Bæjarins besta - 07.02.2013, Qupperneq 2
2 FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2013
Greiðslur til bæjarfulltrúa og
nefndarmanna hjá Ísafjarðarbæ
hafa staðið í stað samkvæmt
minnisblaði Daníels Jakobssonar
bæjarstjóra til bæjarráðs. Af
einhverjum ástæðum hefur teng-
ing við þingfararkaup verið rofin
frá árinu 2009 og hefur Daníel
því óskað eftir afstöðu bæjarráðs
til þess hvort og þá með hvaða
hætti bæjarfulltrúum verði greitt
fyrir ferðir á vegum sveitarfé-
lagsins, séu þeir sérstaklega skip-
aðir til ferðanna. Á árunum 2003-
2009 voru greiðslurnar tengdar
við þingfararkaup en ekki er til
nein formleg samþykkt um að
tengingin skuli ekki vera virk. Í
erindi bæjarstjóra er einnig tekið
á því hvernig greiða skuli fyrir
ferðir á vegum bæjarins en flest
sveitarfélög sem greiða fyrir slíkt,
greiða annað hvort heila eða hálfa
daga auk útlags ferðakostnaðar.
Greiðslur til bæjarfulltrúa eru
miðaðar við þingfararkaup frá
árinu 2009, sem eru 531.100
krónur á mánuði. Af þeirri fjár-
hæð reiknast hlutfallsleg greið-
sla, 2-8% af þingfararlaunum,
eftir eðli starfs eða fundar. Föst
laun forseta bæjarstjórnar er
37.500 krónur á mánuði. Greidd-
ar eru 41.600 krónur fyrir fund í
bæjarstjórn. Formaður bæjarráðs
fær 37.500 krónur í föst laun og
41.600 krónur fyrir fund í bæjar-
ráði. Bæjarráðsmaður fær 37.500
krónur í föst laun og 20.800 krón-
ur fyrir fund í bæjarráði. Bæjar-
fulltrúi fær 37.500 krónur í föst
laun og 20.800 krónur fyrir fund
í bæjarstjórn og 10.400 krónur
fyrir fund í nefnd. Formaður
nefndar fær 20.800 krónur fyrir
fund í nefnd en engin föst laun.
Þingfararkaup hefur hækkað
um 15% frá árinu 2009 eða sem
nemur 3,5% á ári og var 610.194
krónur í fyrra. Ef greiðslur til
bæjarfulltrúa hefðu hækkað í
samræmi við þingfararkaup væru
þau eftirfarandi: Föst laun forseta
bæjarstjórnar 43.085 krónur á
mánuði og 48.816 krónur fyrir
fund í bæjarstjórn. Formaður
bæjarráðs fengi 43.085 krónur í
föst laun og 48.116 krónur fyrir
fund í bæjarráði. Bæjarráðsmað-
ur fengi 43.085 krónur í föst laun
og 24.408 krónur fyrir fund í
bæjarráði. Bæjarfulltrúi fengi
43.085 krónur í föst laun og
24.408 krónur fyrir fund í bæjar-
stjórn og 12.204 krónur fyrir fund
í nefnd. Formaður nefndar fengi
24.408 krónur fyrir fund í nefnd
en engin föst laun.
Einungis eru greidd laun til
þeirra fulltrúa í nefndum sem
bæjarstjórn hefur kjörið til starfa.
Bifreiðastyrkur er greiddur til
þeirra nefndarmanna sem búa
utan Ísafjarðar en þurfa að sækja
þangað fundi. Starfsmenn bæj-
arins sem fá greidda fasta yfir-
vinnu fá ekki greitt fyrir nefndar-
störf. Ekki hafa verið samdar
neinar reglur um hvernig greitt
er fyrir ferðir bæjarfulltrúa á veg-
um bæjarins en mörg önnur sveit-
arfélög greiða fyrir heilan og hálf-
an dag þegar farið er út fyrir
sveitarfélagið á vegum bæjarins.
– hordur@bb.is
Greiðslur standa í stað
Greiðslur til bæjar-
fulltrúa og nefndarmanna
hafa staðið í stað frá 2009.