu 442.
Já sögðu 68 eða 15%
Nei sögðu 374 eða 85%
„Það er ljóst að í þessu veður-
áhlaupi uppfyllti Orkubú Vest-
fjarða ekki væntingar viðskipta-
vina sinna og biðjumst við af-
sökunar á þeim óþægindum sem
af rafmagnsleysinu hlaust.“ Þetta
segir í yfirlýsingu á vef Orkubús
Vestfjarða. Stjórnendur Orku-
búsins hafa tekið saman ítarlega
skýrslu um rafmagnsleysið á
Vestfjörðum og viðbrögð við því.
Í skýrslunni kemur fram að tjón
á dreifikerfi OV verði að teljast
óverulegt miðað við aðstæður.
Aðeins hafi brotnað átta stæður í
Hrafnseyrarlínu og Kollafjarðar-
línu, en auk þess hafi vírar slitnað.
„Því hefur verið haldið fram
að fjórar varaaflsstöðvar hafi ver-
ið bilaðar þegar á þurfti að halda.
Það skal áréttað að allar varaafls-
stöðvar voru í lagi þegar á þurfti
að halda. Vélarnar biluðu í
keyrslu. Það er miður, en getur
gerst. Varaaflsvélar eru undir
stöðugu eftirliti og fasaðar við
kerfið í hverjum mánuði. En eins
og öll mannanna verk þá geta
þessar vélar bilað,! sem þær
gerðu því miður.
Hefðu vélar ekki bilað hefði
ekki orðið jafn langt og víðtækt
rafmagnsleysi á Ísafirði. Þarna
spiluðu saman gríðarlega erfiðar
aðstæður, slæm færð og almanna-
varnaástand. Okkur bárust boð
um aðstoð frá öðrum veitum, svo
sem frá RARIK og það ber að
þakka. Vegna aðstæðna, færðar
o.þ.h. var ekki talin þörf á þeirri
aðstoð enda þá orðið ljóst að
ástand flutningskerfisins var al-
varlegra annarsstaðar.
Vegna bilana í varaaflsvélum
á Ísafirði og í Bolungarvík ásamt
bilun í spennistöð Ísafirði, þá
voru sum hverfi lengi án raf-
magns,“ segir í skýrslunni.
Helstu niðurstöður um það sem
gera þarf í kjölfarið er eftirfar-
andi:
• Ljúka þarf vinnu í samstarfi
við Landsnet um afhendingar-
öryggi.
• Áfram þarf að vinna eftir
áætlunum um að koma dreifilín-
um í jörð.
• Koma þarf spennistöðvum í
jörð eða loka þeim til að koma í
veg fyrir seltuáhrif.
• Bæta þarf varaafl fjarskipta-
búnaður •Auka þarf samstarf við-
bragðsaðila, s.s. almannavarna-
nefndar, Orkubús, Vegagerðar,
Landsnets ofl.
• Bæta þarf upplýsingagjöf
Orkubúsins á meðan að raf-
magnsleysi stendur yfir.
bb@bb.is
Orkubúið biðst afsökunar
Sagt er að vika sé langur tími í pólitík; hvað þá fjórir áratugir! Sá tími
er þó liðinn síðan Sighvatur nokkur Björgvinsson, þáv. alþm. prísaði þá-
verandi iðnaðarráðherra fyrir jákvæðni gagnvart þingsályktunartillögu
um úrbætur í orkumálum á Vestfjörðum, í ræðu á Alþingi í des. 1974.
Stöðu mála kvað þingmaðurinn vera þá, að með þingsályktunartillögunni
væri leitast við að greiða úr algeru neyðarástandi, sem ríkti í raforkumálum
fjórðungsins; ástandi sem hefði mjög alvarleg áhrif á atvinnulífið.
Ekki vantaði að á tilgreindu tímabili hafði margt hafði verið ígrundað
og hugmyndir verið uppi um hinar og þessar smærri virkjanir og línulagn-
ir, en: ,,svo hefur hins vegar farið að ekkert af þessu hefur verið gert og
borið við fjárskorti.“ Væntanlega hafa hinar góðu undirtektir ráðherrans
getið af sér þá áskorun í lok ræðu þingmannsins, að ,,þegar í stað verði
hafinn undirbúningur að nýrri stórvirkjun á Vestfjörðum þannig að
Vestfirðingar geti þó átt von á því að fá að búa við sæmilegt öryggi í raf-
orkumálum eftir 1980.“!!
Árið 1980 og nú 2013 gengið í garð. 32 ár liðin frá því öryggi Vest-
firðinga í orkumálum átti að vera tryggt. Engu að síður eru þeir nýbúnir
að ganga í gegnum alvarlega orkukrísu. Væru tök á því að mynda uppi-
stöðulón þess vatnsmagns sem runnið hefur til sjávar síðan Össur Skarp-
héðinsson, þáv. iðnaðarráðherra, kvað upp þann dóm að Vestfirðingar
byggju við þriðja flokks raforkukerfi, sem hvorki væri stjórnvöldum né
orkufyrirtækjum til sóma (og vart annað að heyra á ráðherranum en að
nú yrði tekið til hendinni, þetta gengi ekki lengur) væri um mikið mann-
virki að ræða. Þá, sem og nú, er virkjun Hvalár í Ófeigsfirði, helsti kost-
urinn. En þrátt fyrir allan ráðherravelvilja rennur Hvalá enn óbeisluð til
sjávar, eins og hún hefur gert öldum saman, án sjáanlegra tilburða stjórn-
valda til nýtingar þeirrar orku, sem þar er í boði.
Alþingi hefur nýverið samþykkt rammaáætlun um nýtingu og verndun
orkusvæða; áætlun sem langt í frá var að samkomulag næðist um.
Vestfirðingar ættu þó að geta við unað þar sem Hvalárvirkjun er annar
þeirra virkjunarkosta, sem samkomulag náðist um í nýtingarflokki. Sem
oft áður verður kálið ekki sopið þótt í ausuna sé komið. Rannsóknir
Orkubús Vestfjarða benda til að stærri virkjanir á Vestfjörðum sé enn of
dýrar miðað við orkuverð í dag. Einn stærsti þröskuldurinn er svokallað
tengigjald. Fyrri hluta árs 2009 vöktu heimamenn, með ítarlegum hætti,
athygli stjórnvalda á hversu mikilvæg Hvalárvirkjun væri Vestfirðingum
fyrir margra hluta sakir og óskuðu eftir að hoggið yrði á þann hnút, sem
tengigjaldið er.
Velviljann vantar ekki, hverjir sem stólana sitja. Hann einn dugir
skammt.
s.h.
Auglýsing um deiliskipulag,
Torfnes, Ísafirði, Ísafjarðarbæ
Í samræmi við 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 hefur bæjarstjórn
Ísafjarðarbæjar samþykkt ofangreinda deiliskipulagsbreytingu á fundi
sínum þann 17. janúar 2013.
Deiliskipulagsbreytingin tekur til 6 ha svæðis á reit sem nær frá íþrótta-
húsinu á Torfnesi að hringtorgi við Hafnarstræti og Skutulsfjarðarbraut.
Milli fjórðungssjúkrahússins og hringtorgsins bætist við tvær nýar lóðir
en lóðir nr. 1 og 8 skv. fyrra skipulagi falla út og verða hluti af bæjarland-
inu. Lóðir 4 og 5 annars vegar og 2 og 3 hins vegar eru sameinaðar.
Lóðir innan skipulagssvæðisins eru því sex í stað átta.
Lóð fjórðurngssjúkrahússins minnkar til að rýmka fyrir hjúkrunarheimili
á nýrri lóð fyrir neðan. Á lóð A er heimilt að reisa allt að 5.174 m² hjúkrun-
arheimili, ásamt tengdri þjónustustarfsemi, með tengibyggingu við
sjúkrahúsið á lóð B. Byggingar skulu vera á einni hæð, nema norðan
við fjórðungssjúkrahúsið er heimilt að reisa byggingu á tveimur hæðum.
Deiliskipulagstillagan verður til sýnis á bæjarskrifstofum í Stjórnsýslu-
húsinu, Hafnarstræti 1, Ísafirði og á heimasíðu Ísafjarðarbæjar
www.isafjordur.is frá og með 24. janúar 2013 til og með 7. mars 2013.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur
á að gera athugasemdir við deiliskipulagstillöguna. Skila skal inn at-
hugasemdum á bæjarskrifstofu Ísafjarðarbæjar, Stjórnsýsluhúsinu,
Hafnarstræti 1, Ísafirði. Þeir sem ekki gera athugasemdir við skipulagstil-
löguna fyrir tilskilinn frest teljast samþykkir henni.
Ísafirði 21. janúar 2013.
Jóhann Birkir Helgason,
sviðstjóri framkvæmda- og eignasviðs.